Fréttablaðið - 16.05.2015, Page 16

Fréttablaðið - 16.05.2015, Page 16
16. maí 2015 LAUGARDAGURSKOÐUN GUNNAR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 H vergi sitja fleiri dæmdir sakamenn í fangelsi hlut- fallslega en í Bandaríkjunum. Bandaríkjamenn eru nálægt fimm af hundraði mannkyns, þó lætur nærri að 25 prósent refsifanga í tukthúsum heimsins séu Bandaríkjamenn, sem þýðir að fimm sinnum fleiri Bandaríkjamenn þurfa að þola tukthúsvist en aðrir. Þeldökkir Bandaríkjamenn eru sjö sinnum líklegri til að lenda í fangelsi en hvítir landar þeirra. Þeir eru fjórtán prósent þjóðar- innar en um 40 af hundraði refsifanga. Mannréttindasamtök halda því fram, að þetta hlutfall endurspegli innbyggt misrétti, sem eigi sér langa sögu. Lögregla sæki harðar gagnvart þeldökkum og þeir fái þyngri dóma en hvítir. Þetta er ein undirrót þeirrar blóðugu úlfúðar, sem brotist hefur út í borgum Bandaríkjanna undanfarið, nú síðast í Baltimore. Þarna glittir í ljótustu hlið allsnægtasamfélagsins í vestri. Það er merkilegra sökum þess, að glæpum fækkar þar eins og í vestrænum ríkjum. Fólk er að vakna til vitundar um að eitthvað meira en lítið er bogið við sjálft kerfið. Tapað stríð gegn eitur- lyfjum veldur miklu. Stór hluti refsifanga afplánar dóma fyrir minni háttar fíkniefnabrot. Vísbendingar eru um, að einkavæddur fangelsisiðnaður geri illt verra. Hann þjóni eigendum sínum frekar en almenningi. Tekjur fangelsanna aukast eftir því sem fleiri sitja bak við lás og slá. Fangelsisiðnaðurinn leggur grunsamlega mikið upp úr því, að ekki verði gefið eftir í stríðinu gegn fíkniefnum. Ætla mætti að glæpagengjum yxi ásmegin. Ofbeldisglæpir fá gríðarlega athygli, einkum í sjónvarpi. Fyrir vikið telja tæplega 70 prósent Bandaríkjamanna að glæpaöldur rísi hærra og hærra. Það er rangt. Glæpum fækkar ár frá ári. Í febrúar urðu þau tíðindi í New York fylki, að færri féllu fyrir morðingjahendi en nokkru sinni síðan skráning hófst. Álykta mætti, að þungar refsingar ættu drjúgan þátt í þessum umskiptum. Svo er ekki. Afbrotamenn forherðast í fangelsi og verða líklegri til að feta glæpabrautina að afplánun lokinni. Fælingarmáttur tukthúsvistar mun því vera lítill. Jákvæð þróun er frekar rakin til minni áfengisdrykkju ungs fólks, hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar og færri freistinga á götum úti. Reiðufé, sem glæpamenn sóttu í áður, er nánast horfið af sjónarsviðinu. Inn í þetta fléttast vopnaburður lögreglu. Efasemdir um að lögreglumaður með byssu komi í veg fyrir glæpi, fá meiri hljóm- grunn. Byssan kalli bara á aðra byssu og kyndi undir óhuggulegu vopnakapphlaupi á götunum. Í öðrum löndum, þar sem lögregla er óvopnuð, er þróunin á sömu lund. Glæpum fækkar, óháð vopna- burði lögreglu. Margt er vel gert í Bandaríkjunum. En þegar kemur að löggæslu, refsidómum og tukthúsum er fáar fyrirmyndir þangað að sækja. Það er beinlínis hrollvekjandi, að því skuli haldið fram með góðum rökum, að í siðuðu landi séu tukthús gróðalind, sem þjóni þröngum hagsmunum eigenda sinna – gegn hagsmunum heildarinnar. Talsmönnum lögreglu á Íslandi er vinsamlegast bent á að horfa annað en til Bandaríkjanna þegar fyrirmynda á sviði löggæslu er leitað. Hér búum við við það að fangar eru tiltölulega fáir og glæpir fátíðari en víðast hvar. Það er í sjálfu sér ekki margt sem kallar á róttækar breytingar. Ísland er þrátt fyrir allt friðsælt land. MÍN SKOÐUN: JÓN GNARR Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Ég hef oft verið gagnrýndur. Stundum kemur fólk fram og tjáir sig um mín verk og þá oft út frá því hvort eitthvað sé fyndið, hverju megi gera grín að og hverju ekki og með alls konar góð ráð til mín hvernig ég eigi að starfa. Ég hef margoft verið kærður en aldrei hlotið neinn dóm. Mér hefur verið hótað margoft og ég hef orðið fyrir líkamsárásum út af gríni mínu. Fólk hefur sakað mig um ósmekk- legheit eða illan ásetning gagnvart hinum ýmsu þjóðfélagshópum. Ég hef yfirleitt reynt að verja mig og gjörðir mínar en stundum er það bara ekki hægt. Það getur verið snúið að rífast um hvað sé fyndið og hvað ekki, hvað megi og hvað megi ekki. Að kryfja grín leiðir yfirleitt til þess eins að grín- ið deyr. Ég er þeirrar skoðunar að í grundvallaratriðum megi gera grín að öllu, en það skipti máli hvernig og hvenær það er gert og af hverjum. Voðaverkin í París og umræðurnar í kjölfarið hafa sýnt okkur þetta mjög vel. Egill Helga- son skrifaði mikið um það mál og tók sér stöðu með Charlie Hebdo og botnaði ekkert í fólki sem var ósátt við skopið, það skildi ekki franskt samfélag og mikilvægi trúðsins fyrir lýðræðið. En svo þegar ég gerði grín að einum uppáhalds trommuleikara hans, í mínum síð- asta pistli, þá fauk í hann og honum sárnaði og hann sendi mér tóninn. Það er svo oft eitt í orði en annað á borði þegar kemur að gríni. Ég er alls ekki að væla neitt eða kvarta. Ég hef valið mér þetta hlutskipti, ég fæddist í það og ég held að ég hafi aldrei átt neitt val um annað. Ég er Charlie. Líf okkar er djók Að gera grín er vandasamt verk og það er mjög einstak-lingsbundið hvernig hver og einn upplifir grín. Ég þekki það af eigin raun. Markmiðið er oft óljóst, og jafnvel gerandanum sjálfum, hann leyfir sér stundum að elta þráð sem hann veit ekki alltaf hvert liggur. Grín byggist að miklu leyti á flæði sem á ákveðinn hátt er hafið yfir rökhugsun og lógík og verð- ur þá ákveðinn leikrænn spuni. Grín er listform og hluti af leiklist. Grínistinn hefur mikilvægu hlut- verki að gegna. Hann er hluti af mannréttindum, lýðræði og tján- ingarfrelsi. Hans hlutverk er ekki bara að veita fólki afþreyingu held- ur líka að hjálpa því að skilja og skynja líf sitt á nýjan hátt. Hvernig til tekst er svo yfirleitt háð hæfi- leikum, kunnáttu og fimi en ekki síður tímasetningu. Grín snýst að öllu leyti um tímasetningu. Kímni- gáfa er greind. Það er hluti af sam- skiptafærni. Það er gáfa sem hægt er að nota og misnota eins og aðrar gáfur. Á ákveðinn hátt er grín líka heimspeki eða jafnvel lífsstíll. Margir fremstu heimspekingar og hugsuðir hafa verið heillaðir af gríni og haft alls konar hugmyndir um það. Austurríski heimspekingur- inn Ludvig Wittgenstein fullyrti að hægt væri að byggja alvarlegt og gott heimspekiverk á bröndur- um eingöngu. Monty Python hafa líka oft bent á þetta bæði í orðum og verki. Heimspeki grínsins er í grundvallaratriðum sú að lífið sjálft sé svo absúrd að það sé í eðli sínu brandari, við séum brandari sem við séum yfirleitt að taka mun alvarlegar en tilefni sé til. Það eru ekki allir tilbúnir að viðurkenna að þeir séu bara lifandi skrítla. En það kemur alltaf að því. Allt verður skoplegt að lokum, alveg sama hvað okkur finnst það alvarlegt. Og það er svo skrítið að eftir því sem hlut- ir eru álitnir alvarlegri því betri brandarar verða þeir að lokum. Það er bara spurning um tíma. Bandaríski grínistinn Caroll Bur- nett útskýrði þetta á mjög góðan hátt þegar hún sagði: „Comedy is tragedy plus time.“ Það er mikið til í því. Við getum hlegið bæði að Hitler og hörmungum miðalda. Comedy = Tragedy + Time Ég hef starfað sem grín-isti á Íslandi í 25 ár. Það gerðist eiginlega óvart. Ég segi oft að ég „hafi leiðst út í það“. Ég hef alltaf haft mik- inn áhuga á gríni og alltaf verið að fíflast eitthvað. Svo kom að því að ég var beðinn um að skemmta á árshátíð. Svo byrjaði boltinn að rúlla og smátt og smátt varð grín- ið mitt aðalstarf. Ég vann ýmist einn eða með öðrum, á sviði, í sjónvarpi og útvarpi. Mark- mið mitt með gríninu hefur a l ltaf verið að koma fólki á óvart og skemmta því. En grín er ekki bara fíflagangur og bull. Ég hef líka reynt að koma skila- boðum á framfæri og vekja fólk til umhugsunar og skapa umræðu. Grín er mjög góð leið til þess. Ég hef aldrei fengið neitt sérstak- lega út úr því að meiða fólk eða niðurlægja með þessum hæfi- leika mínum. Mér finnst ég bera ábyrgð. Ég er eins og einhver sem kann kung fu. Maður gengur ekki um og lemur fólk bara af því að maður kann kung fu. Eins er með grínið. Trúður = bjáni? Skuggalegur veruleiki í Bandaríkjunum: Land tukthúsanna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.