Fréttablaðið - 16.06.2017, Qupperneq 28
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Við byrjuðum að veita náms-lán árið 2015 en nýlega víkkuðum við starfsemina
út og fórum að veita húsnæðislán
ásamt almennum lánum til ýmissa
nota,“ segir framkvæmdastjórinn,
Hrólfur Andri Tómasson. „Við
leggjum okkur fram við að veita
framúrskarandi þjónustu og sam-
keppnishæf kjör.“
Húsnæðislánin eru hugsuð sem
viðbótarlán. „Fólk tekur lán hjá
lífeyrissjóði eða banka upp að því
marki sem það er hægt. Lífeyris-
sjóðirnir lána til dæmis allt að 75
prósent af kaupverði eignar og
bankarnir 80 til 85 prósent. Hjá
okkur er svo hægt að fá viðbótar-
lán upp í 90 prósent af kaupverði
eignarinnar,“ útskýrir Hrólfur, en
gerð er krafa um að lágmarki 10
prósenta eigið fé.
En fyrir hverja eru húsnæðis-
lánin hugsuð? „Þau standa öllum til
boða en við höfum ekki síst verið
að horfa til yngra fólks og fyrstu
kaupenda,“ segir Hrólfur og tekur
dæmi: „Það er til dæmis mikið af
ungu fólki með góðar tekjur sem
vantar þessar sjö til átta milljónir
sem oft þarf til að kaupa íbúð og
komast inn á markaðinn. Þá getum
við komið að gagni.“
Framtíðin opnaði fyrir hús-
næðislánin og almennu lánin í
byrjun maí og hafa viðtökurnar að
sögn Hrólfs verið vonum framar.
„Síminn hefur ekki stoppað og við
höfum þegar bætt við okkur mann-
skap til að sinna fyrirspurnum og
umsóknum.“
Að sögn Hrólfs eru almennu
lánin óverðtryggð upp að einni
milljón. Þau má til dæmis nota til
bílakaupa, endurbóta eða til að
borga niður aðrar skuldir. „Fólk
sækir um á netinu, umsóknarferlið
er 100 prósent rafrænt og svarið
berst á örfáum mínútum.“
Námslánin sem Framtíðin hefur
veitt síðastliðin tvö ár eru fyrst og
fremst hugsuð sem viðbót við lán
frá LÍN. „Hugmyndin er að fólk
fari fyrst til LÍN enda eru þau lán
á mjög hagstæðum vöxtum. Þeir
sem hins vegar eiga ekki rétt á láni
frá LÍN, t.d. út af tekjuskerðingu,
geta sótt um hjá okkur,“ segir
Hrólfur, en ólíkt bönkum sem veita
námsmönnum yfirdrátt í slíkum til-
fellum þarf ekki að byrja að greiða
af námslánum Framtíðarinnar fyrr
en sex mánuðum eftir að námi
lýkur. Að sögn Hrólfs getur fólk sem
er í dýru námi erlendis líka þurft á
viðbótarláni að halda þar sem LÍN
lánar aðeins upp að ákveðnu marki.
Þá komi Framtíðin sér vel.
Öll samskipti á netinu
Öll samskipti við Framtíðina fara
fram í gegnum netið og í gegnum
síma. „Fólk sækir um öll lán á
umsóknarvefnum okkar og skilar
gögnum rafrænt. Öll samskipti
fara svo fram í gegnum net og
síma. Fólk þarf því aldrei að koma
til okkar sem mörgum þykir
kostur,“ segir Hrólfur. Hann segir
æ fleiri orðna vana því að afgreiða
sig með ýmiskonar varning upp á
eigin spýtur á netinu. „Það á enn
sem komið er kannski meira við
um ungt fólk en margir sem eldri
eru hafa ekki síður komist upp á
lag með það. Markmiðið okkar
er að vefurinn sé það einfaldur
að fólk geti þjónustað sig sjálft
þar inni. Ef einhverjar spurningar
vakna þá erum við hins vegar fljót
að svara og leggjum okkur fram
um að veita hraða og persónulega
þjónustu.“
Framtíðin á sér að sögn Hrólfs
ýmsar erlendar fyrirmyndir, m.a.
frá Bretlandi, Evrópu og Banda-
ríkjunum, en í þessum löndum
hafa lánveitingar í auknum mæli
verið að færast frá bönkum til
sérhæfðra tæknifyrirtækja. „Við
horfum meðal annars til fyrir-
tækis í Kaliforníu sem heitir SoFi
en það byrjaði einmitt að veita
námslán og færði sig svo yfir í
önnur lán. Þá má nefna að þriðji
stærsti fasteignalánveitandinn í
Bandaríkjunum starfar eingöngu
á netinu. Við erum því ekki að
finna upp hjólið heldur fylgjumst
við vel með því sem er að gerast
erlendis og leitumst við að bjóða
upp á nýjungar hér heima.“
2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar, og Magnús Rúnar Hjartarson þjónustustjóri segja viðtökurnar við nýju lánunum hafa verið mjög góðar. MYND/ANTON BRINK
Nútímalegt lánafyrirtæki
Framtíðin er lánafyrirtæki, stofnað með það að markmiði að bjóða upp
á nýjar vörur á íslenskum lánamarkaði sem einfalt og þægilegt er að
nálgast. Fyrirtækið býður upp á námslán, húsnæðislán og almenn lán.
✿ Keypt er 40 milljóna króna íbúð með 26 milljóna láni frá lífeyrissjóði
Grunnlán Viðbótarlán
frá lífeyrissjóði frá Framtíðinni SAMTALS
1. Ef kaupandi kemur með 4 milljónir í eigið fé
Lánsfjárhæð 26.000.000 kr. 10.000.000 kr. 36.000.000 kr.
Vextir 3,25% 6,96% 4,28%
Fyrsta greiðsla 97.355 kr. 71.143 kr. 168.498 kr.
1. Ef kaupandi kemur með 6 milljónir í eigið fé
Lánsfjárhæð 26.000.000 kr. 8.000.000 kr. 34.000.000 kr.
Vextir 3,25% 6,89% 4,11%
Fyrsta greiðsla 97.355 kr. 56.645 kr. 154.000 kr.
1. Ef kaupandi kemur með 8 milljónir í eigið fé
Lánsfjárhæð 26.000.000 kr. 6.000.000 kr. 32.000.000 kr.
Vextir 3,25% 6,80% 3,92%
Fyrsta greiðsla 97.355 kr. 42.274 kr. 139.629 kr.
(1) Útreikningar miðast við 40 ára verðtryggt jafngreiðslulán frá lífeyrissjóði og 25 ára verðtryggð jafngreiðslulán
frá Framtíðinni.
Fólk sækir um öll
lán á umsóknar-
vefnum okkar á heima-
síðunni og skilar gögnum
rafrænt. Öll samskipti
fara svo fram í gegnum
net og síma.
Hrólfur Andri Tómasson