Fréttablaðið - 16.06.2017, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 16.06.2017, Blaðsíða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Ég var þunglyndur og hef alltaf verið að berjast við þann djöful en er búinn að rífa mig upp úr því. Ég dílaði við það þannig að reykja gras en núna sem ég lög, mála eða teikna og er í kringum fólk,“ segir Andri Fannar Kristjánsson sem kallar sig AFK. Fyrir skömmu kom út sex laga EP- plata þar sem Andri semur allt efnið sjálfur. Platan ber heitið Wasting my time og eru allir textar á ensku en Andri bjó í Bandaríkjunum um nokkurra ára skeið. „Ég flutti til Flór- ída árið 2007 en sneri aftur til Íslands fjórum árum síðar. Ég hef samt verið að flakka á milli síðan þá og gerði plötuna með Chandler Pearson vini mínum sem stýrði upptökum. Hann kom með dótið sitt og við tókum upp á stuttum tíma.“ Slegið var í útgáfutónleika á þriðjudaginn en það var í þriðja sinn sem Andri hefur stigið á svið. Næst verður hægt að sjá hann á Secret Solstice hátíðinni og á þjóð- hátíðardaginn. Andri spilar á gítar á plötunni en tónlistarferill hans hófst með gítar við hönd. „Ég byrj- aði að spila á gítarinn í tíunda bekk. Byrjaði eitthvað að glamra því ég vildi kynnast stelpu. Svo hætti hún með mér og þá varð ég allur brot- inn og fór að syngja og skrifa texta. Reyna að koma öllu þessu út.“ Andri er vel skreyttur húðflúrum en hann alls með ellefu myndir víða um líkamann. Sum hefur hann hannað sjálfur en fyrir utan tónlist- arferil er hann einnig liðtækur lista- maður og teiknar og málar. Hann er meira að segja búinn að prófa að flúra nokkra vini og kunningja. Þeir sem til þekkja segja að hann sé lið- tækur með húðflúrnálina. „Ég hef alltaf verið að mála og teikna frá því ég var lítill. Hef verið að vinna með olíu og teikningu. Ég er með nokkur húðflúr sem ég hef hannað sjálfur og hef húðflúrað nokkra vini og kunningja.“ Andri sökk djúpt niður í fen fíkni- efnaneyslu en hefur rifið sig upp úr slíku rugli. „Ég var mjög mikið að reykja gras og taka pillur. Ég reif mig upp úr því og nota aðeins áfengi í dag. Platan er hálfgerð lífssaga, þegar ég var í ruglinu, um ástina, dóp og að sóa lífinu,“ segir hann glaður í bragði og ljóst að beina brautin í lífinu fer honum vel. benediktboas@365.is Reif sig upp úr þunglyndi og rugli Tónlistarmaðurinn Andri Fannar Kristjánsson, eða AFK, hefur gefið út sex laga EP-plötu þar sem hann semur um tímabilið þegar þung- lyndi og eiturlyf tóku yfir. Nú er hann kominn á beinu brautina. AFK Er á samningi hjá Icelandic Sync sem þær Soffía Jónsdóttir og Steinunn Camilla stýra. Þar eru listamenn eins og Svala Björgvins, Dimma, Ragnheiður Gröndal, Alda Dís og fleiri. „Við Steinunn höfum mikla trú á honum. Hann er rosalegur listamaður fyrst og fremst,“ segir Soffía. Andri er kominn á beinu brautina eftir að hafa gengið um dimma dali þunglyndis og dópneyslu. MYND/HULDA VIGDÍSARDÓTTIR 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð ALL A V IRKA DA GA KL. 07- 10 BRE NN SLA N RIKKI G ALLA VIRKA DAGA KL. 10-13 ALLA VIRKA DAGA KL. 13-17 VALA KRISTÍN ALLA VIRKA DAGA KL. 17-22 Topp tónlistarstöðin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.