Fréttablaðið - 15.10.2015, Side 18
Þann 12. október ár hvert
er haldin dálítið sérstæð
samkoma í hlíðum Sorte-
fjallsins í Venesúela, þar sem
frumbyggjar hylla guði sína
og gyðjur. Meðal guðanna
eru víkingahetjur á borð við
Eirík rauða, sem hafa ratað
inn í guðatölu heimamanna
þar úr sjónvarpsþáttum um
norræna víkinga, sem gerðir
voru á Kúbu á áttunda ára-
tugnum og nutu mikilla vin-
sælda í nágrannalöndunum.
1. Þátttakandi í trúar-
samkomunni „Baile de la
Candela“, eða elddans-
inum, liggur á jörðinni
umkringdur kertaljósum.
Samkoman er haldin í
október á hverju ári og
dregur til sín fjölda ferða-
manna, sem fá að fylgjast
með úr fjarlægð.
2. Úr sjónvarpsþáttum
um norræna víkinga, sem
nutu mikilla vinsælda í
Mið-Ameríku á áttunda
áratug síðustu aldar.
3. Partur af athöfninni er
að baða sig í ánni.
4. Áður en haldið er upp
í hlíðar Sorte-fjallsins í
Yaracuy-héraði tekur fólk
sér pásu til að reykja.
5. Dansað á eldi á trúar-
samkomu í Yaracuy í
Venesúela. Þar hafa trúar-
brögð kennd við gyðjuna
Mariu Lionca náð fótfestu,
en þau eru afbrigði af
santería-trúnni sem upp-
runnin er í Karíba hafinu
og blönduð áhrifum
úr bæði kaþólskum og
afrískum hefðum.
6. Einn þátttakenda
trúarsamkomunnar í
Yaracuy, þar sem guðirnir
eru komnir úr ýmsum
áttum. Þar á meðal eru
frægir indíánahöfðingjar,
kaþólskir dýrlingar, vík-
ingahetjur á borð við Eirík
rauða og suðuramerískir
stjórnmálamenn á borð
við Simon Bolivar.
Nordicphotos/AFp
Víkingatrú í Venesúela
1
2
3
4
5 6
1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r18 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð