Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 38

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 38
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Margrét var á fullu í garðstörfum þegar við náðum tali af henni. „Við erum búin að bera á pall- inn, pússa garðhúsgögnin og taka til í garðinum eftir vetur- inn,“ sagði hún. „Við tókum okkur frí, notuðum þurrkinn til að láta hendur standa fram úr ermum. Tiltekt í bílskúrnum er næst á dagskrá og við ætlum að nota helgina í hana,“ segir Margrét sem býr í suðurhlíðum Kópavogs og er með stóran og skjólgóðan garð. „Fyrir nokkr- um árum vorum við að spá í að kaupa okkur sumarbústað. Ákváðum síðan að hafa sumar- húsið í garðinum, byggðum stóran pall og fengum okkur pott. Það er mjög notalegt í garðinum á góðviðrisdögum. BARNABÓK Á LEIÐINNI Annars er ég mest að fást við ritstjórn og ritstörf. Ég er að skrifa bók fyrir krakka sem verður um Ísland og kemur út næsta vor. Bókina er ég að vinna með teiknara og hún er vel á veg komin. Þetta er bók fyrir breiðan aldur,“ útskýrir Margrét en þetta er fjórða barnabókin hennar. „Það er óhemju skemmtilegt að fást við þetta verkefni,“ segir hún. Margrét er bókmenntafræð- ingur að mennt og starfaði sem ritstjóri hjá Máli og menningu og síðan Eddu útgáfu en var svo sjálfstætt starfandi. Hún var auk þessa að ljúka við ritstjórn á texta í ferðamannabók. Þar fyrir utan hefur hún nóg að gera í textagerð fyrir hin ýmsu fyrir- tæki. AFTUR Á ÞING Margrét segist sakna stjórn- málavafstursins að sumu leyti og segist vel geta hugsað sér að fara aftur á þing. „Ég er reyndar fegin að vera ekki á þingi á þess- um tíma ársins þegar störfin fara í sinn ljótasta ham. En ég á eftir að koma í gegn einni stjórnarskrá eða svo. Það var ótrúlega mikil og góð reynsla sem ég fékk á Alþingi og er mjög þakklát fyrir hana,“ segir Margrét, sem fylgist vel með öllu því sem gerist í íslenskum stjórnmálum. „Ég er með nefið niðri í öllu sem viðkemur póli- tík,“ segir hún. „Ég les meira að segja frumvörp. Mér finnst ástandið hörmulegt á Alþingi. Pólitíkin virðist í pattstöðu en mér finnst samt eins og það sé eitthvað í farvatninu. Það er svo mikil spenna í loftinu að hún hlýtur að brjótast út fyrr en seinna. Ég veit ekki hvað gæti gerst en við getum ekki verið í svona spennu endalaust. Það hefur svo margt verið í kyrr- stöðu, gjaldeyrishöftin eru hér enn, að ég tali ekki um stöðuna á vinnumarkaði. Sumir stjórn- málamenn eru ekki í tengslum við almenning. Þeir vita ekki hvernig lífið gengur fyrir sig hjá hinum almenna launþega,“ segir Margrét sem segist vera í góðu sambandi við alþingismenn úr mörgum flokkum. ENGINN FLOKKUR ÁHUGAVERÐUR Margrét segist alltaf hafa verið pólitísk en eiga erfitt með að samsama sig einhverjum einum flokki. Þegar hún er spurð með hvaða flokki hún vilji helst vinna, svarar hún: „Ég á von á því að landslagið í pólitík verða breytt þegar kemur að næstu kosningum. Ég finn mig ekki með þeim flokkum sem eru starfandi núna en hef mikla trú á meiri samvinnu á vinstri vængnum. Ég mun fylgjast vel með því sem gerist á næstunni. Það hefur verið mikið rót í þjóð- félaginu eftir hrunið en breyt- ingarnar liggja í loftinu.“ ER FERÐASJÚK Margrét segist eiga mörg áhuga- mál fyrir utan stjórnmálin. „Ég er ferðasjúk. Mér finnst gaman að skreppa í styttri ferðir á hjóli. Svo hef ég líka gaman af því að fara í lengri ferðir. Um páskana fórum við á skíði í Kan- ada og eyddum svo páskum í Seattle sem var ótrúlega gaman. Í fyrra hjóluðum við meðfram Dóná en ég ætla að vera dugleg að hjóla um höfuðborgarsvæðið í sumar. Mér finnst gaman að skoða mig um á hjóli. Maður upplifir umhverfið á annan hátt en þegar ekið er um í bíl. Ég hef líka mjög mikinn áhuga á bók- menntum og myndlist. Svo á ég hund sem ég dýrka. Öll útivera og hreyfing er mér að skapi en svo er ég líka góður kokkur. Ég vil elda fallegan mat frá grunni og hann þarf að vera hollur.“ Margrét segist hafa verið alin upp í hjálparsveit skáta. Faðir hennar, Tryggvi Páll Frið- riksson, var formaður Lands- sambands hjálparsveitanna og síðan einn framkvæmdastjóra Landsbjargar. Margrét er gift Jóhanni Ágústi Hansen, við- skiptafræðingi og listaverkasala hjá Gallerí Fold, en þau eiga tvo syni, annar þeirra er fluttur að heiman. Margrét hefur haldið úti bloggi á herdubreid.is. BREYTINGAR LIGGJA Í LOFTINU NÓG AÐ GERA Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi alþingismaður, er að skrifa barnabók sem fjallar um Ísland. Hún saknar stjórnmálavafstursins og stefnir á stjórnmálaþátttöku á nýjan leik. Enginn flokkur hentar henni þó núna. MEÐ MÖRG ÁHUGAMÁL Margrét segist alltaf vera með nefið niðri í pólitíkinni. En hún hefur mörg önnur áhugamál líka; garðyrkju, hjólaferðir og bóklestur. MYND/GVA ALLT AÐ GERAST „Ég á von á því að landslagið í pólitík verða breytt þegar kemur að næstu kosningum. Ég finn mig ekki með þeim flokkum sem eru starfandi núna en hef mikla trú á meiri samvinnu á vinstri vængnum.“ w w w .s u p e rb e e ts .i s - vi te x. is Rauðrófu kristall Betra blóðflæði - Betri heilsa Superbeets Nitric Oxide allt að 5 sinnum öflugra 1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa Nitric Oxide Nóbelsverðlaun 1998 Sameind ársins 1992 Uppgötvun á Nitric Oxide var upphafið á framleiðslu rislyfja Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum NÝTT w w w .z e n b ev .i s - U m b o ð : vi te x e h f Betri og dýpri svefn Engin eftirköst eða ávanabinding Melatónin Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is úr graskersfræjum ZenBev - náttúrulegt Triptófan Vísindaleg sönnun á virkni sjá vitex.is Tvær bragðtegundir sítrónu og súkkulaði Melatónín er talið minnka líkur á blöðruhálskirtilskrabbameini sjá vitex.is Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide byrjar í munni, þess vegna er SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi. Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Til sölu er tískuverslunin Tuzzi í Kringlunni. Verslunin hefur verið rekin um fimm ára skeið og er þekkt fyrir vandaðan kvenfatnað. Verslunin er með trygg og góð viðskiptasambönd. Tuzzi hefur skapað sér ákveðna sérstöðu og á tryggan hóp viðskiptavina. Verslunin er í 100 m2 leiguhúsnæði með langan leigusamning. Reksturinn hefur gengið vel og skilað ágætum hagnaði. Áhugasamir hafi samband við jens@kontakt.is H a u k u r 0 5 .1 5
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.