Fréttablaðið - 15.10.2015, Síða 42
Fólk| tíska
Gleraugu hafa verið í mikilli þróun á undan-förnum árum. Þau
eru léttari og þægilegri í
notkun. Glerin eru sömu-
leiðis fínlegri og léttari. Það
gefur aukna möguleika fyrir
hönnuði. Pétur Christian-
sen, gleraugnasali í Garða-
bæ, segir að horfa mætti
aftur til áttunda áratugar
(seventies) þegar kemur að
nýjustu tísku í gleraugum.
„Umgjarðirnar hafa verið að
stækka mikið og sú þróun
heldur áfram. Ég var á sýningu í París fyrir stuttu
og þar sá ég að svokölluð „pilot“ umgjörð er að
koma mjög sterk inn. Einnig kringlótt gleraugu eins
og John Lennon gekk með. Tískan fer alltaf í hringi.
Ekki henda gömlu gleraugunum,“ segir Pétur.
ÓhuGsandi að velja liti
Íslendingar voru ekki ginnkeyptir fyrir tískusveiflum
í gleraugnaumgjörðum en það hefur verið að breyt-
ast. „Það tekur auðvitað alltaf smá tíma að koma
nýjungum á markað. En aukist hefur að fólk líti á
gleraugu sem hluta af klæðnaðinum og sé óhrædd-
ara við að kaupa umgjörð með litum. Slíkt var
óhugsandi fyrir nokkrum árum. Núna leitar fólk eftir
umgjörðum með litum og á gjarnan tvenn gleraugu
til skiptanna, þá er önnur umgjörðin í hlutlausum
lit,“ segir Pétur og bætir við að verð á gleraugum á
Íslandi sé mjög gott miðað við önnur Evrópulönd en
samkeppnin er mikil hér á landi.
Pétur bendir á að undanfarið hafi verið töluvert
um tilboð í gleraugnaverslunum þar sem boðið er
2 fyrir 1. Sjálfur segist hann vera að bjóða slíkt til-
boð þar sem búðin er að flytja í glænýtt húsnæði á
Garðatorgi. „Svona tilboð gefa fólki möguleika á að
fá tvenns konar útlit á gleraugum,“ segir hann.
kaupa á netinu
Þegar Pétur er spurður um alheimsverslunina,
það er netverslun, segir hann að allir finni fyrir
henni. „Við finnum fyrir því að fólk kaupi gleraugu á
netinu. Það er ekkert við þeirri samkeppni að gera
nema bregðast við henni. Fólk sendir upplýs-
ingar frá lækni, bil milli augna og þess háttar
á netfyrirtæki. Gallinn er að fólk veit ekki
alltaf hvað það er að fá. Ef verðið er of
gott til að vera trúanlegt eru gæðin oft
í svipuðum dúr. Gleraugnasalar á Ís-
landi eru fagmenn sem vanda sig og
það er alltaf hægt að leita til þeirra
með lagfæringar og þjónustu.
Auk þess erum við með ábyrgð.
Við erum til dæmis með vönduð
gler frá Þýskalandi og þeim fylgir
ábyrgð. Síðan er betra að máta
gleraugu og finna út hvað hentar
andlitsfalli. Einnig þarf að stilla gler-
augun miðað við nefstærð og fleira.
Það er mjög mismunandi hvaða um-
gjarðir passa fólki eða litir,“ segir Pétur
og bætir við að sér finnist mjög skemmti-
legt að Íslendingar séu orðnir jákvæðir gagnvart
alls kyns umgjörðum. Gleraugu geti sett ákveðinn
karakter á fólk. n elin@365.is
GlerauGu með stæl
karakter Gleraugu eru tískuvara. Það þarf enginn að óttast að þurfa að
nota gleraugu því úrvalið hefur sjaldan verið meira. Bæði hafa formin breyst
og stækkað og litaúrval aukist. Þá hefur dirfska manna og kvenna aukist að
prófa nýjan stæl.
næsta sumar Þessi gleraugu frá
Emilio Pucci voru sýnd í Mílanó.
milanÓ Gleraugu frá Emilio Pucci sem
sýnd voru á tískusýningu fyrir vor-og
sumartískuna 2016.
tískan Fer í hrinGi
Pétur Christiansen gler-
augnasali.
VETRARTÍSKAN
ER KOMIN
Smáralind
facebook.com/CommaIceland
áBerandi GlerauGu
jOhn lennOn Að sögn Péturs eru
kringlótt gleraugu eins og Bítillinn
gekk með að koma sterk inn.
GuCCi Vor og sumar 2016.
neW YOrk Gleraugu frá Gucci,
vor og sumar 2016.