Fréttablaðið - 17.02.2016, Side 15
Árni Páll
Árnason
formaður Sam-
fylkingarinnar
Umræðan um Borgunarhneyksl-ið má ekki staðnæmast við það eitt. Það sem við vitum
nú þegar um atburðarásina í málinu
dugar til að vekja verulegar efasemdir
um vinnubrögð og siðferði í efstu
lögum fjármálakerfisins. Það þarf að
upplýsa til fulls um allar ákvarðanir í
málinu, hvernig verðmat fór fram og
hvernig stjórnendur Landsbankans
tóku ákvörðunina um þessa sölu, lið
fyrir lið. Það vekur nefnilega athygli
að stjórnendur Landsbankans hafa
fært það fram sem röksemd fyrir því að
selja hinum stálheppnu útvöldu kaup-
endum á vegum stjórnenda Borgunar
eignarhlutinn í leyni að stjórnendur
Borgunar væru í lykilstöðu til að hafa
áhrif á upplýsingar um framtíðar-
horfur Borgunar ef aðrir kaupendur
myndu sækjast eftir hlutnum.
Eitt er nú það að stjórnendur Lands-
bankans gefi sér að stjórnendur Borg-
unar muni koma fram með sviksam-
legum hætti. Annað er það hvers vegna
stjórnendur Landsbankans ákváðu
þá að treysta þeim upplýsingum sem
þessir sömu stjórnendur veittu Lands-
bankanum sjálfum um framtíðarhorf-
ur fyrirtækisins. Hvernig í ósköpunum
réttlætir þú að trúa manni sem þú býst
við að svíki aðra?
Gamlar og nýjar hættur
En Borgunarmálið varpar líka ljósi á
hættur sem eru fram undan í íslensku
viðskiptalífi og fjármálalífi. Það er
ekkert nýtt að vel tengdir fjárfestar,
handvaldir af Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki, fái tækifæri til að
kaupa ríkiseignir eða sölsa undir sig
aðstöðu sem ríkið hefur. Efnahagssaga
Íslands hefur einkennst af því alla tíð.
Það voru vel tengdir einstaklingar sem
fengu tækifæri til að fá til sín Mars-
hall-aðstoðina sem Ísland fékk eftir
stríð. Það voru vel tengdir einstakling-
ar sem fengu einkaleyfi til að bjóða í
verk fyrir varnarliðið og voru ára-
tugum saman í aðstöðu til að rukka
margfaldan raunkostnað fyrir hvert
einasta viðvik á Keflavíkurflugvelli.
Það voru vel tengdir aðilar sem gátu
sölsað undir sig hlutabréf almennings
og Vestur-Íslendinga í Eimskipafélag-
inu og nýtt agnarlítinn eignarhlut til
að ná yfirtökum á Eimskipafélaginu.
Þá aðstöðu nýttu þeir svo til að sölsa
undir sig hvert fyrirtækið á fætur öðru
í viðskiptalífinu og byggja viðskipta-
veldi sem stóð áratugum saman, án
nokkurrar innistæðu. Það voru vel
tengdir kaupendur sem fengu að
kaupa SR-mjöl í upphafi tíunda ára-
tugarins og gátu svo selt eignir út úr
fyrirtækinu og borgað sér kaupverðið
á einu ári.
Og síðast en ekki síst voru það
vel tengdir aðilar sem fengu einir að
kaupa bankana við einkavæðinguna
2003. Þá voru allar reglur beygðar og
öll viðmið um mat á tilboðum skekkt,
til að réttir menn fengju á endanum
að kaupa. Þeir keyptu á ágætu verði,
en lánuðu hverjir öðrum fyrir kaup-
verðinu. Þeir keyptu banka til að
geta nýtt þá til að skammta sér auð
og aðstöðu þaðan í frá. Þeir höfðu
ekkert efni á að kaupa bankana – þeir
gerðu það bara og nýttu sér íslenskt
fákeppnisumhverfi til að klóra útlagt
fé til baka af almenningi og verð-
mætaskapandi fyrirtækjum.
Nýir Borgunarmenn verða fundnir
Nú er enn rætt um bankasölu. Í
nýlegri skýrslu Bankasýslu ríkisins
kemur samt fram að engir Íslend-
ingar hafi ráð á að kaupa banka fyrir
eigin rammleik. Þá liggur fyrir að
engir útlendingar hafa sýnt áhuga á
að kaupa íslenskan banka, þrátt fyrir
ítrekaðar sölutilraunir a.m.k. eins
slitabús á erlendum vettvangi undan-
farin ár. En þótt engir Íslendingar geti
Hverjir verða Borgunarmenn fyrir bönkum?
keypt einn einasta banka og engir
útlendingar vilji kaupa einn einasta
banka eru nú allt í einu ÞRÍR bankar
til sölu.
Hverjir munu kaupa? Svarið liggur
í augum uppi. Hættan er sú að ein-
hverjir nýir Borgunarmenn verði
fundnir. Þeir verða sannarlega ekki
borgunarmenn fyrir banka í hefð-
bundnum skilningi þess orðs, en
þeir verða Borgunarmenn í þeim sér-
íslenska skilningi sem hér hefur verið
rakinn. Þeir munu kaupa bankana á
háu verði og nýta sér síðan fákeppnis-
umhverfi hinnar íslensku krónu til að
sjúga kaupverðið úr landsmönnum
um ókomin ár.
Röðum upp á nýtt
Mikilvægasta verkefni stjórnmál-
anna er að stöðva þetta rugl. Það
munu núverandi stjórnarflokkar
ekki gera. Það þarf að setja landinu
efnahagslega stjórnarskrá. Hluti
hennar mun þurfa að felast í að laga
bankakerfið að þörfum almennings,
heimilanna og verðmætaskapandi
fyrirtækja. Það þarf að nýta það
tækifæri sem nú er að opnast með
ráðandi umsvifum ríkisvaldsins á
fjármálamarkaði til að brjóta bank-
ana upp og raða bútunum upp á
nýtt. Sumir þættir bankarekstrar
eiga einfaldlega ekki heima með
öðrum í fákeppnisumhverfi. Sam-
hliða þarf að breyta lagaumhverfi
fjármálakerfisins og torvelda ofur-
vald fjármála fyrir tækja yfir fólki.
Úrvinnsla skuldamála frá hruni á að
verða okkur verðmætur lærdómur.
Það þarf að styrkja lagaumhverfi
greiðsluaðlögunar, auka áhættu
banka af útlánum og torvelda bönk-
um að ganga að fólki ef greiðslugeta
bregst. Þá þarf að tryggja almenningi
í landinu arð af ríkiseignum og gefa
ófrávíkjanleg fyrirmæli um sam-
keppni um sölu þeirra.
Tækifærið til þessara breytinga er
núna. Það verður farið eftir að ríkið
selur hluta í bönkunum. Þess vegna
þarf að koma í veg fyrir að núverandi
stjórnarflokkar selji bankana og gefa
nýrri ríkisstjórn færi á raða spilunum
upp á nýtt, með hagsmuni almenn-
ings að leiðarljósi.
BÓKANLEGT: FRÁ KL. 10:00 17. FEBRÚAR TIL MIÐNÆTTIS 18. FEBRÚAR
FERÐATÍMABIL: 17. MARS–4. APRÍL
SMELLTU ÞÉR Á
FLUGFELAG.IS
• Ef bókað er með Flugslætti og bókun breytt, þarf að greiða mismun og
breytingagjald upp í annað fargjald án afsláttar.
• Ekki er hægt að bæta Flugslætti við bókun sem þegar hefur verið gerð.
• Aðeins er hægt að hafa einn Flugslátt í hverri bókun.
GILDIR Á ALLA ÁFANGASTAÐI INNANLANDS FLUGFELAG.IS
TAKTU FLUGIÐ
UM PÁSKANA
is
le
ns
ka
/s
ia
.is
F
LU
7
83
93
0
2/
16
AF NETVE
RÐUM
OG FERÐA
SÆTUM
25%
SLÁÐU INN
FLUGSLÁTT
INN
PASKAR
VIÐ BÓKUN
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 1 7 . F e B R ú A R 2 0 1 6