Fréttablaðið - 16.05.2015, Síða 94
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Eitt sinn seldi ég grískum bónda mótorfák. Var mikill völlur á
honum og samningaviðræðurn-
ar því fjörlegar. Við komumst
svo að samkomulagi um að hann
greiddi 40 þúsund drökmur fyrir.
Þá hrifsar hann 30 þúsund úr vas-
anum, réttir mér og býst til brott-
ferðar. „Eh, við sögðum 40 þúsund,“
sagði ég þá. Hann lítur þá á mig
með vandlætingu og segir: „Þú ert
ekki fyrr kominn með pening en
þú byrjar að rífa kjaft.“ Hann var
svo sannfærandi að eitt andartak
fékk ég sektarkennd fyrir fram-
hleypnina þar sem ég stóð með
útreidda seðla eins og blómvönd.
ÞETTA er eitt albesta bragðið í
bókinni þegar maður vill komast
upp með óréttlæti. Og það klikk-
ar ekki, ósvífnin lamar andstæð-
inginn.
EITT ALMESTA áhyggjuefni
heimsins í dag er ójöfnuður en ég
held að allir geti verið sammála um
að hann er eins og sýking í samfélög-
um þar sem hann er mikill. Afleið-
ingarnar eru oftast aukið ofbeldi,
eymd, siðleysi og óöryggi svo eitt-
hvað sé nefnt. Metnaður yfirvalda
ætti að vera á þá lund að draga úr
honum en á Íslandi er stjórnin á ann-
arri vegferð.
Í SJÁVARÚTVEGI er sífellt verið
að hlaða meiru á færri hendur.
Stjórnin lækkar líka veiðigjald-
ið, afnemur auðlegðar skattinn en
hækkar skatt á matvæli og komu-
gjaldið á heilsugæslu og ekki þarf
svo að undra að svona stjórnvöld telji
sig hafa lítið ráðrúm til að leggja
fátækum þjóðum lið. Stórfyrirtæki fá
líka hér prísa sem pöpullinn má helst
ekki frétta af og fjármálaráðuneytið
blessar bónusana sem áður afvega-
leiddu þessa þjóð. Baráttan virðist
líka ætla að ná tilætluðum árangri
því eitt prósent ríkustu skattgreið-
enda á nú þegar um fjórðung af auði
alls landsmanna.
ÞÚ SEM ERT utan við þessa skjald-
borg og berst fyrir bættum kjörum
færð hins vegar að kenna á bragði
gríska bóndans sem stjórnin beitir
af krafti. Þú ert að valda sýking-
unni sem fer út í verðbólguna, þú ert
að ögra stöðugleikanum: ÞÚ ert að
keyra allt um koll!
ÞJÓÐIN hefur síðustu ár áttað sig
á bolabragðinu og brugðist við með
því að kjósa í auknum mæli pönkara
til áhrifa. Má þar nefna Jón Gnarr,
Birgittu Jónsdóttur og Óttar Proppé.
Það er líka kominn tími til að rífa
kjaft.
Tími til að rífa kjaft
PITCH PERFECT 2 2, 5, 8, 10:30
MAD MAX 8, 10:30(P)
BAKK 5:50, 8
AVENGERS 2 3D 5, 10:10
ÁSTRÍKUR 2D 2, 4 - ÍSL TAL
LOKSINS HEIM 1:50 - ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
- Fréttablaðið
- Morgunblaðið
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VARIETY CHICAGO SUN TIMES
EMPIRE
HITFIXTIME OUT LONDON TIME OUT NEW YORK
TOTAL FILM
Kryddpían fyrrverandi, Geri
Halliwell, gekk í hjónaband í gær.
Giftist hún Formula 1-kappan-
um Christian Horner í Woburn
Abbey í Bedfordshire á Englandi,
sem er í um klukkustundar fjar-
lægð frá London. Halliwell mætti
til athafnarinnar í gömlum Rolls
Royce ásamt sonum Emmu Bun-
ton, einnig fyrrverandi kryddpíu
og blómastúlkum.
Horner mætti hins vegar til
kirkju í Aston Martin 1965 bif-
reið, að hætti James Bond.
Kryddpía gift ir sig
Leikarinn Johnny Depp flaug til
Ástralíu fyrir skemmstu. Það er
ekki í frásögur færandi nema að
með í för voru hundarnir hans
tveir, Pistol og Boo, en leikar-
inn smyglaði þeim ólöglega
inn í landið. Þegar upp komst
um atburðinn var leikaranum
gert skylt að senda þá aftur til
Bandaríkjanna, annars yrði að
lóga þeim báðum.
Talið er að leikarinn hafi sett
báða hundana í íþróttatösku og
þannig hafi hann komið þeim
óséðum til Ástralíu. Hann hefur
nú sent hundana báða til Banda-
ríkjanna aftur. Er Depp enn í
Ástralíu, ásamt eiginkonu sinni,
Amber Heard, þar sem hann er
að taka upp myndina Pirates of
the Caribbean 5: Dead Men Tell
No Tales.
Smyglaði hundunum til Ástralíu
Save the Children á Íslandi
UPPÁTÆKJASAMUR Leikarinn í einu af hlutverkum sínum.