Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 80

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 80
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 48TÍMAMÓT Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, INDRIÐI PÁLSSON fyrrverandi forstjóri, Sóltúni 16, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 13. maí. Elísabet Guðný Hermannsdóttir Sigríður Indriðadóttir Margeir Pétursson Einar Páll Indriðason Halla Halldórsdóttir Elísabet Margeirsdóttir, Indriði Einarsson, Halldór Einarsson og Ingibjörg Einarsdóttir Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar, bróður og mágs, EGILS STEINGRÍMSSONAR Þórunnarstræti 127, Akureyri. Sérstakar þakkir til allra þeirra er sinntu honum í veikindum hans. Unnur Hreiðarsdóttir Hanna Sóley Egilsdóttir Þóra Ásgeirsdóttir Birgir Steingrímsson Finnur Steingrímsson Erla Sigurgeirsdóttir Kristján Steingrímsson Harpa Sigurðardóttir Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MARÍU FRIÐRIKSDÓTTUR Sólvöllum 13, Selfossi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 21. apríl síðastliðinn. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 3S á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka alúð og umhyggju. Hafþór Magnússon Sólveig Höskuldsdóttir Einar Baldvin Sveinsson Jóna Sólmundsdóttir Guðný María Hauksdóttir Kristín Fjóla Bergþórsdóttir Guðmundur Örn Böðvarsson og ömmubörnin öll. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA MARGRÉT FREDERIKSEN dvalarheimilinu Grund, áður til heimilis að Laufskógum 8, Hveragerði, sem lést föstudaginn 8. maí á Landspítalanum í Fossvogi verður jarðsungin frá Hrepphólakirkju í Hrunamannahreppi föstudaginn 22. maí klukkan 14.00. Grétar Páll Ólafsson Gyða Ingunn Kristófersdóttir Halldór Þórður Ólafsson Guðmunda Sigfúsdóttir Reynir Ólafsson Jónína Sigmarsdóttir Klara Stephensen Ólafur Stephensen barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, SOFFÍU GUÐMUNDSDÓTTUR Þökkum starfsfólki Dalbæjar fyrir frábæra umönnun. Guðmundur Heiðar Óskarsson Arna Gerður Hafsteinsdóttir Rakel María Óskarsdóttir Gunnar Guðmundsson Þóra Kristín Óskarsdóttir Haukur Jónsson Óskar Aðalsteinn Óskarsson Anna Hafdís Jóhannesdóttir Rannveig Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum af heilum hug hlýjar kveðjur sem bárust við andlát okkar kæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, PÁLS SKÚLASONAR heimspekings. Sérstakar þakkir til starfsfólks deilda 11G og 11B á Landspítala fyrir einstaka alúð. Auður Birgisdóttir Birgir Pálsson Regína Ásvaldsdóttir Kolbrún Þ. Pálsdóttir Róbert Haraldsson Andri Páll Pálsson Brynja Þóra Guðnadóttir og barnabörn. Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, SIGRÚNAR BERGSDÓTTUR frá Hnappavöllum í Öræfum, sem lést þann 13. apríl síðastliðinn. Guðmundur B. Þórðarson Rósa G. Daníelsdóttir Stefanía L. Þórðardóttir Heiðar B. Erlingsson og barnabörnin. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Á þessum degi árið 1929 voru Óskars- verðlaunin afhent í Hollywood í fyrsta sinn. Athöfnin var haldin í Blossom-her- berginu á Roosevelt-hótelinu í Holly- wood að viðstöddum 250 manns. Louis B. Mayer, þáverandi yfirmaður MGM-kvikmyndaversins, var upphafs- maður verðlaunanna. Vildi hann með Óskarinum stuðla að framþróun í kvikmyndaiðnaðinum. Kynnir á fyrstu Óskarshátíðinni var leikarinn Douglas Fairbanks. Ólíkt því sem nú er var tilkynnt um sigurvegarana áður en athöfnin sjálf fór fram. Breyttist sú tilhögun ekki fyrr en árið 1942. Fyrsta kvikmyndin sem var valin besta myndin var hin þögla Wings, sem er eina þögla myndin í sögunni til að hljóta Óskarsverðlaunin. Þjóðverjinn Emil Jannings var kjörinn besti leikarinn fyrir hlutverk sín í The Last Command og The Way of All Flesh. Hin 22 ára Janet Gaynor var valin besta leikkonan fyrir hlutverk sín í Seventh Heaven, Street Angel og Sunrise. Leikarinn og leikstjórinn Charlie Chapl- in hlaut heiðursverðlaun við athöfnina. Þurfti hann að bíða til ársins 1971 til að hljóta önnur Óskarsverðlaun og var þá líka um heiðursverðlaun að ræða. ÞETTA GERÐIST: 16. MAÍ 1929 Óskarsverðlaunin afh ent í fyrsta sinn „Að sjálfsögðu verður svaka partí í kvöld,“ segir rapparinn, uppistandar- inn og gleðigjafinn Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. Hann stendur á miklum tíma- mótum í dag því hann fagnar þrjátíu ára afmæli sínu og ætlar að gera það með glæsibrag. „Partíið verður fyrir velunnara og þar verð ég með þemað vestræn gildi,“ segir Dóri. Þema partísins, hin vestrænu gildi, kom til þegar hann var steggjaður. „Steggjunin mín endaði í partíi hjá for- eldrum mínum í Mosfellsdalnum. Við stálumst svo í sundlaugina í Gljúfra- steini. Þetta var svolítið eins og þegar bandarísku hermennirnir eru að rífa niður stytturnar í bardögum og fóru strákarnir í lauginni því að hrópa vest- ræn gildi, vestræn gildi,“ út skýrir Dóri spurður út í þemað. Þá verður boðið upp á alvöru vestrænar veitingar í veislunni. Dóri segist þó finna fyrir því að hann sé að eldast. „Ég finn að ég er að missa gífurlega mikið. Ég hef alltaf átt eldri vini, sem eru yfirleitt á bilinu tveimur til fimm árum eldri en ég. Í þá daga gat ég komið á óvart og menn sögðu oft, þú ert ekki eldri en þetta. Nú er það búið, ég er bara þrítugur gaur með tvö börn og er að missa alla sérstöðu,“ segir Dóri léttur í lundu og hlær. Hann er þó bjartsýnn þótt hann sé kominn á fertugsaldurinn og er með sín markmið klár. „Ég hef verið að grenna mig undanfarið og ætla að taka enn meira á því núna. Ég ætla að vera orðinn talsvert spengilegri í haust.“ Dóri stendur þó á tímamótum á öðrum sviðum einnig, því hann er að flytja norður á Akureyri í haust. „Ég er að fara að leika í leikriti fyrir norð- an sem við Saga Garðarsdóttir erum að skrifa,“ segir Dóri. Hann segist vera spenntur fyrir höfuðstað Norður- lands. „Ég var að skemmta þarna með Mið-Íslandi um daginn og mér líst rosalega vel á fólkið og bæinn. Þetta er auðvitað Kaupmannahöfn norðurs- ins,“ bætir Dóri við glaður í bragði. gunnarleo@frettabladid.is Missir sína sérstöðu Dóri DNA stendur á miklum tímamótum í dag því hann fagnar þrjátíu ára afmæli sínu. Hann ætlar að fagna áfanganum umkringdur vinum sínum og vestrænum gildum. FAGNAR Í KVÖLD Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, stendur á miklum tímamótum og fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.