Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 24
Við borðum meira þegar margir sitja og snæða saman. Þetta er ein af ástæðum þess að við borðum svo mikið í desember að við erum við það að springa, hefur danska ríkisút- varpið eftir Morten Sehested Müns- ter, sérfræðingi í hegðun neytenda. Hann segir að við borðum 33 pró- sentum meira þegar við borðum með öðrum einstaklingi. Það kunni að skýra hluta af ástarskvapinu. Ef við erum í stórri veislu borðum við 95 prósentum meira heldur en þegar við erum ein. Sérfræðingurinn segir að einnig megi sjá þessa hegðun hjá dýrum. Um sé að ræða félagslegar væntingar tengdar því  að borða í takt við aðra. Samtímis staðfestum við að maturinn sé ljúffengur. „Rannsóknir hafa leitt í ljós að því auðveldara sem það er að fá mat þeim mun meira borðum við. Þess vegna borðum við meira þegar stór- ar skeiðar eru á hlaðborðinu heldur en til dæmis tangir og við borðum mest af því sem er næst okkur,“ segir Münster í viðtalinu. Þegar hann ræðir um hefðina að borða eins mikið og maður getur á jólunum nefnir hann meðal annars það sem hann kallar „what the hell- áhrifin“. Maður viti vel að maður hefur borðað of mikið en leiðir það hjá sér og hugsar sem svo að þar sem maður hafi borðað svona mikið sé alveg eins gott að halda áfram. Auk þess ætli sér margir að taka sig á á nýju ári og það hafi þau áhrif að þeir borði meira. Þegar maður viti að takmörkun á mat sé framundan verðlauni maður sig áður. Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að til að njóta sem mest bragðsins af matnum  á maður að anda rólega meðan maður borðar. Á vísindavefnum forskning.no segir að gott bragð hafi ekki bara með bragðlaukana á tungunni og í gómnum að gera. Ilmefni sem flytj- ist úr munninum til lyktarfrumna í nefinu séu mikilvæg. Vísindamenn við Yale- og Pen State-háskólana í Bandaríkjunum hafa nú slegið því föstu að ilmur frá bæði mat og drykk finni sér leið frá aftari hluta munnsins og upp í nefið vegna lofts sem maður andar rólega frá sér. Þetta uppgötvuðu vísinda- mennirnir þegar þeir gerðu tilraunir með þrívíddarmynd af hálsi, munni og nefi. Myndin gerði þeim kleift að rannsaka betur loftstraumana frá munninum í gegnum nefgöngin og inn í nefið. Greint er frá því að það hafi komið vísindamönnunum á óvart hversu flutningur ilmefnanna var miklu meiri þegar andað var rólega heldur en þegar andað var hratt. ibs@frettabladid.is Þess vegna borðum við meira í desember Danskur sérfræðingur í hegðun neytenda segir að við borðum 95 prósentum meira þegar við erum í stórri veislu heldur en þegar við erum ein. „Rannsóknir hafa leitt í ljós að því auðveldara sem það er að fá mat þeim mun meira borðum við. Þess vegna borðum við meira þegar stórar skeiðar eru á hlaðborðinu heldur en til dæmis tangir og við borðum mest af því sem er næst okkur,“ segir danskur sérfræðingur í hegðun neytenda. NORDICPHOTOS/GETTY 95% meiri er neyslan þegar við neytum matar í stórri veislu heldur en þegar við borðum ein. VINNINGASKRÁ Hausthappdrætti 2015. Dregið 14. desember 2015 1. vinningur: Nýr Opel Insignia Cosmo disel Turbó, sjálfskiptur, Bílabúð Benna. Verðmæti: 5.128.000 kr. Miði nr. 88838 2. vinningur: Nýr Opel Mokka Enjoy, Turbó, sjálfskiptur, Bílabúð Benna. Verðmæti 4.690.000 kr. Miði nr. 115086 3. vinningur: Nýr Opel Corsa Enjoy, sjálfskiptur, Bílabúð Benna. Verðmæti 2.890.000 kr. Miði nr. 2738 4. - 43. vinningur: Ferðavinningur að eigin vali með Heimsferðum. Hver að verðmæti 500.000 kr. 2799 25867 42646 57096 70346 91060 106733 134077 3814 27118 49388 61939 76550 96792 116579 136937 6964 28946 52336 62536 79556 98802 119748 139318 19028 30999 52960 62666 79627 99692 121103 149084 20996 34797 55470 70103 81213 102624 126831 156090 44. - 93. vinningur: Ferðavinningur að eigin vali með Heimsferðum. Hver að verðmæti 300.000 kr. 699 11870 27321 39374 60876 83317 105809 122606 137785 5378 14774 32585 39740 64745 85359 111610 126794 138596 5386 18014 32697 40412 67205 91260 118367 127655 146413 6536 19909 36844 47856 71739 93640 118844 132126 152985 9543 24209 36907 52924 82097 93887 121715 135854 10143 26046 37170 56987 83090 100370 94. - 173. vinningur: Samsung Galaxy S6, snjallsími að verðmæti 124.900 kr. 1382 14317 23477 36931 61814 77420 99060 125265 141878 4352 16101 27410 49008 65735 78773 103891 129711 143196 4956 16993 28452 50202 66176 80270 108669 131126 145073 7202 17024 29068 50573 68677 80378 108883 134503 148490 7947 17450 29757 50662 71902 86520 109178 135065 151891 8756 19539 30002 52489 75085 86577 111908 136468 152364 9528 21255 34522 52605 75578 90147 117388 137342 153544 11096 22828 35725 55363 75964 96081 120359 141336 154271 14105 23417 35877 58310 76689 98416 124585 141552 174. - 293. vinningur: Samsung Tab S2 spjaldtölva að verðmæti 99.900 kr. 732 25093 38260 56039 76180 99576 120363 133639 1339 27700 38914 57227 81357 102857 123591 135340 2465 28356 39326 58298 82323 106022 124343 139677 2632 30505 40996 58407 83261 108004 125045 140005 7599 32316 42203 61411 84135 108535 125880 143163 8714 32423 48329 63022 85890 112184 126149 143570 11173 32455 48511 64767 86287 115823 127171 144118 20129 35614 51141 68134 94546 117041 127507 151989 21719 36885 51397 68572 96743 117520 131156 152817 23424 37829 52656 73998 98056 119617 133466 156029 Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17. Upplýsingasími 525 0000. Birt án ábyrgðar. Á sunnudaginn gefst síðasta tæki- færið til að rekast á  jólasveina á vappi í Árbæjarsafni fyrir jól. Á vefsíðu safnsins segir að jóla- sveinarnir verði þar kl. 14 til 16 en dansað verður í kringum jólatréð á torginu kl. 15. Í safninu verður hægt að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Börn og fullorðnir geta föndrað, búið til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ verður hangikjöt í potti og gestum boðið að bragða á nýsoðnu keti. Í Efstabæ er skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti er sýnt hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Í Árbænum er laufa- brauð skorið út. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í krambúðinni verður til sölu jóla- varningur, kramarhús og konfekt. Aðgangseyrir er 1.400 k.r fyrir 18 ára og eldri. Frítt fyrir börn, eldri borgara (70+) og öryrkja. Jólasýning í Árbæjarsafni Dansað með sveinka í Árbæjarsafni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fjáröflunarátaki Barnaheilla, Jóla- peysunni, lýkur um áramótin. Dóm- nefnd kemur hins vegar saman á morgun, föstudag, og velur frumleg- ustu, ljótustu, fallegustu, vinsælustu og endurvinnslujólapeysuna. Verð- laun verða svo veitt á laugardaginn. Áheitaféð mun renna til verkefna Barnaheilla sem snúa að móttöku og mannúðaraðstoð fyrir sýrlensk flóttabörn og fjölskyldur þeirra í móttökulöndunum við Sýrland. Nú þegar veturinn er brostinn á er þörfin fyrir aðstoð mikil. Veita verðlaun fyrir jólapeysur fjölskyldan 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r24 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.