Fréttablaðið - 16.05.2015, Síða 53
| ATVINNA |
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
óska eftir matreiðslukennara í fullt starf
Framhaldsskólaréttindi og starfsreynsla skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2015.
Umsóknir berist til Hússtjórnarskólanns í Reykjavík,
Sólvallagötu 12, 101 Reykjavík
Leikskólastjóri
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir leikskólastjóra vegna
leyfis frá og með 1. ágúst 2015 við:
• Leikskólann Brimver/Æskukot
Leikskólinn er með tvær starfseiningar, Brimver á Eyrar-
bakka og Æskukot á Stokkseyri.
Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur mikla áherslu á
hreyfingu og tónlist. Leikskólinn er í góðu samstarfi við
Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri og eru leikskóla-
börnin þátttakendur í verkefninu Barnabæ sem hlotið hefur
mikla athygli og viðurkenningu Heimilis og skóla.
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum stjórnanda
með leikskólakennararéttindi og stjórnunarreynslu.
Í sveitarfélaginu búa rúmlega 8 þúsund manns, lögð er
áhersla á eflingu skólastarfs, snemmtæka íhlutun og gott
samstarf foreldra og helstu fagaðila sem koma að málefnum
barnanna.
Meginverkefni:
- Veita faglega forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi.
- Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fjármálum og
rekstri skólans.
- Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal
annars mið af skólastefnu sveitarfélagsins og aðalnám
skrá leikskóla.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi áskilin.
- Menntun og reynsla í stjórnun æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Leiðtoga- og skipulagshæfileikar.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðs-
lustjóri, sími 480-1900, 852-3918. Áhugasamir geta sent
umsóknir á skolathjonusta@arborg.is eða í pósti merktum
fræðslusviði Árborgar v/leikskólastjóra, Austurvegi 2, 800
Selfoss. Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015 . Karlar jafnt
sem konur eru hvattir til að sækja um störfin. Laun fara eftir
kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi
stéttarfélags.
Deildarstjóri
Leikskólinn Brimver/Æskukot óskar eftir að ráða í tvær
stöður deildarstjóra frá og með 10. ágúst 2015. Leitað er að
metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka
þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.
Meginverkefni:
Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og
menntun leikskólabarna.
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasam-
starfs undir stjórn leikskólastjóra.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi áskilin
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar veitir M. Sigríður Jakobsdóttir, sími
4803272/4806352 og áhugasamir geta sent umsóknir á
netfangið brimver@arborg.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Spennandi störf í boði
Finnst þér gaman að vinna
fjölbreytt starf í
skemmtilegu vinnuumhverfi?
Þá er þetta starf fyrir þig
Ás styrktarfélag leitar eftir starfsmönnum til að
aðstoða fatlað fólk sem býr í heimahúsum. Um er
að ræða full störf, hlutastörf, tímavinnu og suma-
rafleysingar, strax eða eftir nánara samkomulagi.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Frekari upplýsingar veitir Hrafnhildur Þórðardóttir í
síma 4140500. Atvinnuumsóknir sendist á
hrafnhildur@styrktarfelag.is, en einnig má senda um-
sóknir á heimasíðu félagsins www.styrktarfelag.is.
Laun eru samkvæmt gildandi
kjarasamningum Eflingar.
Skólastjóri Grunnskóla Grundarfjarðar
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skólastjóra Grunnskóla
Grundarfjarðar laust til umsóknar.
Skólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans,
stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar stefnu í
samstarfi við skólanefnd og bæjarstjórn.
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum og er
reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi
er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
• Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og
leiðtogahæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Í Grunnskóla Grundarfjarðar stunda tæplega 100 nemendur
nám. Talsvert er um samkennslu árganga sem hefur skapað
áhugaverð tækifæri. Skólinn er vel búinn tækjum og hann er í
fararbroddi grunnskóla á landinu í spjaldtölvuvæðingu.
Umsóknum um ofangreint starf skal fylgja greinargott yfirlit yfir
menntun, fyrri störf, ábendingar um meðmælendur og annað það
sem umsækjandi telur máli skipta.
Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri og skrifstofustjóri í síma 430
8500 eða með því að senda fyrirspurnir á
thorsteinn@grundarfjordur.is eða sigurlaug@grundarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Mælingamaður
Meistarafélag húsasmiða óskar eftir að ráða
starfsmann til að starfa á mælingastofu félagins.
Um er að ræða 50% starf við mælingar og
útreikning á ákvæðisvinnu húsasmiða.
Leitað er eftir töluglöggum aðila með góða
tölvukunnáttu og þekkingu á byggingaiðnaði.
Góð vinnuaðstaða.
Umsóknir sendist á netfangið jon@mfh.is
Trésmiðir
Einar P. & Kó óskar eftir að ráða öfluga smiði í
vinnu sem geta unnið sjálfstætt.
Mikil vinna framundan.
Þyrftu að geta hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist á netfangið :
helgi@epogko.is
Sumarafleysingafólk óskast
Getum bætt við starfsfólki í sumarafleysingar í heimaþjón-
ustu á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Við leitum
að jákvæðum einstaklingum sem hafa ánægju af því að
sinna fólki.
Umsækjendur þurfa að hafa bíl til umráða og geta hafið störf
sem fyrst. Frekari upplýsingar fást í síma 519-1400.
Umsóknum skal skilað inn á heimasíðu Sinnum,
www.sinnum.is
Bæjarhrauni 20
220 Hafnarfjörður
www.vsb.is
Tækni- og verkfræðingar
VSB Verkfræðistofa leitar að tækni- eða
verkfræðingum til framtíðarstarfa á sviði
burðarvirkja og lagna- og loftræsikerfa.
Starf á sviði burðarvirkja felst í hönnun burðarvirkja
bygginga. Starfsreynsla og þekking á AutoCAD og
helstu burðarþolsforritum er nauðsynleg. Frekari upp-
lýsingar gefur Hannes Örn Jónsson (hannes@vsb.is).
Starf á sviði lagna- og loftræsikerfa felst í hönnun
kerfa auk annarra verkefna tengdum verklegum fram-
kvæmdum og rekstri mannvirkja. Starfsreynsla og
þekking á AutoCAD/Magicad er nauðsynleg. Frekari
upplýsingar veitir Sveinn Áki Sverrisson (aki@vsb.is).
Byggingafræðingur eða
byggingariðnfræðingur
VSB Verkfræðistofa leitar að bygginga-
eða byggingariðnfræðingi til starfa sem fyrst
á sviði lagna- og loftræsikerfa.
Starf á sviði lagna og loftræsikerfa felst í gerð teikn-
inga og annarra gagna fyrir lagna- og loftræsikerfi
og verkefna tengdum verklegum framkvæmdum og
rekstri mannvirkja. Sveinspróf eða verkleg reynsla
í pípulögnum eða blikksmíði er nauðsynleg auk þekk-
ingar á AutoCAD eða sambærilegs hugbúnaðar. Frekari
upplýsingar veitir Sveinn Áki Sverrisson (aki@vsb.is)
Umsókn um starf með upplýsingum um menntun,
hæfni og starfsreynslu óskast skilað á skrifstofu
VSB eða á ofangreind netföng eigi síðar en 1. júní.
Fyllsta trúnaðar er gætt.
VSB Verkfræðistofa ehf. veitir fjölbreytta verkfræðilega
ráðgjöf með einkunnarorðunum hagkvæmni, fagmennska
og áreiðanleiki. Stofan rekur sögu sína aftur til ársins 1987
og í dag starfa þar 18 manns.
Sumarafleysingar
Lyngás
Starfsfólk óskast í sumarafleysingar. Um er að
ræða fullt starf og hlutastarf. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Lyngás er í Safamýri 5 og er opið frá 8.00-16.30 á
virkum dögum. Þangað sækja börn og ungmenni
þjónustu.
Frekari upplýsingar veitir Valgerður Unnarsdóttir
í síma 553-8228. Atvinnuumsóknir sendist á
valgerður@styrktarfelag.is, en einnig má senda
umsóknir á heimasíðu félagsins
www.styrktarfelag.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.
LAUGARDAGUR 16. maí 2015 13