Fréttablaðið - 16.06.2017, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Ég er nýkomin heim af Chall-enge-heimsmeistaramótinu í Slóvakíu. Þar kepptu margir
þeirra bestu í heiminum en hver
keppandi þarf að standast ákveðn-
ar kröfur til að geta tekið þátt. Ég
lenti í fjórða sæti í mínum aldurs-
hópi og náði besta tíma sem íslensk
kona hefur náð,“ segir Hjördís Ýr
Ólafsdóttir, hönnuður og þríþraut-
armeistari, en hún setti Íslandsmet
í hálfum Járnmanni í liðinni viku, á
4 klukkutímum og 56 mínútum.
Keppendur synda 1,9 kílómetra,
hjóla 90 kílómetra og hlaupa svo
hálft maraþon, eða 21,1 kílómetra.
Hjördís segir keppnina hafa tekið
á, heitt var í veðri eða um 30 gráður
og steikjandi sól en íslensku kepp-
endurnir hafi staðið sig vel.
„Þetta var mjög erfitt og sér-
staklega fyrir okkur Íslendingana
að koma úr 12 gráðum hér heima
yfir í hitann. Við vorum tíu frá
Íslandi og hópnum gekk vel. Tveir
strákar lentu í verðlaunasæti í
sínum aldursflokki. Það er ótrúlega
gaman að fá að keppa meðal þeirra
bestu en meðal keppenda var til
dæmis Alistair Brownlee, tvöfaldur
ólympíumeistari í þríþraut. Auð-
vitað er skemmtilegt að ná að setja
met við þessar aðstæður.“
Þríþraut á hug Hjördísar allan,
ferillinn hófst fyrir sjö árum og
hefur undið vel upp á sig. Hún
segir þríþrautina fjölbreytta íþrótt,
álagið dreifist um líkamann og
minni líkur eru á meiðslum.
„Ég hef alltaf hreyft mig eitthvað
og æfði til dæmis frjálsar íþróttir
sem barn. Var svo í ræktinni eins
og gengur. Ég var farin að hlaupa
úti og eftir að dóttir mín, Ninja
Ýr, fæddist 2009 fór ég að hlaupa
hálfmaraþon. Fljótlega valdi ég
þó að æfa þríþraut því ég var farin
að meiðast í hlaupunum. Þríþraut
er góð krosshreyfing og álagið
minnkar á líkamann við sund og
hjólreiðar. Það er líka tilbreyting
að skipta á milli. Ég þurfti reyndar
að bæta mig verulega í sundi en
eins og margir Íslendingar kunni
ég bringusund og gat kannski synt
eina ferð yfir laugina á skriðsundi,“
segir Hjördís. Hún hafi því drifið
sig á skriðsundsnámskeið og segist
orðin nokkuð góð. „Sundið er
samt enn þá mín sísta grein í þrí-
þrautinni.“
Hjördís flutti til Ástralíu í fram-
haldsnám í hönnun, ásamt manni
sínum, Loga Karlssyni. Ninja Ýr
dóttir þeirra fæddist á Íslandi í
stuttu stoppi eftir að mastersnám-
inu lauk en fjölskyldan flutti aftur
til Ástralíu. Þar úti fæddist sonur-
inn Nói og bjó fjölskyldan ytra í sjö
ár. Í Ástralíu skellti Hjördís sér á kaf
í þríþrautina.
Mátti ekki hreyfa sig
„Þríþrautin er mjög stórt sport
í Ástralíu og ég var farin að æfa
með þríþrautarliði. Ég fór samt
ekki strax að keppa, mér fannst ég
ekki nógu sterk í sundinu. Ég æfði
þó allar þrjár greinarnar og var
farin að keppa í hlaupum. En þegar
ég gekk með með Nóa mátti ég ekk-
ert hreyfa mig. Sérstaklega mátti ég
ekkert gera seinni hluta meðgöng-
unnar þar sem fylgjan var fyrirsæt.
Um tíma þurfti ég að leggjast inn
á spítala. Einhvern veginn fékk
ég samt við þetta aukinn kraft og
þremur mánuðum eftir að strákur-
inn var tekinn með keisara dreif ég
mig í keppni í þríþraut. Hljóp svo
hálfmaraþon og maraþon stuttu
síðar og var að gefa brjóst rétt fyrir
startið,“ rifjar hún upp.
Sjö sólrík ár í Ástralíu
Árin sjö í Ástralíu segir Hjördís
hafa verið dásamleg. Hún hafði
áður búið í Mílanó í þrjú ár þar sem
hún lærði iðnhönnun. Eftir að hafa
fengið smjörþefinn af því að búa
í útlöndum segist hún hafa verið
meira en til í að flytja yfir hálfan
hnöttinn þegar kom að framhalds-
námi hjá þeim hjónum.
„Þegar maður hefur einu sinni
upplifað að búa í útlöndum er erfitt
að festa sig heima. Ég var strax til
í að fara eitthvert út aftur. Meðan
ég var í Mílanó var Logi að klára
háskólann hér heima. Hann kom út
eins oft og hann gat og Mílanóárin
voru frábær tími. Allt annar lífsstíll
en í dag, engin börn, bara að læra
og fara í ræktina, milli þess sem
maður drakk kokteila,“ segir hún
sposk. „Við fluttum svo til Wollon-
gong í Ástralíu í framhaldsnám og
ég tók master í grafískri hönnun.
Svo tók við doktorsnám hjá Loga,
og síðar vinna í Brisbane í Ástralíu.
Leikskólakerfið þar er ekki eins gott
og hér heima og ég var með krakk-
ana mikið til heima. Tvo daga í viku
voru þau á leikskóla og á meðan
gat ég sinnt eigin hönnun. Þetta
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Úti í Ástralíu fóru hjólaæfingarnar fram annaðhvort uppi í fjöllum eða meðfram strandlengjunni.
Nói og Ninja Ýr við Hvaleyrarvatn.
Jólatré fjölskyldunnar eitt árið. Pökkunum raðað undir. Á lokametrunum á heimsmeistaramótinu í Slóvakíu.
var æðislegur tími. Veðrið er alltaf
gott og alltaf hægt að vera úti við.
Við stunduðum mikla útivist,“ segir
Hjördís. Logi sé samt ekki forfall-
inn þríþrautarkappi eins og hún.
„Hann tók reyndar þátt í fyrstu þrí-
þrautinni sinni um daginn. Hafði
ekkert æft af viti en gekk ótrúlega
vel miðað við það. Hann stundar
golf, finnst það skemmtilegra en
þríþrautin.“
Fjölskyldan þurfti aðlögun
Hjördís og Logi eru bæði Hafn-
firðingar og þegar fjölskyldan
flutti heim frá Ástralíu komu þau
sér fyrir í heimabænum. Hún
segir viðbrigðin hafa verið mikil
við flutningana, sérstaklega fyrir
krakkana.
„Við fluttum heim fyrir einu og
hálfu ári, rétt fyrir jól og komum úr
36 stiga hita beint í 10 stiga frost!
Krakkarnir vissu ekki hvaðan á þau
stóð veðrið. Það var alltaf dimmt
og dóttir mín fór að háskæla þegar
vindurinn blés. Hún var ekki vön
hvassviðri og hélt bara að hún
myndi fjúka burt. Strákurinn hafði
aldrei komið til Íslands. Þetta er svo
langt ferðalag að maður er ekkert
að skjótast heim í frí. Við þurftum
í raun öll smá aðlögun til að byrja
með. Það var erfitt en líka gott að
vera kominn heim til fjölskyldunn-
ar. Ástralía er svo langt í burtu og
fjarlægðin frá fjölskyldunni mikil.
Það var ástæða þess að við fluttum
heim. En ég sakna sólarinnar,“ segir
Hjördís.
Æfir tíu tíma á viku
Þegar heim var komið hellti
Hjördís sér strax í æfingar og
keppnir í þríþraut og náði góðum
árangri. Hún varð til dæmis tvö-
faldur Íslandsmeistari og var valin
þríþrautarkona ársins 2016.
„Ég æfi í kringum 10 tíma á viku.
Þetta tekur auðvitað heilmikinn
tíma en oftast reyni ég að vakna
fyrir klukkan 6 á morgnana og er
þá búin með æfingu áður en hin
fara á fætur. Svo er oft æfing seinni-
partinn líka. Maður getur orðið vel
þreyttur og svefninn í minna lagi.
En ég sef út á sunnudögum.“
Þýðir þetta líka strangt matar-
æði? „Nei, í rauninni ekki, ég borða
hvað sem er. Auðvitað reyni ég að
borða hollt en leyfi mér alveg að
borða súkkulaði, dökkt súkkulaði,“
segir Hjördís.
Vaxandi íþrótt á Íslandi
Hjördís fylgdist með þríþrautinni
vaxa á Íslandi meðan hún bjó
í Ástralíu og segir sérstaklega
ánægjulegt að sjá hjólreiðaæðið
hellast yfir landann. Sjálf var hún
löngu farin að hjóla og viðurkennir
að eiga hálffullan bílskúr af reið-
hjólum.
„Ég á sérstakt þríþrautarhjól,
Timetrial með liggjandi stýri, en
í hjólreiðakeppnum er ég á racer.
Maður þarf að eiga góð hjól til að
keppa. Þríþrautarkeppnirnar ganga
fyrir eins og er en ég á líka fjalla-
hjól. Hef samt ekki haft tíma til að
keppa í fjallahjólreiðum enn þá. Ég
gæti þetta þó ekki nema með hjálp
góðra aðila, Örninn, Adidas og
Hreysti hafa reynst mér vel.
Mér fannst auðvitað ótrúlega
gaman að fylgjast með bæði þrí-
þrautinni og hjólreiðunum vaxa
á Íslandi. Það er auðvitað frábært
að fólk sé að hreyfa sig. Svo smitar
þetta út frá sér. Dóttir mín er til
dæmis farin að æfa sund og tók
þátt í tvíþraut um daginn. Það var
stundum fyndið að fylgjast með
henni hjóla þegar við bjuggum úti
en hún stökk alltaf af hjólinu til að
hlaupa, eins og ég var að gera. Hún
á eftir að verða efnileg þríþrautar-
manneskja. Mér finnst að allir sem
hafa áhuga ættu að prófa þetta
sport. Ég verð þó að vara fólk við,
þríþraut er ávanabindandi sport.“
Framhald af forsíðu ➛
h e i l s u v ö r u r
abel
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R