Fréttablaðið - 17.02.2016, Side 10
✿ Borgunarmálið Frá upphafi og til dagsins í dag
Árið 2007
VISA getur keypt
VISA Europe
Visa Inc. og Visa
Eur ope gera sam-
komulag um ótíma-
bundinn valrétt á
kaupum Visa Inc á
Visa Europe.
Árið 2014
13. mars
Gert tilboð
Tilboð gert í hluti
Landsb. og Ís-
landsb. í Borgun í
nafni félags í eigu
fjárfesta og stjórn-
enda Borgunar.
27. júní
Íslandsbanki
segir nei
Íslandsbanki hafnar
tilboði hópsins í
Borgun og tilkynnir
einnig að bankinn
hyggist ekki kaupa
hlut Landsbankans.
3. júlí
Bjóða aftur í hlut Landsbankans
21. nóvember
Valrétturinn gæti
reynst verðmætur
Bloomberg birtir
frétt um að Visa
telji valrétt sinn í
Visa Europe minnst
1.200 milljarða
króna virði.
Fjárfestahópurinn býður
2.184
milljónir króna í
31,2%
hlut Landsbankans
í Borgun.
28. nóvember
Þrýstingur SKE
Landsbankinn segir
að Samkeppnis-
yfirvöld hafi þrýst
á Landsbankann og
Íslandsbanka um
breytingar á eignar-
hlut í Borgun.
3. desember
FME sendir
erindi
Fjármálaeftirlitið
óskar eftir upplýs-
ingum um söluna.
Bankinn svaraði
sex dögum síðar, 9.
desember.
8. desember
Koma fyrir þing-
nefnd
Stjórnendur Lands-
bankans koma fyrir
efnahags- og við-
skiptanefnd og gera
grein fyrir sölunni á
Borgun.
19. desember
Selur hlut í Valitor
Landsb. selur Arion
banka 38% hlut í
Valitor með ákvæði
um að Landsbank-
inn fái greitt verði
af kaupum á Visa
Europe.
Árið 2015
19. febrúar
Greiða arð
Aðalfundur Borg-
unar samþykkir að
greiða 800 milljónir
króna í arð. Arð-
greiðslan var sú
fyrsta frá 2007.
29. maí
Selja aftur hlut
Landsbankinn selur
0,41 prósents hlut
í Borgun í opnu
ferli á 30 milljónir,
sem setur verðmat
Borgunar í 7,3
milljarða króna.
Nóvember 2015
Visa Inc. tilkynnir
um kaup á Visa
Europe
Tilkynnt að Visa Inc.
muni kaupa Visa
Europe. Kaupverðið
nemur um 3.000
milljörðum króna.
Árið 2016
20. janúar
Milljarðar vegna
Visa-samnings
Morgunblaðið segir
kaup Visa Inc. á Visa
Europe geti fært
Borgun og Valitor á
annan tug milljarða.
21. janúar
Eftirlitið þrýsti
ekki
Samkeppniseftirlit-
ið segir í yfirlýsingu
að það hafi ekki sett
tímamörk varðandi
sölu Landsbankans
á Borgun.
25. janúar
Segjast ekki vita af Visa-greiðslum
til Borgunar
Landsbankinn segir á upplýsingavef
sínum um söluna að engar upplýsingar
hafi legið fyrir um greiðslur til Borgunar
yrði af kaupum Visa Inc. á Visa Europe.
25. janúar
Sex til átta pró-
sent hlutdeild
Kjarninn greinir
frá því Lands-
bankinn hefði átt
rétt á sex til átta
prósentum af
Visa-greiðslum til
Borgunar.
26. janúar
Fjórar spurning-
ar til bankans
Bankasýsla ríkisins,
óskar eftir því við
Landsbankann
að hann svari
fjórum spurning-
um um söluna á
Borgun.
9. febrúar
Borgun fær 4,8 milljarða
Borgun segist fyrst hafa fengið upp-
lýsingar um fjárhæð greiðslu til Visa
Europe 21. desember. Samkvæmt þeim
upplýsingum megi Borgun eiga von
á 4,8 milljarða greiðslu og forgangs-
hlutabréfum í Visa sem metin séu á 1,7
milljarða króna.
11. febrúar
Svarar Banka-
sýslunni
Landsbankinn
svarar Banka-
sýslunni og segir
enga annarlega
hvata hafi
legið að baki sölu
bankans.
11. febrúar
Vill skýringar
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra
segir nauðsyn að
upplýsa um allar
hliðar málisns áður
en lengra er haldið í
söluferli á eignarhlut
ríkisins í Landsb.
12. febrúar
Skilaboðin ekki
að fresta sölu
Lárus Blöndal,
stjórnarformaður
Bankasýslunnar,
segist ekki skilja fjár-
málaráðherra sem
svo að fresta eigi
söluferli Landsb.
VIðSKIptI „Þetta er það vitlausasta
sem við höfum gert, að selja þarna,
það var hörmung að gera það, eftir
á að hyggja,“ segir Haukur Oddsson,
forstjóri Borgunar, um sölu starfs-
manna og stjórnenda Borgunar
á 3,85 prósenta hlut í Borgun til
Eignarhaldsfélagsins Borgunar í júlí
á síðasta ári. Söluverðið miðaðist
við að heildar virði Borgunar væri 11
milljarðar króna. Söluverð Lands-
bankans á 31,2 prósenta hlut í Borgun,
í nóvember 2014 átta mánuðum áður,
miðaði við að Borgun væri metin á 7
milljarða króna. Landsbankinn seldi
þá 25 prósenta hlut til Eignarhalds-
félagsins Borgunar á 1.751 milljón
króna og 6,2 prósenta hlut til BPS á
433 milljónir króna. Því jókst virði
Borgunar um 57 prósent á átta mán-
uðum.
Haukur segir hækkunina helst
skýrast af aukinni eftirspurn eftir
hlutabréfum á Íslandi á tímabilinu.
Hlutabréfaverð á Íslandi hafi hækkað
mikið á síðari hluta ársins 2014 og á
árinu 2015.
Haukur Oddsson segir engu síður
að kaupverðið staðfesti að forsvars-
menn Borgunar hafi ekki vitað að
Visa Inc. hygðist nýta sér valrétt til að
eignast Visa Europe. „Við höfðum ekki
hugmynd um þetta þá, ekki frekar en
aðrir,“ segir Haukur. Rúmum tveimur
mánuðum eftir að salan á hlut starfs-
manna og stjórnenda gekk í gegn, til-
kynnti Visa Inc. að það hygðist nýta
sér valrétt til að kaupa Visa Europe á
um 3.000 milljarða íslenskra króna.
Borgun á von á tæplega 5 milljarða
peningagreiðslu vegna þessa.
Haukur segir ljóst að hann og aðrir
stjórnendur og starfsmenn Borgunar
muni tapa á sölunni síðasta sumar.
Engin ákvæði hafi verið um viðbótar-
greiðslu ef af kaupunum á Visa Europe
yrði.
„Verðmatið eftir dílinn er miklu,
miklu, hærra en þetta. Þannig að það
er alveg augljóst að við vorum alveg
grunlaus um að þetta væri að koma.“
Morgunblaðið greindi fyrr í febrúar
frá því að miðað við nýtt verðmat
KPMG væri Borgun metin á 19 til 26
milljarða króna.
Haukur er einnig hluthafi í Eignar-
haldsfélaginu Borgun. Hann segir
söluna hafa verið fjármagnaða með
hlutafjáraukningu sem hann hafi ekki
tekið þátt í og því hafi eignarhlutur
hans lækkað.
Haukur segir verðið sem stjórn-
endur og starfsmenn Borgunar seldu
á hafa verið í samræmi við verð í við-
Svekktur yfir 57
prósenta ávöxtun
Forstjóri Borgunar segir starfsmenn Borgunar hafi selt hlut sinn í fyrirtækinu á allt
of lágu verði í sumar. Verðið var helmingi hærra en Landsbankinn seldi þeim á.
Kaupverðið staðfesti að þeir hafi ekki vitað að von væri á milljarða Visa-greiðslum.
Haukur Oddsson, segir eftir á að hyggja starfsmenn og stjórendur Borgunar hafa gert mistök með því að selja hlut í Borgun síðasta sumar.
Við höfðum ekki
hugmynd um þetta
þá, ekki frekar en aðrir
Haukur Oddsson,
forstjóri Borgunar
Auglýst eru til umsagnar drög að tillögu að
matsáætlun vegna endurskoðaðs mats á
umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar. Skipu-
lagsstofnun úrskurðaði 16. desember 2015
að endurskoða beri þá hluta matsins sem lúta
að landslagi og ásýnd lands og ferðaþjónustu
og útivist. Aðrir hlutar umhverfismatsins eru
í fullu gildi.
Mat á umhverfisáhrifum er unnið samkvæmt
lögum nr. 106/2000 og reglugerð nr. 660/2015,
en framkvæmdin er matsskyld samkvæmt tölulið
3.02 í 1. viðauka laganna.
EFLA verkfræðistofa vinnur að mati á umhverfis-
áhrifum. Drög að tillögu að matsáætlun hafa
verið lögð fram til kynningar á heimasíðum
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is, og EFLU,
www.efla.is.
Frestur til athugasemda er frá 17. febrúar til
2. mars 2016.
Hagsmunaaðilar og aðrir eru hvattir til að kynna
sér drögin og leggja fram athugasemdir og
ábendingar varðandi fyrirhugað mat á landslagi
og ásýnd lands annars vegar og ferðaþjónustu
og útivist hins vegar. Í framhaldinu mun
Landsvirkjun vinna tillögu að matsáætlun og
senda Skipulagsstofnunar hana til umfjöllunar.
Hægt er að koma ábendingum eða
athugasemdum við drögin eigi síðar en 2. mars
2016 til EFLU verkfræðistofu með tölvupósti
á netfangið umhverfismat@efla.is eða
skriflega til Ólafs Árnasonar, á heimilisfang
EFLU, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, merkt
„Hvammsvirkjun. Mat á umhverfisáhrifum”.
Drög að tillögu að
matsáætlun
EFLA VERKFRÆÐISTOFA
+354 412 6000 efla@efla.is www.efla.is
2.990 KR.*
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til
útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is
1 7 . F E B r ú A r 2 0 1 6 M I ð V I K U D A G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t A B L A ð I ð