Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 32

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 32
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Hér er tæpt á nokkru af því fjölmarga sem er á döfinni um helgina og vonandi getur það hjálpað einhverjum til þess að finna eitthvað sem gleður og lyftir andanum í dagsins önn og amstri. Ekki er verra að hafa í huga að á hátíðinni er fjöldi viðburða ókeypis og margir þeirra eru einmitt tilgreindir hér. Svo nú er bara að setja kaffi á brúsa, smyrja nokkrar samlokur og skella sér af stað. Góða skemmtun. RÖLTU RÚNTINN Eitt það skemmtilegasta við Listahá- tíðina í Reykjavík í ár er aukin virkni smærri sýningarrýma. Í Gallery Gamma í Garðastrætinu er einstaklega áhugaverð sýning á verkum listakonunnar Dorothy Iannone sem alla tíð hefur storkað viðmiðum ríkjandi menningar í list- sköpun sinni og lífssýn. Á síðustu árum hafa verið haldnar yfirlits- sýningar á verkum hennar, m.a. í New Museum í New York og Berlinische Galerie í Berlín og nú er hún komin til Reykjavíkur. Á Frakkastígnum er líka skemmtileg sýning. Þar sýna stór nöfn í íslenskri myndlist útisýningu í portinu við Frakkastíg 9, á húsveggjum og í garðinum. Kosningaþátttaka kvenna í 100 ár er viðfangsefnið í bráðskemmtilegri sýningu í brakandi fersku lofti. Í Týsgalleríi er sýningin Holning eftir Bryndísi Hrönn Ragnarsdóttir og Hulda Hákon sýnir hjá Tveimur hröfnum. Í Hverfisgalleríi er Ásdís Sif Gunnars- dóttir að sýna myndbandsverkið Misty Rain – á mörkum kvik- myndar og vídeó-innsetningar. Í heimahúsi að Þingholtsstræti 27 gefur að líta sýninguna Í tíma og ótíma. Þar sýna fimm listamenn í íbúð sameiginlegrar vinkonu. Á Listasafni ASÍ gefur svo að líta sýninguna Frenjur og fórnarlömb, konur um konur, svo af nógu er að taka og það kostar ekkert á ofan- greindar sýningar. Einnig er tilvalið að huga að sýning- unni Furðuveröld Lísu, ævintýra- heimur óperunnar– verkefni í vinnslu á Listasafni Einars Jóns- sonar. Sýningin er innblásin af nýrri óperu eftir John A. Speight tónskáld og Böðvar Guðmundsson rithöfund. Aðgangseyrir er 2.000 kr. Kíktu í kökuveislu, röltu rúntinn og farðu á stofutónleika Það mikilvægasta til þess að vel takist til með Listahátíðina í Reykjavík er líkast til þátttaka borgarbúa. Hátíðin hófst í vikunni og virðist fara vel af stað og mætingin er góð. Enda er það umfram allt það sem að er stefnt; að listin komi til fólksins og fólkið til listarinnar. VOCAL– RÚRÍ FURÐUVERÖLD LÍSU, ÆVINTÝRAHEIMUR ÓPERUNNAR OG KÖKUVEISLA Laugardaginn er tilvalið að byrja kl. 13 í Nýlistasafninu í Reykjavík og er aðgangur ókeypis. Í verkinu OG býður Steinunn Gunnlaugsdóttir í fjöruga kökuveislu í Nýlistasafninu, þar sem alræmd hugtök halda uppi góða skapinu og gómsæt samtenging verður á boðstólum. Kökuveislan hefst stundvíslega kl. 13 og stendur eingöngu yfir í 30 mínútur en eftir- málar gjörningsins verða til sýnis til 7.júní. Athugaðu að Nýlistasafnið er í Völvufelli 13-21 og þaðan er tilvalið að taka strætó eða bruna í miðborg- ina í meiri skemmtilegheit. Í Nýlistasafninu er líka sýningin Vor- verk eftir Kristínu Helgu Káradóttur. Þar fangar listakonan komu vorsins með tilheyrandi togstreitu við hið innra og hið ytra. RÚRÍ EÐA Á SUNNUDAGINN Athugaðu að sumt af því sem er í boði í dag verður ekki endilega opið á morgun, kannaðu því málið á vef Listahátíðar, listahatid.is, áður en þú leggur af stað. Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur er líka ókeypis sýning sem verður opnuð á sunnudaginn og kallast Verksummerki. Sýning sem fjallar um huglægar og nærgöngular tilhneigingar í íslenskri samtímaljós- myndun. UTAN REYKJAVÍKUR NÝJABRUM Í STOFUNNI SUNNU- DAGSSÆLA Á sunnudagseftirmiðdag er tilvalið að taka frá tíma fyrir tónleikana Nýjabrum í stofunni að Óðinsgötu 7, fjórðu hæð til hægri. Tón- skáldin Daníel Bjarnason, Haukur Tómasson og María Huld Markan Sigfúsdóttir hafa öll samið tónverk á árinu sem verða flutt á tónleikum á einkaheimili á Óðinsgötu með útsýni yfir Kvosina. Aðgangseyrir er 3.900 krónur og um að gera að tryggja sér miða í tíma því stofan tekur vart endalaust við. Það eru líka viðburðir utan Reykja- víkur. Í Gerðarsafni í Hamraborginni í Kópavogi er merkileg samsýning íslenskra listamanna þar sem unnið er út frá steindum gluggum Gerðar Helgadóttur (1928-1975) sem má finna í Skálholtskirkju, Kópavogskirkju og víðar. Í Kópavogskirkju á laugardaginn kl. 16 er á ferðinni vídeó- og tónlistar- gjörningurinn Doríon eftir Doddu Maggý. Sérstaklega saminn í tilefni sýningarinnar Birting í Gerðarsafni. Það er vart hægt að halda því fram að maður sé ekki í bænum þegar maður er í Kópavogi en með Listasafn Árnesinga gegnir öðru máli. Þar verður opnuð í dag sýningin Geymar þar sem gestum er boðið að ganga inn í myndheim Sirru. Allar þessar sýningar eiga það sam- eiginlegt að það kostar ekkert inn. Rúrí er án efa einn fremsti mynd- listarmaður okkar Íslendinga. Verk hennar er að finna í opinberum söfnum og einkasöfnum víða um heim og og útiverk hennar hafa mörg hver verið áberandi bæði hér heima og í Svíþjóð og á Ítalíu svo eitthvað sé nefnt. Í dag, laugardag, kl. 18 í Norðurljósa- sal Hörpu verður nýr gjörningur eftir Rúrí sem hún kallar Lindur– Vocal VII. Verkið er stórt í sniðum og hluti af gjörningaröð hennar Vocal sem hún hefur sýnt víða um heim. Aðgangseyrir er 2.900 kr. og ætti þeim að vera vel varið enda spenn- andi verk hér á ferðinni. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is DORÍÓN VÍDEÓ- OG TÓNLISTARGJÖRNINGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.