Fréttablaðið - 16.05.2015, Page 53

Fréttablaðið - 16.05.2015, Page 53
| ATVINNA | Hússtjórnarskólinn í Reykjavík óska eftir matreiðslukennara í fullt starf Framhaldsskólaréttindi og starfsreynsla skilyrði. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2015. Umsóknir berist til Hússtjórnarskólanns í Reykjavík, Sólvallagötu 12, 101 Reykjavík Leikskólastjóri Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir leikskólastjóra vegna leyfis frá og með 1. ágúst 2015 við: • Leikskólann Brimver/Æskukot Leikskólinn er með tvær starfseiningar, Brimver á Eyrar- bakka og Æskukot á Stokkseyri. Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur mikla áherslu á hreyfingu og tónlist. Leikskólinn er í góðu samstarfi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri og eru leikskóla- börnin þátttakendur í verkefninu Barnabæ sem hlotið hefur mikla athygli og viðurkenningu Heimilis og skóla. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum stjórnanda með leikskólakennararéttindi og stjórnunarreynslu. Í sveitarfélaginu búa rúmlega 8 þúsund manns, lögð er áhersla á eflingu skólastarfs, snemmtæka íhlutun og gott samstarf foreldra og helstu fagaðila sem koma að málefnum barnanna. Meginverkefni: - Veita faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. - Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fjármálum og rekstri skólans. - Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu sveitarfélagsins og aðalnám skrá leikskóla. Menntun og færnikröfur: - Leikskólakennararéttindi áskilin. - Menntun og reynsla í stjórnun æskileg. - Færni í mannlegum samskiptum. - Áhugi og hæfni í starfi með börnum. - Leiðtoga- og skipulagshæfileikar. - Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðs- lustjóri, sími 480-1900, 852-3918. Áhugasamir geta sent umsóknir á skolathjonusta@arborg.is eða í pósti merktum fræðslusviði Árborgar v/leikskólastjóra, Austurvegi 2, 800 Selfoss. Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015 . Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin. Laun fara eftir kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Deildarstjóri Leikskólinn Brimver/Æskukot óskar eftir að ráða í tvær stöður deildarstjóra frá og með 10. ágúst 2015. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum. Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasam- starfs undir stjórn leikskólastjóra. Menntun og færnikröfur: - Leikskólakennararéttindi áskilin - Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji. - Færni í mannlegum samskiptum. - Áhugi og hæfni í starfi með börnum. - Góðir skipulagshæfileikar. - Færni til að tjá sig í ræðu og riti. Frekari upplýsingar veitir M. Sigríður Jakobsdóttir, sími 4803272/4806352 og áhugasamir geta sent umsóknir á netfangið brimver@arborg.is Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015. Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Spennandi störf í boði Finnst þér gaman að vinna fjölbreytt starf í skemmtilegu vinnuumhverfi? Þá er þetta starf fyrir þig Ás styrktarfélag leitar eftir starfsmönnum til að aðstoða fatlað fólk sem býr í heimahúsum. Um er að ræða full störf, hlutastörf, tímavinnu og suma- rafleysingar, strax eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Frekari upplýsingar veitir Hrafnhildur Þórðardóttir í síma 4140500. Atvinnuumsóknir sendist á hrafnhildur@styrktarfelag.is, en einnig má senda um- sóknir á heimasíðu félagsins www.styrktarfelag.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Eflingar. Skólastjóri Grunnskóla Grundarfjarðar Grundarfjarðarbær auglýsir starf skólastjóra Grunnskóla Grundarfjarðar laust til umsóknar. Skólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar stefnu í samstarfi við skólanefnd og bæjarstjórn. Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum og er reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar • Hæfni í mannlegum samskiptum Í Grunnskóla Grundarfjarðar stunda tæplega 100 nemendur nám. Talsvert er um samkennslu árganga sem hefur skapað áhugaverð tækifæri. Skólinn er vel búinn tækjum og hann er í fararbroddi grunnskóla á landinu í spjaldtölvuvæðingu. Umsóknum um ofangreint starf skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, ábendingar um meðmælendur og annað það sem umsækjandi telur máli skipta. Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri og skrifstofustjóri í síma 430 8500 eða með því að senda fyrirspurnir á thorsteinn@grundarfjordur.is eða sigurlaug@grundarfjordur.is Umsóknarfrestur er til 30. maí nk. Mælingamaður Meistarafélag húsasmiða óskar eftir að ráða starfsmann til að starfa á mælingastofu félagins. Um er að ræða 50% starf við mælingar og útreikning á ákvæðisvinnu húsasmiða. Leitað er eftir töluglöggum aðila með góða tölvukunnáttu og þekkingu á byggingaiðnaði. Góð vinnuaðstaða. Umsóknir sendist á netfangið jon@mfh.is Trésmiðir Einar P. & Kó óskar eftir að ráða öfluga smiði í vinnu sem geta unnið sjálfstætt. Mikil vinna framundan. Þyrftu að geta hafið störf fljótlega. Umsóknir sendist á netfangið : helgi@epogko.is Sumarafleysingafólk óskast Getum bætt við starfsfólki í sumarafleysingar í heimaþjón- ustu á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Við leitum að jákvæðum einstaklingum sem hafa ánægju af því að sinna fólki. Umsækjendur þurfa að hafa bíl til umráða og geta hafið störf sem fyrst. Frekari upplýsingar fást í síma 519-1400. Umsóknum skal skilað inn á heimasíðu Sinnum, www.sinnum.is Bæjarhrauni 20 220 Hafnarfjörður www.vsb.is Tækni- og verkfræðingar VSB Verkfræðistofa leitar að tækni- eða verkfræðingum til framtíðarstarfa á sviði burðarvirkja og lagna- og loftræsikerfa. Starf á sviði burðarvirkja felst í hönnun burðarvirkja bygginga. Starfsreynsla og þekking á AutoCAD og helstu burðarþolsforritum er nauðsynleg. Frekari upp- lýsingar gefur Hannes Örn Jónsson (hannes@vsb.is). Starf á sviði lagna- og loftræsikerfa felst í hönnun kerfa auk annarra verkefna tengdum verklegum fram- kvæmdum og rekstri mannvirkja. Starfsreynsla og þekking á AutoCAD/Magicad er nauðsynleg. Frekari upplýsingar veitir Sveinn Áki Sverrisson (aki@vsb.is). Byggingafræðingur eða byggingariðnfræðingur VSB Verkfræðistofa leitar að bygginga- eða byggingariðnfræðingi til starfa sem fyrst á sviði lagna- og loftræsikerfa. Starf á sviði lagna og loftræsikerfa felst í gerð teikn- inga og annarra gagna fyrir lagna- og loftræsikerfi og verkefna tengdum verklegum framkvæmdum og rekstri mannvirkja. Sveinspróf eða verkleg reynsla í pípulögnum eða blikksmíði er nauðsynleg auk þekk- ingar á AutoCAD eða sambærilegs hugbúnaðar. Frekari upplýsingar veitir Sveinn Áki Sverrisson (aki@vsb.is) Umsókn um starf með upplýsingum um menntun, hæfni og starfsreynslu óskast skilað á skrifstofu VSB eða á ofangreind netföng eigi síðar en 1. júní. Fyllsta trúnaðar er gætt. VSB Verkfræðistofa ehf. veitir fjölbreytta verkfræðilega ráðgjöf með einkunnarorðunum hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki. Stofan rekur sögu sína aftur til ársins 1987 og í dag starfa þar 18 manns. Sumarafleysingar Lyngás Starfsfólk óskast í sumarafleysingar. Um er að ræða fullt starf og hlutastarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Lyngás er í Safamýri 5 og er opið frá 8.00-16.30 á virkum dögum. Þangað sækja börn og ungmenni þjónustu. Frekari upplýsingar veitir Valgerður Unnarsdóttir í síma 553-8228. Atvinnuumsóknir sendist á valgerður@styrktarfelag.is, en einnig má senda umsóknir á heimasíðu félagsins www.styrktarfelag.is Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. LAUGARDAGUR 16. maí 2015 13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.