Fréttablaðið - 16.06.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.06.2017, Blaðsíða 20
MMA Conor McGregor er í 24. sæti yfir launahæstu íþróttamenn heims á síðasta ári og hann mun rjúka upp þann lista á næsta ári. Hann mun nefnilega fá á milli sjö til tíu milljarða króna fyrir bardaga sinn við Floyd Mayweather. Meira en hann mun fá fyrir feril sinn hjá UFC. Það er óhætt að segja að hann hafi hækkað mikið í launum síðan Haraldur Dean Nelson gerði fyrsta samning hans við UFC. „Ég held ég fari rétt með að ég hafi samið um að hann fengi 10 þúsund dollara fyrir bardagann. Það var góður samningur því UFC vildi aðeins borga sex til átta þúsund dollara,“ segir Haraldur en það gerir rúma milljón á gengi dagsins. Conor átti svo að fá 10 þúsund í viðbót ef hann ynni bar- daga. „Fyrsti samningurinn var upp á fimm bardaga. Við höfðum ekki áhyggjur af því þar sem við vissum að UFC myndi vilja gera nýjan samning er Conor væri búinn að sanna sig þar. Það gekk eftir.“ Haraldur segist ekki hafa séð fyrir á þessum tímapunkti að Conor myndi nokkrum árum síðar fá milljarða fyrir að berjast. „Auðvitað ekki. Ég var bara að hjálpa honum og fleiri strákum því ég var vinur þeirra. Ég vissi samt alltaf að Conor myndi slá í gegn hjá UFC. Af því hann er eins og hann er og af því hann er svo góður bar- dagamaður. Maður veit samt aldrei en ég hafði trú á því að hann myndi slá í gegn. Ég sá samt ekki fyrir að á tveim til þrem árum yrði hann stærsta stjarnan í sögu UFC og tæki yfir þessa sýningu.“ Fékk milljón fyrir fyrsta bardagann Haraldur ásamt Conor og Peter Queally. MMA „Conor kom fyrst til Íslands árið 2012 og ég þurfti að skrifa bréf fyrir hann til írskra yfirvalda svo hann myndi ekki missa bótarétt- inn í heimalandinu á meðan hann æfði á Íslandi,“ segir Haraldur Dean Nelson, faðir Gunnars Nelson og framkvæmdastjóri Mjölnis, er hann rifjar upp fyrstu Íslandsferð Conors McGregor. Írans sem hefur lagt UFC-heiminn að fótum sér á met- tíma og mun í lok ágúst verða millj- arðamæringur er hann mætir Floyd Mayweather í hnefaleikabardaga. Af bótum í milljarða tekjur á fimm árum Sá bardagi verður einn verðmætasti bardagi sögunnar. Conor, sem var atvinnulaus á bótum fyrir fimm árum síðan, mun þá fá á milli sjö til tíu milljarða króna í sinn hlut. Stjarnfræðileg upphæð og óhætt að segja að líf hans hafi breyst mikið á örhraða því hann hefur í millitíð- inni einnig náð að vinna tvo heims- meistaratitla hjá UFC-bardagasam- bandinu. Fyrstur allra hjá UFC til að gera það. „Ég hafði kynnst Conor áður úti á Írlandi er Gunni var að æfa og keppa úti. Hann gisti fyrst í kjallar- anum hjá mér og svo flutti hann í íbúð á Bárugötunni þar sem Gunni og Jón Viðar [formaður Mjölnis] bjuggu,“ segir Haraldur en það þurfti stundum að kaupa samlokur og annað fyrir Conor og aðra stráka sem komu frá Írlandi og höfðu lítið á milli handanna. Hvernig leist honum samt á Conor er hann kynntist honum fyrst? Hafði alltaf mikla trú á sér „Hann var, og er, ör týpa. Hafði ofboðslega trú á sjálfum sér. Mér leist ofboðslega vel á hann. John Kavanagh [þjálfari Conors og Gunn- ars] hafði mikið talað um hann við mig. Ég vissi að hann væri að standa sig vel og lofaði góðu,“ segir Har- aldur og hlær við. Á þeim tíma var Conor að pakka mönnum saman í Cage Warriors bardagaröðinni. Haraldur byrjaði þá að skrifa bréf til UFC og benda þeim á þennan efnilega Íra. Haraldur var þá í sam- bandi við Joe Silva og Sean Shelby sem sáu um að raða upp bardögum fyrir UFC. „Ég sendi UFC myndband af því er Conor rotar Ivan Buchinger í Cage Warriors og var þar með kominn með tvö belti hjá þeim. Þetta er í byrjun árs 2013 og það leið nokkur tími án þess að við heyrðum frá UFC. Við John erum svo staddir á Vegamótum er Shelby hringir í mig til að segja mér að þeir vilji að Conor keppi við Marus Brimage í Stokk- hólmi. John stekkur út til þess að hringja í Conor því hann var leiður yfir því að hafa ekki fengið nein við- Írinn kjaftfori sem sigraði heiminn Írinn Conor McGregor verður orðinn milljarðamæringur í lok sumars. Fyrir rúmum fjórum árum var hann á atvinnuleysisbótum. Haraldur Dean Nelson var fyrsti umboðsmaður Conors og hjálpaði honum mikið. Írinn fékk að búa í kjallaranum hjá Haraldi. Ofurstjarna. Á ótrúlegum skömmum tíma hefur Conor McGregor orðið stórstjarna og einn ríkasti íþróttamaður heims. Hann er ekki bara einn ríkasti íþrótta- maður heims í dag heldur er hann líka einn sá vinsælasti. Conor elskar Ísland og mun örugglega halda áfram að koma hingað NORDICPHOTOS/GETTY Conor varð strax mjög hrifinn af Íslandi. Hérna troðum við alltaf hákarli og sviðumí útlendinga en Conor elskar svið. Haraldur Dean Nelson Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is brögð frá UFC. Conor hoppaði auð- vitað hæð sína af gleði er hann fékk tíðindin,“ sagði Haraldur sem gerði síðan fyrsta samning Conors við UFC um nóttina. Hann segist ekki geta gleymt gleðinni hjá Íranum er hann var með hann í símanum að keyra Miklubrautina á leið heim. Einstakur ruslakjaftur Írski vélbyssukjafturinn hefur mikið æft á Íslandi í gegnum tíðina og meðal annars fengið belti í jiu jitsu hjá Mjölni. Hann elskar að æfa á Íslandi og var einmitt á Íslandi fyrir rúmu ári er hann sagðist mjög óvænt vera hættur hjá UFC. Þá fór allt á hvolf en sem betur fer snerist Conor hugur. „Conor varð strax mjög hrifinn af Íslandi. Hérna troðum við alltaf hákarli og sviðum í útlendingana en Conor elskar svið. Borðaði þau með bestu lyst. Hann elskar flest við landið.“ Það er ekki bara hversu frábær bardagamaður Conor er sem gerir hann að einni stærstu íþróttastjörnu heims. Hann hefur einstakan per- sónuleika sem fólk annaðhvort elskar eða hatar. Hann rífur mikið kjaft en stendur nær alltaf við stóru orðin. Hann er besti ruslkjafturinn í íþróttum síðan Muhammad Ali var upp á sitt besta en á móti kemur að hann virðist eyða peningum með sama stæl og Mike Tyson. Fólkið í heimalandi hans elskar Conor sem er öllum innblástur þar. „Það er gaman þegar hann stelur línunum hans Alis og býr til sínar eigin sem eru góðar. Það er ógleym- anlegt er hann náði ekki að standa við stóru orðin gegn Dennis Siver og rota hann í fyrstu lotu. Hann klapp- aði fyrir Siver eftir lotuna og rotaði hann bara í næstu,“ segir Haraldur og hlær. Conor mun rota Floyd Heimurinn mun fylgjast með er Conor reynir hið ómögulega þann 26. ágúst. Að rota einn besta hnefa- leikamann allra tíma í sínum fyrsta boxbardaga. Mayweather hefur unnið alla 49 bardaga sína en hætti fyrir tveimur árum og er orðinn fer- tugur. Þrátt fyrir það segja margir sérfræðingar að Conor eigi ekki möguleika en Haraldur hefur trú á sínum manni. „Það væri furðulegt að spá May- weather ósigri miðað við flestar forsendur en hann er ekkert að fara að mæta hverjum sem er. Ég segi að Conor vinni þennan bar- daga. Ég geri það ekki út í bláinn. Ég held að Conor henti Mayweather illa. Er stærri og örvhentur sem May weather á í vandræðum með. Conor er líka með furðulegan stíl. Ég er ekki viss um að Floyd hafi verið sleginn af svona þungri vinstri hendi áður. Ég held að Conor muni koma á óvart og rota hann,“ segir Haraldur ákveðinn. 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.