Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 10
Haldið þið að það skipti sköpum fyrir manneskju sem er að taka ákvörðun um að flýja heimalandið á fölsuðum vegabréfum að hún verði hugsanlega látin sitja inni á Íslandi í fimm- tán daga? Páll Winkel fang- elsismálastjóri „Þetta er fáránlegt. Þetta skilar ein­ vörðungu álagi á fangelsiskerfið og er óþarfi,“ segir Páll Winkel fangelsis­ málastjóri um svokölluð passamál erlenda ríkisborgara sem eru hand­ teknir fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til landsins. Frá 2010 hafa 168 einstaklingar verið dæmdir og setið í íslenskum fangelsum vegna þessa. Sólarhringur í fangelsi á Íslandi kostar um það bil 24 þúsund krónur á hvern fanga. Sé kostnaður vegna þessa gróflega reiknaður eru það rúmlega 60 millj­ ónir. Inni í því er ekki lögfræðikostn­ aður og annar kostnaður sem greið­ ist af ríkinu vegna fyrirtöku málanna í íslenskum dómstólum. Páll segir Fangelsismálastofnun ítrekað hafa bent yfirvöldum á að engu skili að fangelsa þessa einstak­ linga sem um ræðir. „Refsing skilar engu og hefur ekki þau varnaðar­ áhrif sem refsingar eiga að hafa. Haldið þið að það skipti sköpum fyrir manneskju sem er að taka ákvörðun um að flýja heimalandið á fölsuðum vegabréfum að hún verði hugsanlega látin sitja inni á Íslandi í fimmtán daga?“ Dómurinn fyrir brot af þessu tagi er langoftast þrjátíu daga fangelsisvist, en að því gefnu að fólk brjóti engin agaviður­ lög á meðan á vistinni stendur situr það aðeins inni í fimmtán daga. Sextíu milljónir í tilgangslaus passamál Frá 2010 hafa 168 erlendir ríkisborgarar verið dæmdir og afplánað refsingu fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi við komu til landsins. Fangelsismálastjóri segir ferlið tilgangslaust, kostnaðarsamt og að oft sé um að ræða fórnarlömb mansals. – fyrst og fremst ódýr! *GILDIR Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Aðeins í dag fimmtudag 50% afsláttur Fylgstu með Jóladagatali Krónunnar. Ný tilboð til jóla. 499kr.kg Verð áður 999 kr. kg Vínber, græn, rauð og blá. *Gildir 17. desember Fylgstu með Jóladagatalinu á facebook síðu Krónunnar Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Fangelsismál Refsing eða betrun? ↣ Fréttin er hluti af greinaflokki um fangelsismál. Fleiri greinar munu birtast um málið á næstu dögum og vikum. Spennandi beinasýning Gestir skoða beinagrind grameðlu (Tyrannosaurus Rex) sem fengið hefur nafnið „Tristan Otto“ og er til sýnis á Náttúruminjasafninu í Berlín. Beina- grindin, sem er um fjögurra metra há og tólf metra löng, er höfuðgripur nýrrar sýningar um risaeðlur sem opnuð verður gestum í dag. Fréttablaðið/EPa ✿ Fjöldi dæmdra 2010-2015 fyrir framvísun falsaðra vegabréfa við komu til landsins 2010 2011 2012 2013 2014 2015 =168 21 34 41 18 23 31 Gróflega reiknaður kostn- aður Fangelsismálastofnunar við passamál síðan 2010 60.480.000 kr. Nokkuð hefur verið fjallað um plássleysi í fangelsiskerfinu hér á landi, en tæplega fimm hundruð manns eru nú á biðlista eftir að hefja afplánun. „Það skilar engu að fangelsa þetta fólk. Það kostar pening og tekur pláss.“ Páll segir flesta þá sem eru hand­ teknir einungis vera að millilenda hér á leið sinni annað. Hann segir grunsemdir oft hafa vaknað um að viðkomandi sé fórnarlamb mansals og sé sent milli landa á fölsuðum vegabréfum. Fólkið stoppar stutt við, því sé erfitt að veita því hjálp og í mörgum tilfellum eigi starfsfólk fangelsanna erfitt með að skilja við­ komandi. „Það sem við sjáum að mörg eiga sameiginlegt er að þau eiga mjög erfitt. Fólk er illa statt. Flestir eru að flýja slæmar aðstæður og hafa engin tengsl við Ísland. Við fangelsum þetta fólk og til hvers? Það hefur engin áhrif, fólkið situr inni í 15 daga og er svo bara farið úr landi,“ segir hann. Afplánun þessa fólks á sér stað í beinu framhaldi af gæsluvarðhaldi og því er það í forgangi að hefja afplánun. „Við höfum velt því fyrir okkur þegar staðan er hvað erfiðust að hleypa þeim bara út. Einhvern tím­ ann var þessi stefna mótuð að taka hart á þessu fólki og dæma það í óskilorðsbundið fangelsi.“ Flestir þeir sem teknir hafa verið við komu til landsins eru frá Nígeríu og Íran, eða 19 frá hvoru landi. Þá hafa sextán verið gripnir frá Sómal­ íu, fimmtán frá Albaníu, fjórtán frá Georgíu og þrettán frá Sýrlandi, svo eitthvað sé nefnt. Bandaríkin Seðlabanki Bandaríkj­ anna hækkaði stýrivexti um 0,25 pró­ sentustig í gær. Vextir bankans fara úr því að vera 0,0 til 0,25 prósent í 0,25 til 0,5 prósent. Janet Yellen seðlabanka­ stjóri kynnti hækkunina sem er sú fyrsta í níu ár. Vextirnir hafa haldist óbreyttir frá því í desember árið 2008. Vegna bættra efnahagsskilyrða í Bandaríkj­ unum og til að senda þau skilaboð að hlutirnir séu á batavegi var ákveðið að hækka þá nú. Í gær greindi Fréttablaðið frá því að ef af vaxtahækkunum yrði kæmi gengi dollara líklega til með að styrkj­ ast, auk þess að hækkunin gæti gert nýmarkaðsríkjum erfitt fyrir. Undan­ farin sjö ár hafa nýmarkaðsríki tekið lán og gefið út skuldabréf í Banda­ ríkjadölum fyrir 3.300 milljarða Bandaríkjadali. Gengi gjaldmiðla þessara ríkja gagnvart dollaranum hefur veikst verulega í ár og veikist líklega enn frekar. Auk þess sem greiðslubyrðin mun þyngjast sökum hærri vaxta. CNN Money greinir frá því að meðal þeirra landa sem stýri­ vaxtahækkun gæti haft verulega nei­ kvæð áhrif á séu Brasilía, Tyrkland og Suður­Afríka. – sg Stýrivextir hækkaðir vestra Janet Yellen, seðlabankastjóri bandaríkjanna 1 7 . d e s e m B e r 2 0 1 5 F i m m T U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.