Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 35

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 35
LAUGARDAGUR 16. maí 2015 | HELGIN | 35 Ég er hræddur um að með þessu lendum við í átökum við Mannréttinda- dómstólinn og ekki vil ég að við yfirgefum hann. David Davis, einn þingmanna Íhaldsflokksins. BRESKA ÞINGIÐ Tony Blair forsætisráðherra í ræðustól árið 1999, en hann var forsætisráðherra þegar mannréttindalögin voru sett. Abu Qatada er jórdanskur Palestínumaður, sagður predika hatursboðskap og grunaður um tengsl við Al-kaída. Hann var handtekinn í Bretlandi árið 2002 og sendur þaðan til Jórdaníu árið 2013 eftir að Jórdanir höfðu full- vissað Breta um að hann myndi ekki sæta pyntingum. Í júní 2014 var hann svo sýknaður í Jórdaníu af ákærum um aðild að hryðju- verkum. Bresk stjórnvöld hugðust vísa honum úr landi strax eftir að hann var handtekinn árið 2002, en hann barðist hart gegn brott- vísun og tóku þau málaferli meira en áratug. ABU QATADA ABU QATADA Orðinn frjáls maður ásamt móður sinni í Jórdaníu eftir sýknun í júní á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Ertu með góða hugmynd fyrir Menningarnótt? Menningarnótt fagnar 20 ára afmæli sínu þann 22. ágúst nk. Við ætlum að fagna þessum merku tímamótum með því að styrkja skemmtilega og frumlega viðburði. Viðburðir hátíðarinnar eiga sér stað víðsvegar um borgina, m.a. á torgum, í portum, görðum, galleríum, verslunum, menningarstofnunum og heimahúsum. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Við úthlutun í ár verður kastljósinu beint að viðburðum á torgum mið- borgarinnar; nýjum og gömlum, stór- um og litlum, fundnum og földum. Sú tenging er þó ekki skilyrði fyrir styrk- veitingu. Við tökum vel á móti öllum umsóknum. Menningarnæturpotturinn er samstarfs- verkefni Höfuðborgarstofu og Landsbank- ans sem hefur verið máttarstólpi Menn- ingarnætur frá upphafi. Veittir verða styrkir úr pottinum, 50- 200.000 kr. til einstaklinga og hópa sem vilja skipuleggja ölbreytta og áhugaverða viðburði á Menningarnótt. Tekið er við umsóknum um styrki úr sjóðnum til og með 1. júní á www.menningarnott.is. Nánari upplýsingar um styrki hátíðarinnar veita viðburðastjórar Höfuðborgarstofu í síma 590 1500 og á menningarnott@ reykjavik.is. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA mála. Ætli bresk stjórnvöld sér að nota innlend lög til þess að komast hjá því að hlíta ákvæðum Mann- réttindasáttmálans, þá má fastlega reikna með því að Mannréttinda- dómstóllinn fari fljótlega að skipta sér af því. Norður-Írland í uppnámi Áform Camerons mæta einnig harðri andstöðu frá Norður- Írlandi, því mannréttindalögin eru nefnilega partur af friðar- samkomulaginu sem gert var á Norður- Írlandi föstudaginn langa árið 1998. Að friðarsamkomulaginu stóðu bæði bresk og írsk stjórnvöld ásamt átta norðurírskum stjórnmála- flokkum og samtökum, bæði úr röðum sambandssinna og aðskiln- aðarsinna. Bresk stjórnvöld skuld- bundu sig, rétt eins og hinir aðil- ar samningsins, til þess að virða hann í einu og öllu, þar á meðal skýrt ákvæði um að bresku mann- réttindalögin séu partur af honum. „Utanríkisráðherrann ætti án tafar að útskýra stöðu stjórnarinn- ar varðandi það hvort hún ætli sér með þessum hætti að brjóta samn- inginn sem gerður var í Belfast föstudaginn langa,“ hafði breska dagblaðið The Guardian nú í vik- unni eftir Brian Gormally, fram- kvæmdastjóra norðurírsku mann- réttindasamtakanna CAJ. „Skref af því tagi myndi gera Bretland að útlagaríki á alþjóðavettvangi og grafa verulega undan friðarsam- komulaginu á Norður-Írlandi.“ Írsk stjórnvöld hafa sömu- leiðis látið skýrt í ljós að þau muni standa með Norður-Írum í þessu máli. „Það er nauðsynlegt að virða algjörlega það grundvallarhlut- verk mannréttinda að tryggja frið og stöðugleika á Norður-Írlandi,“ er haft eftir Charlie Flanagan, utanríkiráðherra írsku stjórnar- innar, í BBC. Yfirborðsbreytingar einar? Nýja stjórnin kom saman á sinn fyrsta vikulega fund strax á þriðjudaginn var. Á mánudaginn kemur svo nýkjörið þing saman í fyrsta sinn. Elísabet drottning les síðan stefnuskrá nýrrar stjórnar miðvikudaginn 27. maí, en stefnu- ræða sú er venju samkvæmt fyrst og fremst listi yfir þau frumvörp sem stjórnin ætlar að leggja fyrir þingið næsta árið. Það verður Michael Gove, dóms- málaráðherra nýju stjórnarinnar, sem fær það hlutverk að koma þessum breytingum á. Cameron hefur óskað eftir því að drög að frumvarpi liggi fyrir innan hundr- að daga, eða ekki síðar en í byrjun ágúst. Hans bíða í raun tveir kostir: Annaðhvort verða gerðar veru- legar breytingar sem kosta það að bresk stjórnvöld lenda fljótlega upp á kant við Mannréttindadóm- stól Evrópu, eða breytingarnar verða fyrst og fremst á yfirborð- inu og hafa í raun lítið að segja.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.