Fréttablaðið - 16.05.2015, Síða 38
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Margrét var á fullu í garðstörfum þegar við náðum tali af henni.
„Við erum búin að bera á pall-
inn, pússa garðhúsgögnin og
taka til í garðinum eftir vetur-
inn,“ sagði hún. „Við tókum
okkur frí, notuðum þurrkinn til
að láta hendur standa fram úr
ermum. Tiltekt í bílskúrnum er
næst á dagskrá og við ætlum
að nota helgina í hana,“ segir
Margrét sem býr í suðurhlíðum
Kópavogs og er með stóran og
skjólgóðan garð. „Fyrir nokkr-
um árum vorum við að spá í
að kaupa okkur sumarbústað.
Ákváðum síðan að hafa sumar-
húsið í garðinum, byggðum
stóran pall og fengum okkur
pott. Það er mjög notalegt í
garðinum á góðviðrisdögum.
BARNABÓK Á LEIÐINNI
Annars er ég mest að fást við
ritstjórn og ritstörf. Ég er að
skrifa bók fyrir krakka sem
verður um Ísland og kemur
út næsta vor. Bókina er ég að
vinna með teiknara og hún er
vel á veg komin. Þetta er bók
fyrir breiðan aldur,“ útskýrir
Margrét en þetta er fjórða
barnabókin hennar. „Það er
óhemju skemmtilegt að fást við
þetta verkefni,“ segir hún.
Margrét er bókmenntafræð-
ingur að mennt og starfaði sem
ritstjóri hjá Máli og menningu
og síðan Eddu útgáfu en var svo
sjálfstætt starfandi. Hún var
auk þessa að ljúka við ritstjórn
á texta í ferðamannabók. Þar
fyrir utan hefur hún nóg að gera
í textagerð fyrir hin ýmsu fyrir-
tæki.
AFTUR Á ÞING
Margrét segist sakna stjórn-
málavafstursins að sumu leyti
og segist vel geta hugsað sér að
fara aftur á þing. „Ég er reyndar
fegin að vera ekki á þingi á þess-
um tíma ársins þegar störfin
fara í sinn ljótasta ham. En ég
á eftir að koma í gegn einni
stjórnarskrá eða svo. Það var
ótrúlega mikil og góð reynsla
sem ég fékk á Alþingi og er
mjög þakklát fyrir hana,“ segir
Margrét, sem fylgist vel með
öllu því sem gerist í íslenskum
stjórnmálum. „Ég er með nefið
niðri í öllu sem viðkemur póli-
tík,“ segir hún. „Ég les meira
að segja frumvörp. Mér finnst
ástandið hörmulegt á Alþingi.
Pólitíkin virðist í pattstöðu en
mér finnst samt eins og það sé
eitthvað í farvatninu. Það er
svo mikil spenna í loftinu að
hún hlýtur að brjótast út fyrr en
seinna. Ég veit ekki hvað gæti
gerst en við getum ekki verið í
svona spennu endalaust. Það
hefur svo margt verið í kyrr-
stöðu, gjaldeyrishöftin eru hér
enn, að ég tali ekki um stöðuna
á vinnumarkaði. Sumir stjórn-
málamenn eru ekki í tengslum
við almenning. Þeir vita ekki
hvernig lífið gengur fyrir sig hjá
hinum almenna launþega,“ segir
Margrét sem segist vera í góðu
sambandi við alþingismenn úr
mörgum flokkum.
ENGINN FLOKKUR
ÁHUGAVERÐUR
Margrét segist alltaf hafa verið
pólitísk en eiga erfitt með að
samsama sig einhverjum einum
flokki. Þegar hún er spurð með
hvaða flokki hún vilji helst
vinna, svarar hún: „Ég á von
á því að landslagið í pólitík
verða breytt þegar kemur að
næstu kosningum. Ég finn mig
ekki með þeim flokkum sem
eru starfandi núna en hef mikla
trú á meiri samvinnu á vinstri
vængnum. Ég mun fylgjast vel
með því sem gerist á næstunni.
Það hefur verið mikið rót í þjóð-
félaginu eftir hrunið en breyt-
ingarnar liggja í loftinu.“
ER FERÐASJÚK
Margrét segist eiga mörg áhuga-
mál fyrir utan stjórnmálin. „Ég
er ferðasjúk. Mér finnst gaman
að skreppa í styttri ferðir á
hjóli. Svo hef ég líka gaman af
því að fara í lengri ferðir. Um
páskana fórum við á skíði í Kan-
ada og eyddum svo páskum í
Seattle sem var ótrúlega gaman.
Í fyrra hjóluðum við meðfram
Dóná en ég ætla að vera dugleg
að hjóla um höfuðborgarsvæðið
í sumar. Mér finnst gaman að
skoða mig um á hjóli. Maður
upplifir umhverfið á annan hátt
en þegar ekið er um í bíl. Ég hef
líka mjög mikinn áhuga á bók-
menntum og myndlist. Svo á ég
hund sem ég dýrka. Öll útivera
og hreyfing er mér að skapi en
svo er ég líka góður kokkur. Ég
vil elda fallegan mat frá grunni
og hann þarf að vera hollur.“
Margrét segist hafa verið
alin upp í hjálparsveit skáta.
Faðir hennar, Tryggvi Páll Frið-
riksson, var formaður Lands-
sambands hjálparsveitanna og
síðan einn framkvæmdastjóra
Landsbjargar. Margrét er gift
Jóhanni Ágústi Hansen, við-
skiptafræðingi og listaverkasala
hjá Gallerí Fold, en þau eiga tvo
syni, annar þeirra er fluttur að
heiman. Margrét hefur haldið
úti bloggi á herdubreid.is.
BREYTINGAR
LIGGJA Í LOFTINU
NÓG AÐ GERA Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi alþingismaður, er að skrifa
barnabók sem fjallar um Ísland. Hún saknar stjórnmálavafstursins og stefnir á
stjórnmálaþátttöku á nýjan leik. Enginn flokkur hentar henni þó núna.
MEÐ MÖRG ÁHUGAMÁL Margrét segist alltaf vera með nefið niðri í pólitíkinni. En
hún hefur mörg önnur áhugamál líka; garðyrkju, hjólaferðir og bóklestur. MYND/GVA
ALLT AÐ GERAST
„Ég á von á því að landslagið í
pólitík verða breytt þegar kemur
að næstu kosningum. Ég finn
mig ekki með þeim flokkum sem
eru starfandi núna en hef mikla
trú á meiri samvinnu á vinstri
vængnum.“
w
w
w
.s
u
p
e
rb
e
e
ts
.i
s
-
vi
te
x.
is
Rauðrófu kristall
Betra blóðflæði - Betri heilsa
Superbeets Nitric Oxide allt að 5 sinnum öflugra
1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Nitric Oxide
Nóbelsverðlaun 1998
Sameind ársins 1992
Uppgötvun á Nitric Oxide
var upphafið á framleiðslu
rislyfja
Eftir fertugt
framleiðir líkaminn
50% minna Nitric Oxide
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Upplýsingar í síma
896 6949 og www.vitex.is
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
NÝTT
w
w
w
.z
e
n
b
ev
.i
s
-
U
m
b
o
ð
:
vi
te
x
e
h
f
Betri og dýpri
svefn
Engin eftirköst eða ávanabinding
Melatónin
Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is
úr graskersfræjum
ZenBev - náttúrulegt Triptófan
Vísindaleg sönnun á virkni
sjá vitex.is
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
Melatónín er talið minnka líkur
á blöðruhálskirtilskrabbameini
sjá vitex.is
Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide
byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi,
en ekki töfluformi.
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Til sölu er tískuverslunin Tuzzi í Kringlunni.
Verslunin hefur verið rekin um fimm ára skeið og er þekkt
fyrir vandaðan kvenfatnað.
Verslunin er með trygg og góð viðskiptasambönd.
Tuzzi hefur skapað sér ákveðna sérstöðu
og á tryggan hóp viðskiptavina.
Verslunin er í 100 m2 leiguhúsnæði
með langan leigusamning.
Reksturinn hefur gengið vel og skilað ágætum hagnaði.
Áhugasamir hafi samband við jens@kontakt.is
H
a
u
k
u
r
0
5
.1
5