Fréttablaðið - 17.02.2016, Qupperneq 20
Þetta er áskorun
fyrir íslensk fyrir-
tæki því að eins og hefur
komið hérna
fram þá er
framleiðni á
Íslandi lág,
Kristín
Friðgeirsdóttir
Íslenska fyrirtækið AwareGo hefur
gert gagnkvæman sölusamning við
The Security Awareness Company
í Bandaríkjunum. AwareGo fram-
leiðir tölvuöryggismyndbönd með
skilaboðum til starfsmanna um
hvernig eigi að varast þjófnað á raf-
rænum gögnum og fleira er snertir
öryggi.
Ragnar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri AwareGo, segir að Security
Awarenes Company sé það stærsta
og þekktasta í sínum geira í heim-
inum í dag. „Okkar lausnir passa
vel inn í þeirra vöruframboð og
við höfum nú þegar fengið góð við-
brögð hjá nokkrum af þeirra lykil-
viðskiptavinum. Nú stendur yfir
vinna við að þýða myndböndin yfir
á tíu tungumál,“ segir Ragnar í sam-
tali við Markaðinn.
Notendur AwareGo nálgast eina
milljón út um allan heim en stærstu
viðskiptavinirnir eru GE, Barclays
og Credit Suisse. Ragnar segir að
næsta skref hjá fyrirtækinu verði að
gera vöruna skalanlegri. Það þýðir
að útbúa hana til þess að hægt sé
að selja hana á internetinu í stað
þess að fyrirtækið verði að afgreiða
hverja einustu pöntun. Með því
verði auðveldara að afgreiða minni
og meðalstór fyrirtæki. Þá vill Ragn-
ar leggja meiri áherslu á og setja
meiri peninga í markaðssetningu.
Það þýðir að geta farið á sýningar
og keypt auglýsingaborða og ráðist
í vörumerkjaþróun. Hingað til hafi
fyrirtækið selt vöru sína í gegnum
persónulegt tengslanet sem hafi
verið myndað á netinu. „Við viljum
leggja svolitla áherslu á það, að
gera okkur svolítið sýnilegri,“ segir
Ragnar. – jhh
Notendur AwareGo
nálgast milljón
Úr auglýsingu AwareGo. Á meðal stærstu viðskiptavina fyrirtækisins eru Credit
Suisse og Barclays.
„Landamæri samkeppnismarkaðar á
Íslandi eru að breytast og aukin sam-
keppni erlendis frá getur verið erfið,“
sagði Kristín Friðgeirsdóttir, pró-
fessor við London Business School
og stjórnarformaður Haga, í ræðu á
Viðskiptaþingi í síðustu viku. Hún
sagði að það væri erfitt að berjast
gegn þessari erlendu samkeppni og
því þyrfti að taka henni fagnandi.
Kristín lýsti því í ræðu sinni hvern-
ig samkeppnin sem berst erlendis frá
getur tekið á sig fjölbreytta mynd.
„Þetta getur verið bein samkeppni
þannig að fyrirtæki eru að setja á fót
starfsemi á Íslandi eins og Costco er
að gera. En svo getur það líka verið
óbein samkeppni eins og með inter-
netinu, eins og Netflix eða í ferða-
tösku svo sem barnaföt sem keypt
eru í verslunum eins og H&M,“ sagði
Kristín. Hún sagði þessa þróun vera
óumflýjanlega. Hún benti á nýja
könnun sem sýnir að 45 prósent
Íslendinga versla erlendis og einnig
þá staðreynd að þriðjungur Íslend-
inga verslar á netinu, yfirleitt við
erlendar vefverslanir.
„Þetta er áskorun fyrir íslensk
fyrirtæki því að eins og hefur komið
hérna fram þá er framleiðni á Íslandi
lág,“ sagði Kristín. Vegna þessarar
lágu framleiðni gætu íslensk fyrir-
tæki orðið undir í samkeppninni við
erlendu risana.
Kristín benti á að vegna þess-
arar áskorunar væri mikilvægt fyrir
íslensk fyrirtæki að geta keppt á
jöfnum grundvelli og búa við við-
skiptaumhverfi sem væri sambæri-
legt við viðskiptaumhverfið eins og
það er erlendis. „Þá er ég að tala um
skatta, tolla, regluverk og samkeppn-
isumgjörðina.“
Þá benti Kristín á að það væru
ýmsar áskoranir sem lægju fyrir, til
dæmis viðskiptahindranir. Sagði hún
að 2/3 af matarinnkaupum væru inn-
lend framleiðsla og 40 prósent af því
væru innlendar landbúnaðarvörur.
Kristín benti á að opinbert regluverk
skekkti samkeppnisstöðu á þessum
markaði og ekki væru allir sammála
um það hvaða skref mætti stíga til
aukins sjálfræðis.
Kristín lagði áherslu á að stjórn-
völd gætu opnað markaði enn frekar
með því að einfalda regluverkið og
hafa stofnanaumhverfið hagfellt og
svipað því sem erlend verslun býr
við. En það væri líka mikilvægt að
fyrirtækin hefðu á að skipa hæfu
starfsfólki og gætu fjárfest í mennt-
un á sama hátt og gert væri í öðrum
löndum. jonhakon@frettabladid.is
Samkeppni frá útlöndum óumflýjanleg
Íslensk fyrirtæki þurfa í auknum mæli að takast á við samkeppni erlendis frá. Prófessor við London Business School telur að Íslending-
ar þurfa því að bæta viðskiptaumhverfið til að takast á við samkeppnina. Fyrirtækin þurfa að bregðast við með fjárfestingu í menntun.
Stór hluti Íslendinga fer á hverju ári til útlanda til að kaupa föt. H&M nýtur mikilla vinsælda. NordiCPHotoS/Getty
Okkar lausnir passa
vel inn í þeirra
vöruframboð og við höfum
nú þegar fengið góð við-
brögð hjá nokkrum af þeirra
lykilviðskiptavinum.
Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri
AwareGo
www.mba.is
Föstudaginn 19. febrúar verður haldinn kynningarfundur MBA-námsins
í Háskóla Íslands. Fundurinn verður haldinn í stofu HT-101 á Háskólatorgi
og er frá kl 12:10 - 12:50.
Magnús Pálsson forstöðumaður MBA námsins kynnir námið og
fyrirkomulag þess en einnig mun Guðrún Eva Gunnarsdóttir MBA 2016
og fjármálastjóri Haga segja okkur frá reynslu sinni af náminu. Boðið
verður upp á léttar hádegisveitingar.
Skráning fer fram á mba.is
TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA
KYNNINGARFUNDUR MBA-NÁMSINS Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
Guðrún Eva Gunnarsdóttir,
fjármálastjóri Haga
Egill Jóhannsson,
forstjóri Brimborgar Herdís Gunnarsdóttir,
forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Ingvar Már Gíslason,
markaðsstjóri Norðlenska
PI
PA
R\
TB
W
A
1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r4 markaðurinn