Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 24
„Í fyrirlestri mínum mun ég til
dæmis taka dæmi um hvernig
markþjálfun og leiklist getur spil-
að saman. Það er hvernig mark-
þjálfun getur nýst leikurum og
hvað við getum lært af tækni leik-
arans,“ segir Charlotte sem segir
margt sameiginlegt með þessu
tvennu. „Í báðum aðferðum er
spurt spurninga til að ná markmið-
um,“ segir hún.
Markþjálfun er ört vaxandi
grein um allan heim en hún kall-
ast á ensku „coaching“. Markþjálf-
un er samtal sem auðveldar fólki
eða stjórnendum að skilgreina
fagleg og persónuleg markmið,
gera þau framkvæmanleg og ná
þeim á árangursríkan hátt. Mark-
þjálfi spyr spurninga, beitir virkri
hlustun, veitir endurgjöf og hvet-
ur áfram.
Charlotte datt sjálf niður á
markþjálfunarnámið þegar hún
var við nám í Danmörku. „Ég
var í meistaranámi í leiklist og
kennslufræði. Þar rakst ég á hug-
takið „appreciative inquiry“ sem
snýst um að fókusera á hegðun eða
hugsun sem maður er ánægður
með og vill auka og hafa meira af
í stað þess að gagnrýna og breyta
því sem upp á vantar,“ segir Char-
lotte sem notaði þessa leið þegar
hún vann sem leikstjóri í „devised
theatre“ sem er í stuttu máli skap-
andi hópvinna. „Mér fannst þessi
fræði áhugaverð en vantaði tæki
til að spyrja þeirra spurninga sem
gætu opnað fyrir sköpunarkraft-
inn. Ég bætti því við mig námi í
markþjálfun sem hefur reynst mér
afar vel.“
Charlotte notar þannig mark-
þjálfun til að ná fram góðri
frammistöðu leikara og notar leik-
listaræfingar í markþjálfun þegar
fólk vill vinna með framkomu sína
og útgeislun. „Ég nota spurninga-
tæknina í markþjálfuninni sérstak-
lega sem leikstjóri til að hópurinn
finni sameiginlega sýn á verkið
fram undan.“
Hún segir markþjálfun alls ekki
nýja af nálinni þótt Íslendingar séu
nýlega farnir að nýta sér hana.
„Markþjálfunin snýst um að spyrja
spurninga, hlusta í staðinn fyrir að
segja fólki til, og opna þannig fyrir
ímyndunarafl fólks. Grunnurinn er
sá að fólk þekki sig sjálft best en
með markþjálfun fái það hjálp til
að fá fram það sem er ómeðvitað.“
Á Markþjálfunardeginum, sem
nú er haldinn í fjórða sinn, mun
Charlotte halda erindi um reynslu
sína af markþjálfun. Hún verð-
ur í góðum félagsskap annarra
fyrirlesara en þar má nefna for-
stjóra sem greinir frá árangursrík-
ari vinnubrögðum með aðferðum
markþjálfunar, prest sem grein-
ir frá áskorunum sínum í starfi,
framkvæmdastjóra sem ræðir leið-
togahlutverkið og mannauðsstjóra
sem er með markþjálfun á heilan-
um.
Grunnurinn er sá
að fólk þekki sig
sjálft best en með mark-
þjálfun fái það hjálp til að
fá fram það sem er
ómeðvitað.
Charlotte Bøving
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig
hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir,
solveig@365.is, s. 512 5351,
Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is,
s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434,
Jóhann Waage, johannwaage@365.is,
s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@365.is, s. 512 5429
blandar leikliSt
og markþjálFun
Charlotte Bøving, leikkona, leikstjóri og markþjálfi, heldur erindi á
Markþjálfunardeginum sem haldinn er á Hilton Reykjavík Nordica.
Charlotte Bøving er einn fjölmargra fyrirlesara á Markþjálfunardeginum sem haldinn er í fjórða sinn í dag. Mynd/PJetur
Nánar á minirmenn.is
Tómbóluverð, útsala og
kynningarafsláttur
Sjanghæ-rækjur
með súrsætri sósu
Thaí-kjúklingur
í rauðu karríi og grjón
eða
Ítalskt lasagna með salati
og hvítlauksbrauði
2 réttir=
1.490 kr. á mann
- Þetta er ekki djók!
Upplýsingar og pantanir:
magnusingi@gmail.com
Maggi, sími 696 5900
Save the Children á Íslandi
Allt sem þú þar ...
Skv. prentmiðlakönnun Gallup, okt.– des. 2015.
íbúa á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 12–80 ára lesa
Fréttablaðið daglega.*
59,9%
Sá öldi myndi fara langt með að fylla
sæti Laugardalsvallar tíu sinnum.
59,9% lesa
Fréttablaðið
29,9% lesa
Morgunblaðið
Allt sem þú þar ...
Skv. prentmiðlakönnun Gallup, okt.– des. 2015.
íbúa á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 12–80 ára lesa
Fréttablaðið daglega.*
59,9
Sá öldi myndi fara langt með að fylla
sæti Laugardalsvallar tíu sinnum.
59,9% lesa
Fréttablaðið
29,9% lesa
Morgunblaðið
2 FÓLK Viðburðir 17. febrúar 2016