Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 6

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 6
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 Styrkir vegna útgáfu myndríkra bóka um sögu Reykjavíkur Útgefendur myndríkra bóka sem tengdar eru sögu og menningu í Reykjavík geta sótt um styrk til niðurgreiðslu á kostnaði vegna kaupa á myndum til birtingar frá Ljós- myndasafni Reykjavíkur skv. gjaldskrá og magntilboðum safnsins. Styrkirnir eru vegna útgáfu bóka sem koma út á árinu 2015 eða í ársbyrjun 2016. Styrkirnir eru aðgerð í kjölfar menningarstefnu Reykjavíkurborgar sem miðar m.a. að því að hlúa að varðveislu menningararfleifðar og hvetja til miðlunar hennar. Þriggja manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögusafns Reykjavíkur og skrifstofustjóra menningarmála metur umsóknir. Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu og verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna afgreiðslu ljósmynda í höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Umsókn merkt ,,Myndrík bók um sögu Reykjavíkur“ berist á netfangið menning@reykjavik.is. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 12. júní. Framkvæmda- og eignasvið Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is ALÞINGI Meirihluti atvinnuvega- nefndar Alþingis féll í gær frá því að hafa Hagavatnsvirkjun meðal þeirra virkjanakosta sem lagt er til að verði færðir úr biðflokki rammaáætlunar í nýtingarflokk. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra upplýsti um þetta samkomulag í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. „Svoleiðis að menn geta haldið áfram að velta þeim kosti fyrir sér í ró og næði og vonandi séð að það er til bóta fyrir umhverfið að ráðast í virkjun á þeim stað og ná aftur til baka gamla Hagavatni og hefta þar með stórskaðlegan upp- blástur sem hefur staðið í allt of marga áratugi,“ sagði Sigmundur. Síðari umræða um umdeilda til- lögu til breytingar á þingsályktun frá meirihluta atvinnuveganefnd- ar um fjölgun virkjanakosta hófst á þriðjudag. Þingmenn stjórnar and stöð- unnar, sem heyrðu fyrst af breyt- ingunni í ræðu forsætisráðherra, voru nokkuð forviða yfir þess- ari tilkynningu. „Það er sem sagt búið að gera samkomulag um að breyta breytingartillögunni sem við áttum að ræða hér í allan dag. Hvenær átti að segja okkur þetta? Hvenær ætlaði hæstvirtur forseti að segja okkur þetta? Hvar eru þessar ákvarðanir teknar? Hvað erum við að ræða hérna í þingsaln- um? Þetta er bara orðinn farsi,“ sagði Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar. Þess var krafist að forseti Alþingis tæki málið af dagskrá þar sem ekki lægi ljóst fyrir hvaða til- lögu stæði til að ræða eftir breyt- inguna. „Þetta er svo mikið rugl. Ég krefst þess að forseti fresti hér fundi og að boðað verði til fundar meðal formanna flokkanna til þess að fara yfir dagskrána. Það er ekki í boði, það er ekki boðlegt að hér séu viðhöfð svona vinnubrögð þar sem við vitum ekki hvað verður á dagskrá,“ sagði Birgitta Jónsdótt- ir, kafteinn Pírata, meðal annars. Einar K. Guðfinnsson samþykkti að lokum að funda með þingflokks- formönnum áður en þingfundi yrði haldið áfram. Eftir fundinn tókst loks að hætta karpinu og var umræðu haldið áfram um vernd og orkunýtingu landsvæða. Þing- menn héldu þó áfram að ræða dag- skrá þingsins undir þeim lið og furðuðu sig á því að verið væri að ræða þessi mál en ekki stöðuna á vinnumarkaði, húsnæðismál eða önnur mál sem stjórnarandstöð- unni þótti eðlilegra að ræða þegar svo stutt er til þingloka sem raun ber vitni. fanney@frettabladid.is Ein virkjun dregin til baka úr tillögunni Hörð átök voru á Alþingi í gær um þingsályktun um fjölgun virkjanakosta. For- sætisráðherra upplýsti um að draga ætti Hagavatnsvirkjun til baka úr tillögunni. HÖRÐ ÁTÖK Hart var tekist á um umdeilda tillögu meirihluta atvinnuveganefndar um fjölgun virkjanakosta í gær og ein virkjun dregin til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hvenær átti að segja okkur þetta? Hvenær ætlaði hæst- virtur forseti að segja okkur þetta? Hvar eru þessar ákvarðanir teknar? Hvað erum við að ræða hérna í þingsalnum? Þetta er bara orðinn farsi. Guðmund Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. MENNING „Það gekk frábærlega vel í dag. Full moska og við vorum með íslenskan imam, Ólaf Halldórsson, sem leiddi bæn. Tvö til þrjú hundr- uð manns voru í moskunni og það voru múslimar af öllum þjóðernum, aðallega túristar. Engin mótmæli voru í gangi og við heyrðum ekkert frá yfirvöldum,“ segir Sverrir Agn- arsson, formaður Félags múslima á Íslandi, sem staddur er í Feneyjum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að aðstandendur íslenska verksins óttuðust mótmæli en ekkert varð af þeim í gær þrátt fyrir að auglýs- ingaspjöldum þess efnis hefði verið dreift um borgina. „Við erum ekki að svívirða neina kirkju. Þetta er ekki kirkja. Hún var afhelguð af páfa þegar hann var í Feneyjum og hefur verið lager síð- ustu 40 árin. Það hefur ekki komið nógu skýrt fram, ekkert er verið að vanhelga,“ segir Sverrir sem vill árétta þann misskilning sem hann segir hafa verið ríkjandi í fjölmiðl- um og segir fjölmiðla erlendis hafa fiskað upp stemmingu gegn verkinu. „Pressan hefur verið að kvarta yfir því að þetta sé skipulagt bæna- hald en þetta bænahald var skipu- lagt fyrir 1400 árum. Múslimar biðja alltaf á sömu tímum,“ segir hann. „Við múslimar lítum á það sem svo að heimurinn geti verið moska. Það er engin athöfn til að helga mosku eða vanhelga. Maður getur beðið hvar sem er, líka í listaverki. Þetta er flottasta moska sem ég hef séð í Evrópu og þar af leiðandi biðj- um við þar,“ segir Sverrir. - þea Allt gekk vel fyrir sig í moskunni sem er framlag Íslendinga á Feneyjatvíæringnum í ár: Hundruð múslima báðu í moskunni í gær FALLEGASTA MOSKA Í EVRÓPU Sverrir Agnarsson á gólfi moskunnar í Feneyjum. MYND/SVERRIR AGNARSSON RÚSSLAND Fyrir Dúmunni, rúss- neska þinginu, liggur frumvarp sem hefur það að markmiði að grisja úr „óæskilega útlendinga“ eins og það er orðað í frumvarp- inu. Frumvarpið, sem kemur frá stjórnmálamönnum sem eru hlið- hollir Pútín forseta, þykir afar opið til túlkunar um hvað „óæski- legur útlendingur“ sé. Árið 2012 samþykkti Dúman frumvarp sem miðaði að því að úthýsa erlendum félagasamtökum en í fyrra var skrifstofa Norður- landaráðs til að mynda flokkuð sem „óæskilegur erlendur aðili“ og var henni lokað í kjölfarið. Frumvarpið sem liggur nú fyrir þinginu mun koma til með að ná til einstaklinga og fyrirtækja sem utanríkisráðuneyti Rússa telur vinna gegn hagsmunum Rúss- lands. Þeir sem eru dæmdir eftir lög- gjöfinni geta búist við sekt upp á rúma milljón króna eða allt að sex ára fangelsisvist. Fulltrúar mannréttindasam- taka hafa fordæmt löggjöfina og bent á að þó að einstaklingar þyki óæskilegir í augum einhverra stríði það gegn mannréttindum þeirra að vera sektaðir eða fang- elsaðir fyrir veru sína í Rúss- landi. - srs Gætu verið fangelsuð í sex ár fyrir að vera „óæskileg“ í augum stjórnvalda: Vilja óæskilega útlendinga burt KREML Frumvarpið þykir of opið til túlkunar. MAXIM MARMUR/AFP Save the Children á Íslandi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.