Fréttablaðið - 17.02.2016, Síða 29
Á DesignMatch, kaupstefnu á vegum
HönnunarMars í samstarfi við Arion
banka, býðst hönnuðum að hitta
erlenda kaupendur og framleið-
endur sem annars er erfitt að komast
í kynni við. Þetta er dýrmætt tæki-
færi fyrir íslenska hönnuði og öll
árin hefur einhver hönnuður náð
að tengjast erlendu fyrirtæki að
sögn Elínar Þorgeirsdóttur, ritstjóra
og fjölmiðlafulltrúa HönnunarMars.
DesignMatch verður haldin í
sjöunda skipti í ár. Á kaupstefnunni
sækja íslenskir hönnuðir um að fá
viðtal við hönnunarhús sem getur
svo leitt til samvinnu milli aðilanna.
„Það er sjaldgæft að stofnun á
borð við Hönnunarmiðstöð búi til
þennan vettvang fyrir hönnuði til
að koma sér á framfæri alþjóðlega.
Við erum með frábæra hönnuði á
Íslandi, en til að ná árangri í við-
skiptum, þá þarftu eiginlega að ná
athygli á alþjóðamarkaði. Kaup-
stefnan styttir þessi skref fyrir
hönnuðina,“ segir Elín.
Í ár koma mörg þekkt fyrirtæki til
landsins, meðal annars Ferm Living,
og Normann Copenhagen frá Dan-
mörku, og Vitra, Artek sem er frá
Svíþjóð og Sviss, auk tískufyrirtækj-
anna Wood Wood og Aplace.
Í fyrsta sinn munu sérvaldir
erlendir blaðamenn, meðal annars
frá tímaritunum Dezeen, Frame og
Elle Decoration, taka þátt í kaup-
stefnunni. Þátttakendur munu því
eiga möguleika á viðtali og kynn-
ingu í einhverjum af leiðandi hönn-
unarmiðlum heims.
Íslensk fyrirtæki á borð við Epal
og Sýrusson taka einnig þátt í fyrsta
skipti. Elín segir mikið tækifæri
liggja í því fyrir íslenska hönnuði.
„Það er erfitt fyrir fyrirtækin að
fylgjast með öllu sem er að gerast í
hönnun á landinu. Við vonum að
þarna gerist einhverjir töfrar.“ – sg
Ísland að verða álitið hönnunarland
Elín Þorgeirsdóttir segir að öll árin á DesignMatch hafi einhver íslenskur hönnuður
náð að tengjast erlendu fyrirtæki. Fréttablaðið/StEFán
Golfbúðin í Hafnarfirði hefur verið sektuð
um 50 þúsund krónur fyrir ófullnægjandi
verðmerkingar.
Skoðaðar voru verðmerkingar í golfversl-
unum í október og í framhaldi af því voru
gerðar athugasemdir við forsvarsmenn
Golfbúðarinnar með bréfi. Aftur var verðið
skoðað í desember og athugasemdir gerðar
á ný með bréfi þann 21. janúar.
Athugasemdinni var fylgt eftir með sekt
sem lögð var á hinn 8. febrúar síðastliðinn.
Samkvæmt lögum ber fyrirtækjum sem
selja vöru eða þjónustu að verðmerkja vöru
sína og þjónustu og sýna það á áberandi hátt
á sölustaðnum.
Golfbúðin fékk 50
þúsund í sekt
Sérfræðingar hjá JP Morgan telja að tekjuum-
hverfi fjárfestingabanka sé ekki gott um þessar
mundir. Fréttablaðið/GEtty
Sérfræðingar hjá JP Morgan Securities hafa
lækkað tekjuspá sína fyrir fjárfestingabanka
á árinu um að meðaltali tuttugu prósent.
Þeir telja að tekjumöguleikar fjárfestinga-
banka hafi ekki verið góðir það sem af er ári.
Vegna sveiflukenndra markaða um þessar
mundir sé erfiðara fyrir fjárfestingabankana
að hagnast með hefðbundnum viðskipta-
háttum.
Sérfræðingarnir telja að lækkun á hluta-
bréfamörkuðum nýverið bendi til þess að
markaðir séu óheilbrigðir. Þeir telja að virði
hlutabréfa gæti komið til með að lækka enn
frekar á árinu. Jafnvel þótt markaðir róist á
ný gæti tímabil minni starfsemi á mörkuðum
fylgt á eftir eins og hefur gerst áður. – sg
Spá 20 prósent
lægri tekjum
Útflutningur á vodka og öðru áfengi frá Rúss-
landi dróst saman um 40 prósent í fyrra, í
samanburði við árið áður.
Rússneska dagblaðið Kommersant greinir
frá trúnaðargögnum þessa efnis í gær og
þau sýna að útflutningur á áfengi hefur ekki
verið minni síðan 2005. Þá hefur verðmæti
útflutningsins dregist saman úr sem nemur
24 milljörðum íslenskra króna í 14,5 millj-
arða íslenskra króna.
Mesti samdrátturinn hefur orðið á sölu
til Úkraínu, en þar nemur samdrátturinn 70
prósentum. Enda eru viðskipti milli Rússa
og Úkraínumanna í algjöru lágmarki eftir
að Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014
og studdu uppreisnarmenn í austurhluta
Úkraínu.
Stærsti markaðurinn fyrir vínið er aftur á
móti Bretland.- jhh
Rússar selja minna
af vodka Auður Bjarnadóttir ráðgjafi
Ráðningar stjórnenda og sérfræðinga
Stundum reddast allt
— stundum ekki
Ármúli 13
108 Reykjavík
540 1000
capacent@capacent.is
www.capacent.is
Ekki taka gömlum sannleik sem gefnum.
Það þarf áræðni og kjark til að líta hlutina
nýjum augum og fá ferska sýn á þá.
markaðurinn 9M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . f e b R ú A R 2 0 1 6