Fréttablaðið - 16.06.2017, Blaðsíða 4
FliBlade 26
Áður 20.238,- NÚ 16.191,-
gæði – þekking – þjónusta
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
FLUGNABANAR
Kynningartilboð á nýrri
gerð flugnabana sem uppfylla
nýjustu kröfur um hreinlæti
BIÐRAÐAKERFI - FÆRIBÖND - DEIG- & RASPVÉL - BRÝNI
MÁLMLEITARTÆKI - ÁLEGGSHNÍFAR - HAKKAVÉLAR
HAMBORGARAVÉLAR - KJÖTSAGIR - ROÐFLETTIVÉLAR
GOTT
VERÐ
DÓMSMÁL Steingrímur Erlingsson,
fyrrverandi forstjóri Fáfnis Offshore,
hefur stefnt fyrirtækinu og krefst
þess að fá greiddan sex mánaða
uppsagnarfrest og orlof. Stjórnendur
Fáfnis segja að Steingrímur hafi ekki
staðið við skyldur sínar á uppsagn-
arfresti og hafa gert gagnkröfu.
Valdemar Johansen, lögmaður
Steingríms, staðfestir í samtali við
Fréttablaðið að forstjórinn fyrr-
verandi hafi stefnt Fáfni sökum
meintra vanefnda á greiðslu upp-
sagnarfrests sem hann hafi átt rétt
á samkvæmt ráðningarsamningi.
Samkvæmt svari Fáfnis Offshore
við fyrirspurn blaðsins byggir gagn-
krafa fyrirtækisins á því að Stein-
grímur hafi ekki skilið við félagið
líkt og samningurinn hljóðaði upp
á. Forstjórinn fyrrverandi hafi tekið
með sér tölvu í eigu Fáfnis og brotið
trúnaðarskyldu.
Fyrirtaka í máli Steingríms gegn
Fáfni verður í Héraðsdómi Reykja-
víkur þann 22. júní. Þá verður liðið
rúmt eitt og hálf ár síðan Stein-
grími, stofnanda og hluthafa í Fáfni
Offshore, var sagt upp störfum.
Steingrímur var fram að desember
2015 andlit fyrirtækisins út á við
en Jóhannes Hauksson, stjórnar-
formaður Fáfnis, tók þá við fram-
kvæmdastjórastarfinu. Í kjölfarið
hófust miklar deilur milli Steingríms
og meirihlutaeigenda í Fáfni sem
rekur sérútbúna olíuþjónustuskipið
Polarsyssel.
Stjórn Fáfnis hefur tvisvar ráðist
í skuldabréfaútgáfu upp á samtals
345 milljónir króna til að tryggja
áframhaldandi rekstur fyrirtækis-
ins. Eignarhlutur Haldleysis, einka-
hlutafélags í eigu Steingríms, í Fáfni
Offshore hefur því minnkað úr 21
prósenti í árslok 2015 í rétt rúm tíu
prósent, en hann hefur ekki tekið
þátt í skuldabréfaútgáfunum. – hg
Kröfur ganga á víxl í kjölfar brottreksturs stofnanda Fáfnis Offshore
Lækkun olíu-
verðs hefur
haft áhrif á
verkefna-
stöðu Fáfnis
Off shore.
Íslenskir líf-
eyrissjóðir og
ríkisbankinn
Íslandsbanki
eru í hluthafa-
hópi þess.
MYND/FÁFNIR
LÖGREGLUMÁL Hafþór Júlíus Björns-
son aflraunamaður, jafnan kallaður
Fjallið, hefur verið kærður til lög-
reglunnar vegna nokkurra atvika í
samskiptum sínum við fyrrverandi
kærustu. Á meðal atvika er meint
frelsissvipting sem Fréttablaðið
fjallaði um á laugardag þegar lög-
regla var kölluð að heimili hans,
fimmtudagskvöldið 8. júní síðast-
liðinn. Þá hafði Hafþór, að sögn,
neitað konu um útgöngu af heimili
sínu sem varð til þess að hún stökk
út um opinn eldhúsglugga og leitaði
hjálpar hjá nágrönnum.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að fyrr í þessari viku hafi konan
komið á lögreglustöðina í Kópa-
vogi og lagt fram kæru vegna máls-
ins sem og annarra atvika síðan
kynni þeirra hófust. Lögregla hefur
í þrígang verið kölluð að heimili
Hafþórs vegna framgöngu hans við
konuna.
Í samtali við Fréttablaðið í síðustu
viku staðfesti Hafþór öll meginatriði
í frásögn af kvöldinu, sagðist hafa
brugðið við þegar konan stökk af
stað og þess vegna hlaupið á eftir
henni og rifið í hana. Við það hafi
myndast hávaði sem varð til þess
að nágranni hringdi á lögregluna.
Hann hafnar alfarið ásökunum um
ofbeldi.
Fréttablaðið hefur undanfarna
daga rætt við nokkrar konur sem
hafa átt í ástarsambandi við Haf-
þór í gegnum tíðina. Þrjár þeirra
lýsa líkamlegu og andlegu ofbeldi
af hendi Hafþórs. Samböndin áttu
sér stað yfir nokkurra ára tímabil
en konurnar óska þess allar að láta
nafns síns ekki getið.
Ein konan lýsir því að Hafþór hafi
iðulega lamið sig þegar þau rifust.
Hún lýsir því einnig að hann hafi
ítrekað tekið hana svæfingartaki svo
hún leið út af. Meðan á sambandi
þeirra stóð leitaði hún einu sinni
á sjúkrahús og fékk áverkavottorð.
Önnur kona segir frá því að í eitt
skipti, þegar sambandi þeirra hafi
lokið, hafi verið hringt á lögregluna
vegna hótana hans í hennar garð
um líkamlegt ofbeldi.
Þá hefur Fréttablaðið heyrt frá
nágrönnum Hafþórs sem kölluðu í
að minnsta kosti eitt skipti lögreglu
til þegar Hafþór var búsettur í Sjá-
landshverfinu í Garðabæ. Nágrann-
ar heyrðu þá gríðarleg læti seint
um kvöld og öskur í konu. Eftir því
sem Fréttablaðið kemst næst hefur
Hafþór aldrei verið handtekinn í
þau skipti sem lögregla hefur verið
kvödd til.
Fréttablaðið hafði samband við
Hafþór Júlíus vegna ásakananna.
Hann benti Fréttablaðinu á lögfræð-
ing sinn og segir að fréttaflutningur
af málinu verði kærður til lögreglu.
„Þetta eru meiðyrði og verður alveg
100 prósent kært.“
Lögfræðingur Hafþórs, Kjartan
Ragnars, hefur síðan á laugardag
ítrekað haft samband við blaðið.
Hann segir Hafþór með öllu lausan
við ofbeldishneigð og beita hvorki
karla né konur ofbeldi. Hann segir
það geta orðið mjög dýrt að veitast
að Hafþóri með rógburði þar sem
ímynd hans sé mjög verðmæt. Hann
segir að mögulega þrjár konur séu í
hefndarhug gagnvart Hafþóri.
snaeros@frettabladid.is
Hafþór Júlíus kærður til
lögreglu af fyrrverandi kærustu
Lögmaður Hafþórs Júlíusar Björnssonar, aflraunamanns og leikara, segir
ekkert hæft í ásökunum um ofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þrjár fyrrverandi kærust-
ur Fjallsins segja hann
hafa beitt þær líkam-
legu og andlegu ofbeldi
auk þess að hóta þeim.
Ein þeirra hefur kært
nokkur atvik úr sam-
bandi þeirra. Lögmaður
Fjallsins segir ekkert
hæft í sögunum og hótar
Fréttablaðinu málsókn.
Þetta eru meiðyrði
og verður alveg 100
prósent kært.
Hafþór Júlíus Björnsson,
aflraunamaður
DÓMSMÁL Hæstiréttur féllst á það í
gær að svipting lögmannsréttinda
kynferðisbrotamannsins Roberts
Downey, sem áður hét Róbert Árni
Hreiðarsson, yrði felld niður og því
fær hann að halda réttindum sínum
til að vera héraðsdómslögmaður.
Robert hafði áður verið dæmdur
í Hæstarétti í þriggja ára fangelsi
árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn
fjórum unglingsstúlkum og hafði
héraðsdómur áður einnig fallist á
beiðni hans um að hann fengi lög-
mannsréttindin aftur.
Vísað var í dóm manns sem fékk
lögmannsréttindi sín aftur árið 1980
þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í
16 ára fangelsi fyrir manndráp og
af því ráðið að jafnvel svo alvarlegt
brot standi ekki í vegi að svipting
lögmannsréttinda verði felld niður.
Í úrskurði Hæstaréttar segir að
forseti Íslands hafi þann 16. septem-
ber árið 2016 veitt Róberti uppreist
æru og því hafi hann öðlast óflekkað
mannorð samkvæmt lögum. Liðin
séu níu ár frá því að hann braut af
sér og þá hafi ekki hafi verið sýnt
fram á að það sé varhugavert að
hann öðlist lögmannsréttindi að
nýju.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
frá 2007 kemur fram að Róbert hafi
nýtt sér yfirburði sína til að tæla
fjórar stúlkur, þrjár 15 ára og eina 14
ára gamla, með peningagreiðslum
og blekkingum.
Komst hann í samband við þær
með blekkingum, og þóttist til að
mynda vera 17 ára gamall tánings-
piltur að nafni Rikki í samskiptum
við eina þeirra í gegnum netið.
Þá hafi hann í fimmtán skipti tælt
aðra stúlku, sem þá var fimmtán ára,
með peningagreiðslum og blekk-
ingum til þess að hafa við sig kyn-
ferðismök í bifreið á ýmsum stöðum
í Reykjavík. - oæg
Kynferðisbrotamaður heldur réttindum
Maðurinn var árið 2008 dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn fjórum unglingsstúlkum.
HAFNARFJÖRÐUR Á fundi bæjarráðs
Hafnarfjarðarbæjar í gærmorgun
voru lögð fram drög að stofnsam-
þykktum íbúarekins leigufélags í
bænum sem hefur það að markmiði
að lækka leiguverð, draga úr yfirbygg-
ingu og auka aðkomu og þátttöku
íbúanna sjálfra.
Að mati bæjarstjóra Hafnar-
fjarðarbæjar er hér um að ræða stórt
framfaraskref innan sveitarfélagsins.
Hvatinn að verkefninu er að bregðast
við þörf á öruggu leiguhúsnæði á við-
ráðanlegu verði. Bæjarráð hefur falið
bæjarstjóra að vinna áfram að mál-
inu, segir í tilkynningu.
Í ljósi ástands og aðstæðna á íbúða-
markaði í dag og mikillar eftirspurnar
eftir húsnæði í Hafnarfirði telur
sveitarfélagið að allar forsendur séu
til staðar til að leigjendur komi sjálfir
að rekstri og utanumhaldi um leigu á
almennum íbúðum. Hugmyndin er
að leigjendurnir sjálfir verði aðilar að
sjálfseignarstofnun um félagið sem á
og rekur íbúðirnar.
Gert er ráð fyrir að félagið fái stofn-
framlag frá sveitarfélagi og Íbúða-
lánasjóði sem nemur samtals 30
prósentum af byggingarkostnaði,
sveitarfélagið leggi til 12 prósent og
Íbúðalánasjóður 18 prósent. Leiga á
svo að standa undir afborgunum og
vöxtum af láni. Verklok framkvæmda
eru áætluð í lok næsta árs. – sg
Setja á laggirnar
íbúarekið
leigufélag í
Hafnarfirði
Áætluð verklok yrðu á næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð