Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 102

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 102
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 70 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SUNGU SAMAN STELLU Leikstýran farsæla Þórhildur Þorleifs- dóttir hélt upp á 70 ára afmæli sitt á uppstigningardag með fjölskyldu og vinum í Víkinni á Granda. Þar var saman komin öll íslenska leik- listarelítan til að fagna þessum mikla leiklistarfrumkvöðli. Diddú var meðal þeirra sem stigu á svið fyrir vinkonu sína þar sem hún söng titillagið úr bíómyndinni vinsælu Stellu í orlofi. Diddú fékk til liðs við sig aðal- leikara myndarinnar, Eddu Björgvins og Ladda, sem sungu bakraddir við mikinn fögnuð viðstaddra. - fbj Kálfatjarnarsókn nær yfir Sveitarfélagið Voga sem í eru Vogar og Vatnsleysuströnd. Leitað er að einstaklingi með reynslu af kirkjustarfi, frumkvæði og getu til nýsköpunar í helgihaldi auk hefðbundinnar kirkjutónlistar. Starfsskyldur eru m.a.: • Tónlistarflutningur við hefðbundið helgihald að meðal tali einu sinni í mánuði. • Æfing kirkjukórs einu sinni í viku. • Undirbúningur stærri tónlistarviðburða tvisvar á vetri. Tónlistarstjórinn starfar náið með sóknarpresti að við mótun og tilhögun starfsins. Nánari upplýsingar veitir séra Kjartan Jónsson sóknarprestur, kjartan.jonsson@kirkjan.is. Umsókn ásamt ferilsskrá sendist til Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði merkt „Tónlistarstjóri Kálfatjarnarkirkju“ fyrir 29. maí n.k. Tónlistarstjóri Kálfatjarnarkirkju 25% starf byko.is HÁGÆÐA GRILL FRÁ KANADA NAPOLEON, fjölskyldufyrirtæki frá Kanada, hefur verið starfandi í 38 ár og sérhæfir sig í að hanna og framleiða hágæða grill, eldstæði og fleiri vörur sem hægt er að treysta á. 119.995kr. 506600034 Almennt verð: 139. 995 kr. NAPOLEON gasgrill TRIUMPH 495 NÆRANDI ÞÆTTIR Á NÝJU VEFSVÆÐI VÍSIS Fylgstu með þessum fróðlegu örþáttum á visir.is/heilsuvisir. Vísir.is er hluti af „Ég hef aldrei komið áður til Cannes og það er mjög sérstakt að vera kominn hér í þennan ævin- týraheim kvikmyndanna,“ sagði Sigurður Sigurjónsson leikari, sem fer með annað aðalhlutverka í myndinni Hrútar eftir Grím Hákonarson. Myndin var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes í gær og er Hanna Björk Valsdóttir stödd á hátíðinni og greinir frá því sem fyrir augu ber. Aðstandendur Hrúta fylgdu henni eftir á hátíð- ina og einnig var Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, viðstödd auk fulltrúa frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hrútar keppa í flokknum Un Certain Regard sem er hluti af aðalprógrammi hátíðarinnar. Flokkurinn er ætlaður upprenn- andi leikstjórum en Hrútar eru önnur mynd Gríms í fullri lengd en hann hefur einnig gert fjölda heimilda- og stuttmynda. Grímur ásamt Grímari Jónssyni framleiðanda, Sigurði og Theodóri Júlíussyni, aðalleikurum myndar- innar, mætti eldsnemma í mynda- töku fyrir frumsýninguna þar sem á annað hundrað ljósmyndarar voru mættir og mynduðu þá í bak og fyrir. Myndinni var vel tekið, áhorf- endur risu úr sætum og lófaklappi eftir sýninguna ætlaði aldrei að linna. Þurftu aðstandendur hennar að hneigja sig margsinnis fyrir áhorfendum. „Franska Twitter logar,“ sagði Grímar, framleiðandi myndar- innar, eftir að sýningunni lauk og hann hafði ekki undan að svara símtölum. Grímur og Grímar fóru beint í hádegisverð eftir sýn- inguna með frönskum dreifingar- aðilum og eftir það biðu blaða- menn í höllinni eftir að taka við þá viðtöl. Þessi frumsýning hefur gríðarlegt vægi varðandi sölu og dreifingu. „Það er strax byrjað að berjast um hana í nokkrum lönd- um,“ sagði Grímar. „Myndin kom mér á óvart, ég vissi svo sem hverju ég átti von á en hún er virkilega vel gerð, allir póstar komu vel út. Ég er virkilega ánægður með hana,“ segir Sigurð- ur hæstánægður. „Næsta skref er svo að frumsýna heima, það verð- ur líka gaman,“ sagði Sigurður sem var svo rokinn á blaðamanna- fund með frönsku pressunni. Sigurður Sigurjónsson og Theo- dór Júlíusson eiga báðir stórleik í myndinni en þeir leika bræður norður í Bárðardal sem talast ekki við. Einnig koma hrútar og kindur við sögu eins og titillinn gefur til kynna. Sögusviðið er því ramm- íslenskt en Hrútar verður frum- sýnd hér á landi í lok mánaðarins. Hrútar fengu frábærar viðtökur í Cannes í gær Kvikmyndin Hrútar eft ir Grím Hákonarson var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes við góðar undirtektir. Allir helstu aðstandendur myndarinnar viðstaddir. Í CANNES Á leiðinni á frumsýningu, stóra stundin nálgast. Grímar, Sigurður, Theodór, Grímur og Sturla kvikmyndatökumaður. Á DREGLINUM Theodór Júlíusson, Grímur Hákonarson og Sigurður Sigurjónsson á rauða dreglinum. „Ég faðmaði hann í dálítið langan tíma, eða þangað til hann var farinn að reyna að færa sig í burtu. Ég varð að nýta tækifærið!“ LEIKKONAN REBEL WILSON UM ÞAÐ ÞEGAR HÚN HITTI BRAD PITT Í FYRSTA SINN. Næsta skref er svo að frumsýna heima, það verður líka gaman. Sigurður Sigurjónsson, leikari. STEIG Á SVIÐ Söngkonan Unnur Eggertsdóttir, sem margir kannast við sem Sollu stirðu úr Latabæ, deildi gleðilegum status á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar greindi hún frá því að um kvöldið myndi hún í fyrsta skipti stíga á svið sem söngkona í New York á kabar- ettbar á Times Square. Unnur flutti til borgarinnar í september á síðasta ári þar sem hún stundar leik list ar nám við skól ann The American Aca- demy of Dramatic Arts í borginni. Unnur sagðist spennt og stressuð fyrir stóru stundinni og að hún óttaðist mest að láta lífið úr stressi. - gló EINS OG BARN Á JÓLUM Grínhópurinn Mið-Ísland átti að skemmta í Bolungarvík í gærkvöldi en því miður var fluginu til Ísafjarðar aflýst. „Dóri brosti eins og barn á jólum þegar hann sá að fluginu var aflýst. Hann var búinn með tvo tvöfalda og búinn að kyngja einni róandi, enda flughræddasti maður á Íslandi,“ segir Björn Bragi um félaga sinn Dóra DNA. Hópurinn fór þess í stað út að borða í miðbæ Reykjavík- ur og naut þessa skyndilega og óvænta fríkvölds. „Menn nýttu í það minnsta úti- vistarleyfið sem þeir höfðu fengið,“ bætir Björn Bragi við og hlær. Hópurinn fer til Bolungarvíkur 19. júní. - glp
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.