Fréttablaðið - 16.06.2017, Síða 2
Veður
Suðaustlæg átt, víða 3-10 í dag.
Rigning eða skúrir, einkum sunnan
til og hiti 8 til 18 stig, hlýjast um
landið norðanvert. SJÁ SÍÐU 24
Akraborgin siglir á ný
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
• 3 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Hitamælir
• Postulínsemaleruð efri grind
• Grillflötur 65 x 44 cm
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
20% afsláttur
af hvítum
grillum
í dag
föstudag
Gildir 16. júní
Sko
ðið
nýja
vef
vers
lun
ww
w.gr
illbu
din.
is
Opið virka daga 11-18
Lokað laugardaginn 17. júní
55.920
Verð áður 69.900
• Afl 10,5 KW
Nr. 12933
Hvítt
Niðurfellanleg
hliðarborð
KJARAMÁL Tæplega 1.200 undir-
skriftum var í gær skilað til dóms-
málaráðuneytisins þar sem brott-
vikningu Kristjáns Þorbjörnssonar,
yfirlögregluþjóns á Blönduósi, er
mótmælt. Kristján verður 63 ára á
árinu en honum var sagt upp eftir 36
ára starf í lögreglunni vegna skipu-
lagsbreytinga. Lögreglumönnum ber
skylda til að fara á eftirlaun 65 ára.
„Ég hef talað við stéttarfélagið sem
segir að þetta gæti þýtt 16 prósenta
skerðingu á eftirlaunum. Það gæti
þýtt svona 70-80 þúsund krónur á
mánuði. Ef ég lifi í svona 25 til 30 ár
eftir 65 ára aldurinn þá eru það eitt-
hvað um 25 til 30 milljónir,“ segir
Kristján.
Vegna skyldu lögreglumanna til að
hætta 65 ára fá þeir lífeyrisréttindi
sín uppreiknuð eins og þeir hætti um
sjötugt, eins og aðrir ríkisstarfsmenn,
og eru auk þess reiknaðir upp um tvo
flokka. Uppsögnin þýðir að Kristján
missir þessi réttindi.
„Ég hef haldið mig alveg til hlés.
Það eru menn að vinna í þessu og
ekki eðlilegt að ég hafi sterkar skoð-
anir á meðan. Svo kemur þetta bara
í ljós.“
Kristján hefur verið lögreglumað-
ur á Blönduósi í 36 ár. Hann segir
bókstaflega allt í íslensku samfélagi
hafa breyst á þeim tíma sem hann
hefur starfað við löggæslu. „Lögreglu-
starfið hefur breyst alveg óskaplega
mikið. Þetta er allt annað starf en
það var. Þegar ég byrjaði var þetta
útkallslögregla sem kallað var til
vegna óhappa. Nú er þetta alls konar
vinna sem þarf að sinna dagsdaglega
til viðbótar við að sinna útköllum.“
Hann segir starfið skemmtilegt.
„Já, það er mjög tilbreytingaríkt. Þú
veist aldrei hvað gerist á morgun eða
hvað gerist á næsta klukkutímanum.
Svo er auðvitað misjafnt hvernig
menn höndla svona álag.“
Breytingar á Blönduósi hafa
sömuleiðis orðið miklar á 36 árum.
Blönduóslögreglan er auðvitað
alræmd fyrir virkt eftirlit með hrað-
akstri. „Ég hef séð vegina fara úr hol-
óttum malarvegum í vegi þar sem er
hægt að keyra hratt og umferðina
aukast úr því að vera einn og einn
bíll í það að vera samfelld.“
Skemmtanahald sveitunga í Aust-
ur-Húnavatnssýslu hefur sömuleiðis
breyst. „Sveitaböllin eru næstum
liðin tíð en voru aðalskemmtanirnar
hér á árum áður. En það voru engin
átök fyrir okkur að sinna sveita-
böllum. Það hefur bara svo margt
breyst varðandi skemmtanahald
með bjórnum og pöbbum.“
Landssamband lögreglumanna er
að skoða réttindi Kristjáns. Á meðan
sinnir hann áhugamálunum. „Ég er
mikið frammi í sveit. Þar á ég nokkur
hross sem ég dunda við og það er frá-
bært.“ snaeros@frettabladid.is
Allt breyst á Íslandi
eftir 36 ár í löggunni
Kristjáni Þorbjörnssyni yfirlögregluþjóni var án aðdraganda sagt upp störfum
nýverið vegna skipulagsbreytinga. Uppsögnin þýðir mikinn réttindamissi því
stutt er í starfslok. Kristján drepur tímann við áhugamálin á meðan málin skýrast.
Undirskriftum vegna uppsagnarinnar var skilað til dómsmálaráðuneytisins í gær.
Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri veitti þeim viðtöku. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Þú veist aldrei hvað
gerist á morgun eða
hvað gerist á næsta klukku-
tímanum.
Kristján Þorbjörns-
son yfirlögreglu-
þjónn
LÖGREGLUMÁL Fjórum sakborn-
ingum af sex, sem handteknir voru
grunaðir um aðild að manndrápinu
í Mosfellsdal í síðustu viku, var
sleppt úr haldi lögreglu skömmu
eftir hádegi í gær. Þetta staðfestir
Grímur Grímsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Sex voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald vegna gruns um að hafa
orðið Arnari Jónssyni Aspar að
bana í Mosfellsdal í síðustu viku,
fimm karlar og ein kona. Karl-
mennirnir voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 23. júní en konan
til 16. júní. Þremur karlmannanna
og konunni var sleppt í gær eftir
yfirheyrslur.
Staðfest er að Jón Trausti Lúth-
ersson og Sveinn Gestur Tryggva-
son eru enn í haldi lögreglu vegna
málsins. Þá voru bræðurnir Rafal
og Marcin Nabakowski á meðal
þeirra er sleppt var úr haldi í dag.
Í samtali við Vísi segir Grímur
Grímsson yfirlögregluþjónn, sem
fer með rannsókn málsins, að
málið sé upplýst að því marki að
ekki sé lengur ástæða til að halda
sakborningunum fjórum, sem
sleppt var í gær, í gæsluvarðhaldi.
Grímur segir augljóst að aðild fjór-
menninganna hafi verið minni en
hinna tveggja. – kó
Bræðrunum
sleppt úr haldi
Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald
í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
UMHVERFISMÁL Orka náttúrunnar
hyggst sækja um leyfi til þess að
hreinsa aur á nokkrum stöðum í
Andakílsá. Sérfræðingar Hafrann-
sóknastofnunar segja að áin hafi náð
að hreinsa sig nokkuð án aðgerða,
en enn sé þó verulegt set á nokkrum
veiðistöðum.
Eins og kunnugt er fór mikið af seti
úr inntakslóni Andakílsárvirkjunar
niður í farveg árinnar upp úr miðjum
maí. Í kjölfarið skipaði Orka nátt-
úrunnar verkefnahóp sem hefur á
undanförnum vikum og dögum gert
mælingar í ánni og metið hvort og til
hvaða aðgerða eigi að grípa til þess
að takmarka áhrif aurburðarins á líf-
ríki árinnar.
Um og upp úr næstu mánaða-
mótum er von á stærstu laxagöngum
sumarsins, en sérfræðingar Hafrann-
sóknastofnunar telja ekki ráðlegt að
ráðast í aðgerðir í ánni eftir þann
tíma. – kij
Sækja um leyfi
til hreinsunar
Flóasiglingar á milli Akraneskaupstaðar og Reykjavíkur hófust á ný í gærkvöldi, á vegum Sæfara, eftir 19 ára hlé. Akraborgin fór jómfrúarsiglinguna
um sjöleytið og var margmenni um borð en ferðin tekur einungis 25 mínútur. Um sex mánaða tilraunaverkefni er að ræða og verður siglt þrisvar á
dag á milli staða. Siglingum var hætt á milli Akraness og Reykjavíkur árið 1998 með tilkomu Hvalfjarðarganganna. Fram að því hafði Akraborgin,
eins og síðasti flóabáturinn var kallaður, siglt með farþega á milli bæjarfélaganna við miklar vinsældir. MYND/AÐSEND
1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð