Fréttablaðið - 17.02.2016, Qupperneq 4
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r. H
eim
sfe
rð
ir á
ski
lja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.Frá kr.
143.500
m/ hálfu fæði
SKÍÐI
20. febrúar í viku
Síðustu
sætin á
til Austurríkis í vetur
Netverð á mann kr. 143.500, m.v. 2 fullorðna og 1
barn á hótel Unterberghof með hálfu fæði í viku.
Kr. 169.900. Verð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
hótel Unterberghof með hálfu fæði í viku.
Hotel
Unterberghof
Þýskaland Líklega leiddu mannleg
mistök umferðarstjóra til lestar-
slyssins sem varð ellefu að bana
í suðurhluta Þýskalands, hafa
erlendir miðlar eftir saksóknara í
Þýskalandi.
Yfir 80 til viðbótar slösuðust
þegar tvær farþegalestir skullu
saman á teinum við bæinn Bad
Aibling í Bæjaralandi, að morgni 9.
febrúar.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur
eftir saksóknara að svæðisstjóri hafi
beint báðum lestum inn á teinana en
svo reynt að vara lestarstjórana við.
Umferðarstjóri sem gerði mistök reyndi að vara lestirnar við
sveitarfélög Sveitarstjórnir úti
á landi samþykkja hver af annarri
þessa dagana ályktanir vegna skipu-
lagsmála á Reykjavíkurflugvelli þar
sem mótmælt er fyrirhugaðri lokun
á norðaustur-suðvesturbraut, sem
heitir 06/24 en sumir kalla neyðar-
braut.
Bæjarráð Vestmannaeyja tók
í gær undir með meðal annars
bæjaryfirvöldum á Akureyri og Ísa-
firði og ítrekaði andstöðu sína við
áform um skerðingu flugþjónustu
á Reykjavíkur flugvelli og skoraði á
ríkisstjórnina og borgarstjórn að
tryggja óskerta starfsemi flugvallar-
ins að minnsta kosti þangað til jafn-
góð eða betri lausn finnst.
„Bæjarráð telur með öllu ólíðandi
að dregið verði úr öryggi sjúklinga og
slasaðra sem þurfa að komast með
hraði á Landspítalann,“ segir bæjar-
ráð Vestmannaeyja.
Í ályktun bæjarráðsins kemur fram
að 2015 hafi 93 verið fluttir í sjúkra-
flugi frá Vestmannaeyjum um flug-
völlinn í Reykjavík til læknisþjón-
ustu og 109 árið 2014. Ekki kemur
fram hversu marga þessara sjúklinga
var lent með á braut 06/24.
„Því miður er óraunhæft að ætla
að í náinni framtíð skapist þær
aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjón-
ustu að ekki verði þörf á að koma
mörgum af erfiðustu tilfellunum sem
koma upp á landsbyggðinni á Land-
spítalann við Hringbraut. Þjónusta
sjúkraflugs er því meðal búsetufor-
senda í Vestmannaeyjum eins og svo
víða á landsbyggðinni,“ segir bæjar-
ráðið. Sanngjarnt sé að aðgengi íbúa
landsbyggðarinnar að heilbrigðis-
þjónustu, stjórnsýslu, viðskiptalífi
og menningarlífi sé tryggt. – gar
Vilja sanngirni á Reykjavíkurflugvelli
Eyjamenn vilja engar breytingar á Reykjavíkurflugvelli. FRéttablaðið/PjEtuR
Hundrað og fimmtíu manns voru um borð í lestunum sem skullu saman. Hér er
krana beitt til að ná öðrum vagninum af vettvangi. FRéttablaðið/EPa
Maðurinn, sem sé 39 ára gamall,
verði líklega kærður fyrir manndráp
af gáleysi og gæti átt yfir höfði sér
fimm ára fangelsi.
„Ef hann hefði fylgt reglunum, þá
hefði ekki orðið neinn árekstur,“
hefur BBC eftir Wolfgang Giese,
aðalsaksóknara.
Giese nafngreindi ekki manninn
sem var yfirheyrður af lögreglu, í
viðurvist lögmanns síns, í byrjun
vikunnar, að því er fram kemur í
umfjöllun Guardian.
Lögregla er sögð telja að svæðis-
stjórinn, sem umsjón á að hafa með
því að beina vögnum á rétta teina
og tryggja öryggi lestanna, hafi sent
röng skilaboð í lestirnar. Lestirnar
hafi átt að mætast á lestarstöð þar
sem teinarnir skiptast, en skullu
þessi í stað hvor framan á aðra á um
hundrað kílómetra hraða á stað þar
sem teinarnir liggja í sveig.
Guardian hefur eftir Giese að
bilun í tæknibúnaði hafi verið úti-
lokuð, en sérfræðingarnir sem fari
með rannsóknina ætli að endurgera
slysið til að prófa kenningu sína um
hvað átt hafi sér stað.
– óká
umhverfismál Aðeins eitt sveitarfé-
lag svaraði bréfi Umhverfisstofnunar
varðandi auglýsingaskilti sem standa í
leyfisleysi meðfram vegum í dreifbýli.
Umhverfisstofnun, sem sendi bréf
á alla skipulags- og byggingarfulltrúa
landsins í lok maí í fyrra, fékk aðeins
svar frá Hornafirði þar sem byggingar-
fulltrúinn er sagður hafa lagt á sig
þá vinnu að greina auglýsingaskiltin.
„Umhverfisstofnun bendir á mikil-
vægi þess að byggingarfulltrúar fylgist
með ólöglegum auglýsingum í við-
komandi sveitarfélagi og gæti þess
að farið sé að gildandi lögum og
reglugerðum,“ segir í ítrekunarbréfi
stofnunarinnar í haust sem fylgt var
eftir með nýju bréfi í janúar á þessu
ári. – gar
Nenna ekki að
greina skilti
iðnaður Fyrirtækið Sæbýli ehf.
segist stefna að því að framleiða alls
140 tonn af verðmætum sæeyrum,
sæbjúgum og ígulkerum í eldisstöð
sinni á Eyrarbakka. Sæbýli vill að
sveitarfélagið Árborg veiti afslátt á
heitu vatni frá Selfossveitum. Bæjar-
ráð samþykkti áframhaldandi afslátt
vegna þróunarverkefnisins.
„Félagið seldi fyrstu framleiðslu
sína á árinu 2015 og
gerir ráð fyrir að
selja nokkur
hundruð kíló
af ezo sæeyrum til Japans og Evrópu.
Nú starfa fjórir starfsmenn hjá félag-
inu við umhirðu dýra og uppsetningu
á eldiskerfi félagsins og markmiðið
er að þeim muni fjölga á árinu til þes
að setja meiri kraft í uppbyggingu
eldiskerfisins,“ segir í styrkumsókn
Sæbýlis. – gar
Fá ódýrara vatn
fyrir sæeyrun
Sæbýli fram-
leiðir meðal
annars ígulker.
FRéttablaðið/
NoRdicPHotoS
samgöngur Hjólastólanotendur sem
hyggjast ferðast frá höfuðborgarsvæð-
inu til annarra sveitarfélaga geta ekki
nýtt sér þjónustu Strætó án þess að
hafa með sér aðstoðarmann. Aðstoðar-
maðurinn þarf þá að bera viðkomandi
inn og út úr vagninum þar sem enginn
rampur er á vögnum sem notaðir eru
utanbæjar. Fólk sem hefur ekki tök á
aðstoðarmanni eða ferðafélaga verður
aftur á móti að ferðast með einkabíl
eða sérútbúnum leigubílum.
Ellen Calmon, formaður Öryrkja-
bandalags Íslands, segir mál af þessum
toga ekki hafa komið inn á borð hjá
henni en var þó undrandi á fyrir-
komulaginu. „Strætó er almennings-
samgöngur og strætisvagnar eiga að
sjálfsögðu að vera aðgengilegir öllum
almenningi,“ segir Ellen.
Jóhannes Svavar Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segir þær rútur
sem notaðar eru utanbæjar ekki frá-
brugðnar öðrum rútum. „Fólk getur
verið með aðstoðarmann sem getur
komið því í og úr sæti, þetta er það sem
er almennt í boði á Íslandi. Ég held það
sé engin rúta til hérlendis sem er með
sérstakan búnað fyrir hjólastóla. Bún-
aðurinn er þó til í þessar rútur,“ segir
Jóhannes.
Samkvæmt heimasíðu Strætó
getur fatlaður einstaklingur ferðast
með Strætó að því gefnu að viðkom-
andi sé fullkomlega sjálfbær með að
komast inn og út úr vagninum. Þá þarf
sá einstaklingur að biðja samferðafólk
sitt um aðstoð við að taka út ramp fyrir
hjólastól eða þá biðla til vagnstjóra um
aðstoð. „Það eru ekki slíkir rampar í
utanbæjarvögnum, það eru venjulegar
rútur,“ segir Jóhannes.
Bergur Þorri Benjamínsson, varafor-
maður Sjálfsbjargar, segist vita af þessu
fyrirkomulagi. „Ég benti til dæmis
Samtökum sveitarfélaga á Suður-
nesjum á þetta þegar þau voru að fara
af stað með sitt útboð og spurði hvort
þau hefðu ekki hugleitt það að gera
þessa kröfu í útboðinu, en svarið við
því var einfalt nei,“ segir Bergur.
Hann segir að það sé nokkurs konar
girðing fyrir notendur hjólastóla í
kringum höfuðborgarsvæðið. „Girð-
ingin er á Kjalarnesi, svo í áttina að
Hellisheiði og svo alls staðar í kringum
önnur bæjarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu.“ thordis@frettabladid.is
Þeir sem eru í hjólastól geta
ekki ferðast einir utanbæjar
Fólk í hjólastólum getur ekki nýtt sér þjónustu strætisvagna sem keyra milli sveitarfélaga utan höfuðborgar-
svæðisins þar sem engir rampar eru í vögnunum. Fólk getur eingöngu farið í vagnana ef það hefur aðstoðar-
mann sem ber það inn í vagninn. Annars þarf það að ferðast með sérútbúnum leigubíl eða á eigin vegum.
Engir rampar eru í vögnum Strætó sem keyra utanbæjar. Því getur fólk í hjólastólum ekki ferðast með vögnunum nema
aðstoðarmaður beri það inn í vagninn. FRéttablaðið/aNtoN bRiNk
Ég held það sé engin
rúta til hérlendis
sem er með sérstakan búnað
fyrir hjólastóla. Búnaðurinn
er þó til í þessar rútur.
Jóhannes S. Rúnars-
son, forstjóri Strætó
Strætó er almenn-
ingssamgöngur og
strætisvagnar eiga að sjálf-
sögðu að vera aðgengilegir
öllum almenningi.
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ.
1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 m i ð v i k u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð