Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 4
Alþingi Lengstu umræðu um fjárlög
frá því rafræn skráning þingræðna
hófst lauk á fjórða tímanum í gær. Eftir
átta daga samfellda þingfundi um aðra
umræðu fjárlaga, sem oft á tíðum varði
fram á nótt, höfðu 1.758 ræður verið
haldnar í rúmar 87 klukkustundir,
langflestar þeirra haldnar af stjórnar-
andstöðu.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins kom það flatt upp á suma stjórnar-
andstöðuþingmenn þegar formaður
Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason,
boðaði í hádegisfréttum útvarps í gær,
að umræðum lyki þann daginn. Ekk-
ert samkomulag virðist hafa verið gert
milli stjórnar og stjórnarandstöðu.
Meirihluti á þingi hafði gagnrýnt
stjórnarandstöðuna harðlega fyrir
grímulaust málþóf og forsætisráð-
herra sagði í þingræðu að hér væri
stjórnarandstaðan að slá einn eitt
Íslandsmetið í málþófi.
Katrín Júlíusdóttir benti hins vegar
á að þessi barátta væri ekki háð til
einskis. Þetta væri leið minnihlutans
til þess að berjast fyrir auknum fram-
lögum til Ríkisútvarpsins og Land-
spítalans sem og því að öryrkjar og
aldraðir fengju einnig leiðréttingu á
kjörum sínum frá 1. maí síðastliðnum
eins og aðrir hópar þessa lands.
Atkvæðagreiðsla hófst að lokinni
annarri umræðu. Um þrjú hundruð
breytingartillögur lágu fyrir þinginu
og því tók það nokkra klukkutíma að
klára það verk. Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaganefndar, var ánægð
með að þessum umræðum væri loks-
ins lokið. „Ég er afar hamingjusöm og
ánægjulegt að umræðan hafi verið
stöðvuð. Mér fannst orðið svolítið
mikið af endurtekningum í umræðum
og langt síðan það gerðist að eitthvað
nýtt hefði komið fram í umræðunni.
Umræðan hafði fyrir löngu verið
tæmd,“ segir Vigdís.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmað-
ur Pírata, segir umræðurnar hafa verið
mjög góðar og innihaldsríkar. „Fyrir
mér var þetta ekki löng umræða. Við
vitum að þessi umræða er sú lengsta
frá upphafi en það má kannski segja að
umræður hafi þá í gegnum tíðina ekki
verið nógu langar. Hér var meirihluti
fjárlaganefndar með um þrjú hundruð
breytingartillögur og við gátum ekki
farið í gegnum þær allar á þessum tíma
svo dæmi sé tekið,“ segir Helgi.
Vigdís segist vona að þingið geti
klárað frumvarpið fyrir jól þó hún setji
það ekki fyrir sig að mæta milli jóla og
nýárs til þingfundar. Fjárlaganefndar-
fundur hefur verið boðaður í dag. „Ég
hef boðað fjárlaganefnd á fund og legg
kapp á að þetta komi sem fyrst aftur
til þings til að ljúka fjárlögum. Auðvi-
tað vona ég að við getum klárað þetta
fljótt og auðveldlega.“
sveinn@frettabladid.is
Farsímatrygging
Þú verður aldrei símalaus því við
lánum þér síma ef þinn er tryggður
Söluaðilar: Nova og Síminn
Viss ehf · Ármúla 7 · sími 445 4500 · www.viss.is
Viðskipti Stjórn Tækniþróunar-
sjóðs hefur valið þá aðila sem eiga
kost á úthlutun úr sjóðnum núna
í desember. Úthlutað er úr honum
tvisvar á ári og í þetta skiptið er búist
við því að 600 milljónir verði veittar
í styrki. Verkefnisstjórum sem hafa
sótt um úthlutun er boðið að ganga
til viðræðna um úthlutun áður en
fjármagnið er veitt. Heildarúthlutun
í ár nemur þá um 1.400 milljónum
en mun aukast um tæpan milljarð á
næsta ári.
Samkvæmt vefsíðu Rannís, sem
rekur Tækniþróunarsjóð, er gengið
til samningaviðræðna vegna 48 verk-
efna. Sigurður Björnsson, sviðstjóri á
rannsóknar- og nýsköpunarsviði hjá
Rannís, segir að þetta séu um 30 pró-
sent af þeim sem sóttu um. Úthlutað
er í þremur flokkum, það er frum-
herjastyrkur, verkefnastyrkur og
markaðsstyrkur og fer flokkunin eftir
því hvar verkefnin eru stödd.
Frumherjastyrkur er veittur aðilum
sem eru komnir tiltölulega stutt á veg
með verkefni sín. „Verkefnastyrkur,
þá eru menn bara komnir í fullan
kraft. Og í markaðsstyrk þá erum
við að aðstoða við að koma vörunni
á markað og undirbyggja fyrirtækið.
Oft eru menn að styrkja undirstöð-
urnar þegar menn fara á markað með
vöruna. Það er hlutverk þessa styrks,“
segir Sigurður.
Á meðal þeirra sem eiga kost á styrk
eru Mjólkursamsalan, sem þróar vín úr
mysu, Medilync fyrir tæki og hugbún-
að fyrir sykursjúka og Kerecis. Þá fær
Trappa, félag í eigu Þorbjargar Helgu
Vigfúsdóttur, styrk vegna þjálfunar og
meðferðar með heilbrigðistækni og
Digon Games fyrir markaðssetningu
tekjumódels í tölvuleikum. – jhh
Tækniþróunarsjóður úthlutar sex hundruð milljónum í desember
Medilync sem þróar búnað fyrir sykur-
sjúka fær líka styrk. NordicPhotos/Getty
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í pontu á þingfundi í gær. einar K. Guðfinnsson þingforseti stýrir fundinum, en umræður
um fjárlög hafa aldrei staðið lengur á fyrri þingum. FréttaBlaðið/aNtoN
Umræðu um fjárlög loks lokið
Lengstu umræðu um fjárlög sem staðið hefur á Alþingi lauk í gær. Ekkert samkomulag lá fyrir milli stjórnar
og stjórnarandstöðu. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, kvaðst ánægð með lok umræðunnar.
Hér var meirihluti
fjárlaganefndar með
um þrjú hundruð breytingar-
tillögur og við gátum ekki
farið í gegnum þær allar á
þessum tíma
svo dæmi sé
tekið.
Helgi Hrafn Gunn-
arsson, þingmaður
og formaður Pírata
Ég hef boðað
fjárlaganefnd á fund
og legg kapp á að þetta komi
sem fyrst aftur til þings til að
ljúka fjárlögum.
Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaga-
nefndar og þing-
maður Framsóknar-
flokks
sVeitArstjórnArmál Meirihlutinn í
Langanesbyggð er fallinn, öðru sinni á
árinu, eftir að Reynir Atli Jónsson vara-
oddviti klauf sig frá U-lista í sveitar-
stjórn. Deilt er um umboð oddvita
sveitarstjórnar, Siggeirs Stefánssonar,
vegna viljayfirlýsingar um stórskipa-
höfn í Finnafirði.
Í febrúar klauf Reynir Atli sig úr fyrri
meirihluta L- og N-lista og gerði sam-
komulag við U-lista um nýjan.
Reynir Atli bókaði á fundi sveitar-
stjórnar í gær að hann treysti sér ekki
til að vinna áfram með meirihlutanum.
„Í ljósi þess að varaoddviti getur ekki
stutt vinnubrögð oddvita í tengslum
við viljayfirlýsingu Finnafjarðarverk-
efnisins, telur hann meirihlutasam-
starfi sjálfhætt,“ segir í bókuninni.
Hvorki náðist í Reyni Atla Jóns-
son né Siggeir Stefánsson við vinnslu
fréttarinnar. – sa
Meirihlutinn í
Langanesbyggð
fallinn aftur
Frá Þórshöfn á langanesi. Meirihluti
sveitarstjórnarinnar hefur fallið tvisvar
á þessu ári. FréttaBlaðið/Pjetur
stjórnsýslA Sigríður Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari og samstarfsmenn
hennar ætla að taka sér frí frá hefð-
bundnum störfum frá og með næsta
mánudegi og nýta tímann til að flytja
í nýtt húsnæði. Opnað verður að nýju
að Suðurlandsbraut 4 þann 5. janúar
næstkomandi. Þetta kemur fram á vef
ríkissaksóknara.
Greint hefur verið frá því í fjöl-
miðlum að Ingibjörg Pálmadóttir hafi
keypt húsnæðið á Hverfisgötunni, þar
sem ríkissaksóknari var áður til húsa.
Stendur til að stækka húsnæði 101
hótels, sem er í eigu Ingibjargar. Eftir
kaupin á húsnæðinu auglýstu Ríkis-
kaup eftir nýju húsnæði til leigu. – jhh
Ríkissaksóknari
flytur milli húsa
BAndAríkin „Svívirðingar skila þér
ekki í forsetaembættið,“ sagði Jeb
Bush við Donald Trump í sjónvarps-
kappræðum í fyrrinótt.
„Ja, látum okkur sjá. Ég er í 43 pró-
sentum, þú í þremur. Til þessa hefur
mér gengið betur,“ svaraði Trump,
sem hvergi sparaði stóryrðin fremur
en í fyrri kappræðum repúblikan-
anna níu, sem allir sækjast eftir því
að verða forsetaefni flokks síns.
Þetta voru fimmtu sjónvarps-
kappræður repúblikana, í þetta
skiptið haldnar í Los Angeles, en
enn þá eru nærri ellefu mánuðir í
forsetakosningarnar.
Að þessu sinni snerist umræðan
ekki síst um öryggi bandarísku
þjóðarinnar og undarlega kröfu
Trumps um að banna öllum músl-
imum að koma til Bandaríkjanna.
Sumir frambjóðendurnir notuðu
tímann óspart til þess að gagnrýna
Trump og yfirlýsingagleði hans.
Bush fór þar fremstur og sagði
Trump góðan í hnyttnum tilsvörum.
Hins vegar væri hann „… glundroða-
frambjóðandi. Og hann yrði glund-
roðaforseti.“
Rand Paul skaut einnig á Trump
fyrir áform hans um að loka Inter-
netinu að hluta, svo öfgamenn geti
ekki notað það til að afla sér fylgis-
manna. – gb
Bush atyrðir Trump í tilnefningarslag
ted cruz, jeb Bush og donald trump á sviði í fyrrinótt. NordicPhotos/aFP
1 7 . d e s e m B e r 2 0 1 5 F i m m t U d A g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð