Fréttablaðið - 16.06.2017, Síða 38
Barack og Michelle Obama hafa
ákveðið að kaupa húsið sem þau
hafa leigt undanfarið. Húsið er
sannkölluð draumavilla, staðsett
í Kalormahverfinu í Washington
stutt frá íslenska sendiherrabú-
staðnum. Í fyrstu ætluðu fyrr-
verandi forsetahjónin eingöngu að
leigja húsið á meðan Sasha, dóttir
þeirra, kláraði nám sitt. Nú hafa
þau fest kaup á húsinu fyrir rúm-
lega 807 milljónir króna.
Húsið er frá árinu 1928 en fyrr-
verandi eigandi er Joe Lockhart
sem starfaði sem talsmaður Bills
Clinton í forsetatíð hans. Lockhart
og eiginkona hans, Giovanna Gray
Lockhart, ritstjóri hjá tímaritinu
Glamour í Washington, eru að
flytja til New York, þar sem hann
tekur við sem framkvæmdastjóri
á samskiptasviði landsliðsins í
amerískum fótbolta.
Nýtt hús Obamahjónanna er
760 fermetrar með níu svefnher-
bergjum, átta baðherbergjum
auk lítillar íbúðar. Húsið þykir
einstaklega smekklega innréttað.
Fyrir eiga hjónin hús í Chicago sem
þau ætla að eiga áfram að því er
Chicago Sun Times greinir frá.
Obama kaupir
draumavillu
Tæmið allar hirslur til að gera
þær léttari. Takið skúffur úr
kommóðum og flytjið þær sér.
Ekki hafa kassana of þunga.
Setjið bækur í litla kassa.
Pakkið brothættu dóti inn í
blöðruplast, viskastykki, dag-
blöð eða föt. Merkið kassann
„brothætt“.
Ef mikilvægt er að kassi snúi
ávallt eins er best að merkja
hann „þessi hlið upp“.
Látið ísskápinn standa í dágóða
stund eftir flutninga, áður en
honum er stungið aftur í sam-
band.
Gott er að festa tromluna á
þvottavélinni áður en hún er
flutt.
Notið tækifærið og takið til í
skápum. Farið með gömul föt,
leikföng, bækur og annað í
söfnun fyrir góðgerðarmál.
Merkið kassana með innihaldi.
Til dæmis „eldhús1“ og útbúið
lista yfir hvað er í þeim kassa.
Á flutningsdeginum er gott að
raða kössunum og öðru sem þarf
að flytja þannig að fljótlegt sé að
henda þeim í bíl.
Passið upp á líkamsbeitingu við
flutninga. Beygið hnén þegar
þungum hlutum er lyft í stað
þess að sveigja bakið.
Góð ráð fyrir
flutningana
Byrjið á að ná sem mestu af málning-
unni úr penslinum, til dæmis með
því að strjúka úr honum eftir grófri
tusku. Eftirfarandi trix til að hreinsa
alla málningu úr penslum eru fengin af
wikihow.com.
Mýkingarefni: Blandið ½ bolla af
mýkingarefni út í 3 lítra af volgu vatni
og hrærið penslinum fram og aftur
í lausninni þar til málningin losnar.
Hristið loks vel úr penslinum og látið
hann þorna með hárin upp.
Edik: Ef málning hefur harðnað í
pensli má reyna að leysa hana upp í
borðediki. Látið pensilinn liggja í bleyti
í klukkustund eða lengur, þar til máln-
ingin losnar. Einnig má sjóða pensilinn
í ediki í potti í nokkrar mínútur og
skola hann svo vel með köldu vatni.
Upþvottalögur: Olímálningu má
leysa upp með uppþvottalegi. Kreistið
vænan slurk af uppþvottalegi í lófann,
hrærið penslinum í hringi í sápunni og
látið renna volgt vatn á hann á meðan.
Endurtaka þarf þetta nokkrum sinnum
þar til öll málning næst úr.
Að hreinsa málningu úr penslum
i-t.isOpið virka daga frá 9 til 18Ármúla 31 - Sími 588 7332
Gæði og gott verð!
Sturtuveggir
Hert öryggisgler 8 og 10 mm.
Breidd 70 til 120 cm.
Line innréttingar
Postulínshandlaugarborð.
Breidd 60, 70, 80, 90, 100 og 120 cm.
Dýpt 36, 39 og 46 cm.
Ljósaspeglar
og
speglaskápar
Djúpar skúffur
mikið geymslurými
Sturtuhorn með botni
6mm. öryggisgler
80x80 og 90x90 cm.
verð frá 35.100
Úrvalið er hjá okkur!
12 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R