Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 68
Stóri skjálfti er besta skáldsagan að mati bóksala
Tilkynnt var um Bóksalaverðlaunin 2015 í gærkvöldi. Yfir 50 bóksalar víðs vegar að af landinu standa að valinu og
kosið er til verðlauna í níu flokkum. Bækurnar sem hljóta fyrsta sætið í hverjum flokki öðlast rétt til að bera verð-
launamiða félagsins en auk þess munu bóksalar leggja sig fram um að hafa allar verðlaunabækur sýnilegar í bóka-
búðum fram að jólum. Bóksalaverðlaunin njóta vaxandi áhuga almennings.
Besta íslenska skáldsagan að mati
bóksala í ár er Stóri skjálfti eftir
Auði Jónsdóttur. Í Stóra skjálfta
segir frá ungri konu sem rankar
við sér eftir stórt flogakast við
Miklubrautina og sonur hennar
er á bak og burt. Við taka erfiðir
dagar minnisleysis í tættri veröld
þar sem unga konan berst við að
púsla lífinu saman.
Þegar náðist í Auði var hún
óneitan lega í smá áfalli eftir að
hafa ruglast á dagsetningum fyrir
jólaball í leikskóla sonar síns
en verðlaunin voru henni þó að
sönnu gleðitíðindi. „Ég? Vá, en
gaman, í alvöru ég klökkna bara,“
segir Auður og undrun og gleði
leynir sér ekki. „Ég er nefnilega
gamall bóksali sjálf. Vann í bóka-
búðum eiginlega frá því að ég var
krakki og þar til ég fór að gefa út
sjálf. Ég á mikið af minningum úr
bókabúðinni enda er afskaplega
gaman að vinna í bókabúð. Það
er í alvörunni með því skemmti-
legra sem ég hef gert. Í Danmörku
fékk ég meira að segja einu sinni
að vinna í bókabúð sem sjálfboða-
liði því mér finnst það svo gaman.“
Stóri skjálfti hefur fengið ákaf-
lega góðar viðtökur og sumir hafa
velt því fyrir sér hvort Auður sé
þarna að skrifa um sitt eigið líf en
hún segir það nú ekki vera tilfellið.
„Þetta er ekki mitt líf í orðsins
fyllstu merkingu en ég nota það
sem ég þekki eins og til að mynda
flogaveikina eins og henni er lýst
þarna. Þannig er það að maður
notar eitthvað úr lífinu sem gerir
skáldskapinn trúverðugan.“
Nú lætur ungur sonur Auðar
heyra hraustlega í sér og hún segir
frá því að hún hafi klikkað á jóla-
ballinu. „Ég er satt best að segja
alveg að farast úr samviskubiti svo
þessi góðu tíðindi eru nú aðeins til
þess að létta mér lífið. Málið er að
börn og mæður er það sem fyllir
mann samviskubiti og Stóri skjálfti
er nú dáldið mikið um það svo ætli
mitt eigið líf sé ekki þarna meira
en ég hafði gert mér grein fyrir.“
Vann sem sjálfboðaliði í bókabúð í Danmörku
Besta þýdda skáldsagan að mati
bóksalanna er Spámennirnir í
Botnleysufirði eftir Danann Kim
Leine í þýðingu Jóns Halls Stefáns-
sonar. Skáldsagan er lauslega byggð
á sönnum atburðum í dansk-norska
konungsveldinu í lok átjándu aldar.
Sögusviðið spannar mannlíf höfuð-
borgarinnar sem og nýlendubyggðir
Grænlands og víðar en Spámennirnir
í Botnleysufirði tryggðu Kim Leine
Bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs árið 2013.
Jón Hallur er búsettur í Danmörku
og segist einnig hafa dvalið aðeins á
slóðum sögusviðsins í Grænlandi. „Ég
hef verið þarna, reyndar á sama stað
og Kim Leine, þarna á austurströnd-
inni. Þannig að ég þekki aðeins
stemninguna og tengi kannski aðeins
meira við þetta samfélag fyrir vikið.“
Jón Hallur segir þetta vera afskap-
lega gleðileg tíðindi en að hans
góði útgefandi, Bjarni Harðarson
hjá bókaútgáfunni Sæmundi, hafi
nú verið búinn að lauma þessu að
honum. „En þetta er ótrúlega ánægju-
legt. Ég þurfti nú að berjast soldið
fyrir að þessi bók kæmi út og síðan
tók Bjarni við þessu af sínum höfð-
ingsskap. Viðbrögðin hafa svo verið
framar björtustu vonum eins og
mig grunaði reyndar að það mundu
margir fá mikla nautn af því að lesa
þessa bók. Ég sóttist eftir því að þýða
þessa bók því mér fannst þetta svo
heillandi texti og þessi saga sækir á
mann.
Annars finnst mér þessi tilnefning
vera afar ánægjuleg vegna þess að
bóksalar eru ákaflega mikilvægt fólk
fyrir bókaheiminn og þetta sýnir mér
að þessi bók er að heilla fólk og það
er það sem skiptir öllu máli.“
Sóttist eftir að þýða þessa bók
Jón Hallur Stefánsson, þýðandi.
Fréttablaðið/VilHelm
auður Jónsdóttir við miklubrautina þar sem Stóri skjálfti hefst.
Fréttablaðið/GVa
Íslenskar barnabækur
1.-2. Koparborgin
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
1.-2. mamma klikk
Gunnar Helgason
Þýddar barnabækur
1. Strákurinn í kjólnum
David Walliams
Íslenskar ungmennabækur
1. Skuggasaga: arftakinn
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Þýddar ungmennabækur
1. Þegar þú vaknar
Franziska Moll
Handbækur / fræðibækur
1. Stríðsárin 1938 - 1945
Páll Baldvin Baldvinsson
besta ævisagan
1. munaðarleysinginn
Sigmundur Ernir Rúnarsson
besta ljóðabókin
1. Frelsi
Linda Vilhjálmsdóttir
besta þýdda skáldsagan
1. Spámennirnir í botnleysufirði
Kim Leine
besta íslenska skáldsagan
1. Stóri skjálfti
Auður Jónsdóttir
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
menning