Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 44
Fólk| tíska 11. Desember „Ég er mikil kjólakona og dressa mig alveg upp þó það sé ekkert tilefni. Enda á maður að lifa í núinu.“ Þetta er gott tækifæri til þess að nota kjólana mína en ég á yfir þrjá- tíu kjóla í skápnum. Ég verð aldrei í sama kjólnum fram að jólum,“ segir Hulda Jóns dóttir en hún ákvað að klæðast nýjum kjól á hverjum degi frá 1. desember og fram að jólum. Gjörninginn skrásetur hún á Instagram undir #kjóladaga- talið2015. „Ég fékk innblástur úr ýms- um áttum. Með þessu fer ég líka út fyrir þægindarammann, ég fer í alls konar kjóla sem ég hef kannski ekki notað í mörg ár og stundum er áskorun að troða sér í þá,“ segir hún hlæj- andi en viðurkennir að vera mikið fyrir að klæða sig upp. „Ég er mikil kjólakona og dressa mig alveg upp þó það sé ekkert tilefni. Enda á maður að lifa í núinu og ekki að geyma sér eitthvað þar til eitthvert sérstakt tilefni verður til að nota það. Ég er mikið kamelljón og erfitt að staðsetja minn stíl ein- hvers staðar. Ég er litaglöð en á líka svarta kjóla. Marga hef ég saumað sjálf eða keypt notaða og jafnvel breytt þeim. Ég kaupi oft íslenska hönnun og nota netið talsvert til að versla. Sendi svo systur mína í búðirnar í Reykjavík til að máta,“ segir Hulda en hún býr á Akureyri og vinnur hjá Menningarráði Eyþings. Dætur hennar tvær voru klæddar upp fyrsta dag kjóla- dagatalsins en Hulda segir þær þó misáhugasamar og fljótlega hafi sú hugmynd að þær yrðu með dottið upp fyrir. „Strax á degi tvö neitaði sú eldri að vera með svo þetta hefur bara þróast. Ég píndi hana þó til að vera með mér á mynd á afmælinu hennar, þá var hún í prinsessukjól og ég í kjól sem mér þykir vænt um. Þær eru misáhugasamar um kjóladagatalið frá degi til dags en sú eldri kallaði mig reyndar „litla kjólabarn“ um daginn,“ segir Hulda. „Mér finnst þetta bara skemmtilegt og hef gam- an af því að vera klædd í kjól við alls konar hversdagslegar athafnir, eins og að baka eða við að moka snjó. Samstarfs- fólk mitt er margt mjög áhuga- samt og fylgist vel með hvort ég sé nokkuð að svindla.“ Ertu búin að ákveða jóla- kjólinn? „Eiginlega, nýjasta viðbótin í safninu fær líklega að njóta sín en það gæti breyst á síð- ustu stundu. Ég á reyndar þrjá síðkjóla en þeir verða ekki með í kjóladagatalinu. Einn þeirra er brúðarkjólinn minn og annar er bara of glyðruleg- ur,“ segir Hulda og skellir upp úr. „En ég er alls ekkert hætt að kaupa mér kjóla. Maður getur alltaf á sig kjólum bætt.“ Þarf ekki til- efni„Ég er mikil kjólakona og dressa mig alveg upp þó það sé ekkert tilefni. Enda á maður að lifa í núinu.” 1. Desember Mæðgurnar uppdress- aðar fyrsta dag kjóladagatalsins. 12. Desember Sú stutta í afmælisprinsessukjól og fékkst til að vera með á mynd. 10. Desember Bakstursdagur. Hulda segir skemmtilegt að vera klædd í kjól við hinar og þessar hversdagslegar athafnir. 2. Desember Sú yngri ánægð með kjólinn sinn. 15. Desember Svarti kjóllinn er í sér- stöku uppáhaldi. Hann gengur við allt og á við öll tilefni. kjólaDagatalið 2015 jólakjólar Hulda Jónsdóttir ákvað að klæðast nýjum kjól á hverjum degi til jóla. Hún segir það bæði áskorun og skemmtun, fínir kjólar eigi hreint ekki að hanga óhreyfðir inni í skáp. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook 14.900 kr. Str. 36-48 Litir: svart, blátt Buxur í jólapakkann Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 Vertu einstök – eins og þú ert stærðir 38-52 my styleStærðir 38-52 Netverslun á tiskuhus.is Smart föt fyrir smart konur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.