Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 32
Það eru forréttindi að vera boðið að taka þátt í friðarráð-stefnu á aðventu í borginni helgu. Saman voru komnir trúar- leiðtogar innan gyðingdóms, kristni og íslam. Borgin stendur 800 metrum yfir sjávarmáli í Júdeuhæðum. Í vestur er stutt niður á Miðjarðarhafs- ströndina. Í austur liggur leiðin rúma þúsund metra bratt niður á við. Þar í Jórdandalnum 250 metr- um undir sjávarmáli er að finna Jeríkó, elstu borg á jörðu. Borg Friðar Á hebresku er orðið Jerúsalem dregið af sömu rót og orðið friður „Shalom“ og „Salam“ á arabísku. Miklar aðventu-friðarvonir eru bundnar borginni bæði innan gyð- ingdóms sem kristni. Þó hefur lík- legast ekki verið eins mikið tekist á og barist um neina borg og þessa borg friðarins sem á sér um fjögur þúsund ára sögu. Jerúsalem er helgasta borg á jörðu í hugum gyðinga og kristinna manna og íslam gerir einnig tilkall til hennar. Borgin er skurðpunktur þrennra stóru eingyðistrúarbragða heimsins. Bræðurnir þrír Gamla testamentið er bakgrunnur eingyðistrúarhefðanna þriggja. Guðinn er aðeins einn þó svo að trúarritin eða túlkunargleraugun; Talmúd, Nýja testamentið og Kóraninn séu ólík. Trúarritin hafa orðið til á afar ólíkum tímum og við gjörólíkar aðstæður og eru því ekki samhljóma. Hver siðurinn fyrir sig hefur reynt að eigna sér almættið og sníða það að eigin sérþörfum. Með einstrengingshætti, afbrýðisemi og bókstafstrú hafa bræðurnir gert guð að vopni. Trúin, hefðin, siðurinn hefur verið notaður til að upphefja ættina, ættbálkinn, héraðið, land- svæðið, þjóðina, ríkið. Og með sama hætti útiloka aðra, refsa, skapa ótta og jafnvel fremja níðingsleg hryðju- verk. Krossfarirnar á miðöldum, helför gyðinga í hinu kristna Þýska- landi, hlutskipti Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza undir herstjórn Ísraelsmanna, sem og hryðjuverkin í París fyrir skömmu, tala sínu máli. Tilvistaröryggi En trúarhefðunum þrem var og er ekki ætlað að boða þrjá ólíka Guði. Það sem tengir saman er margfalt fleira og mikilvægara en það sem sundrar. Þar ber hæst áhersluna á samhygð, náungakærleika og sam- hjálp. Þann grunn er að finna í sjálfu Gamla testamentinu. Kjarni trúarbragðanna er ekki hin eina sanna opinberun í okkar helgi- ritum, eða boð og bönn til að greina okkur frá hinum. Nei. Kjarni trúar- bragðanna er að veita okkur öllum tilvistaröryggi. Trúarþörf fólks er yfirleitt leit að tilvistaröryggi. Að við fáum tilfinningu fyrir því hvaðan við komum, hver við erum, hvert við stefnum og að við séum hluti af stærri heild. En trúarstofnanir og misvitrir trúarleiðtogar hafa gert út á þessa eðlisþörf okkar og snúið göfugum gildum á hvolf. Er trúin vandinn eða lausnin? Þegar fulltrúar trúarhefðanna setj- ast niður og tala saman þá verða allir að gefa aðeins eftir. Hluti vandans liggur hjá trúarleiðtogum og í því hvernig þeir skilja sitt hlut- verk. Margir leggja alla áherslu á sína einu réttu trúarhefð og fornu rit sem Guð einn talar í gegnum og engum öðrum er gefinn. Leiðtog- arnir; rabbínar, ímamar eða prestar geta einir túlkað Guðs eina heilaga orð. Það gefur þeim völd og áhrif. Það getur verið erfitt fyrir áhrifa- mikla og volduga trúarleiðtoga að viðurkenna þetta. Lausn – ný viðmið Trúarlegir leiðtogar þurfa að temja sér ný viðmið og læra að hugsa út fyrir kassalagaðar hefðir. Mikilvægt er að forðast allt tal um algildan sannleika eða endanlegar opinber- anir. Aðeins Guð einn er óbreytan- legur. Allt annað er breytingum háð. Meira að segja hugmyndir okkar um Guð, þær eiga að breytast því að Guð er stöðugt að og okkur er ætlað að læra nýja hluti. Þannig uppgötv- um við ný sannindi um okkur sjálf, um náungann og um Guð í gegnum samskipti okkar við náungann. Því þar er jú Guð að finna samkvæmt orðum Jesú frá Nazaret. Að brjóta niður aðskilnaðarmúrinn Trúarbrögðunum er ekki einum um að kenna. En þau þurfa að kannast við sína ábyrgð. Hvernig þau hafa vissulega verið notuð til að reisa aðskilnaðarmúra í stað þess að byggja friðarbrýr. Við eigum að draga lærdóm af biturri átakasögu. Þegar helgar ritningar eru mis- notaðar þá þurfum við að leita Guðs handan ritninganna. Við leitum Guðs handan útilokandi trúarjátninga, handan einstreng- ingslegra hefða, handan þröng- sýnnar bókstafshyggju og jafnvel handan trúarbragða þegar þau eru misnotuð. Við þurfum að opna friðarvoninni leið í gegnum múr- inn. Við þurfum að brjóta niður múra haturs og tortryggni. Skapa aðventu eftirvæntingar um sátt og samlyndi milli hefðanna þriggja. Friður í Jerúsalem á aðventu Þær eru æði margar, hefðirnar sem lífga upp á tilveruna ár hvert þegar líða fer að jólum. Jólasveinar koma til byggða hver á eftir öðrum, daglegt líf tekur að hverf- ast um jólatónleika og kökubakstur, jólageit IKEA tortímist með dular- fullum hætti. Um svipað leyti fer af stað, ár eftir ár, sérkennileg umræða um tilgang og tilkostnað Ríkisút- varpsins, knúin áfram af pólitískum öflum sem eru sneydd skilningi á því sem vera má menningu þjóðarinnar til heilla og framfara. Um leið er þetta skólabókardæmi um niðurrifsaðferð sem hægrimenn hafa tamið sér. Framlag til ríkisstofnunar er skert svo mjög að hún getur ekki uppfyllt skyldur sínar; þetta veldur „slakri frammistöðu“ sem svo má nota til að rökstyðja enn grimmari niðurskurð að ári. Þannig má jafnvel leggja í rúst hin mestu þarfaþing á skömmum tíma. Margt hefur undanfarna mánuði verið ritað um tilgang Ríkisútvarps- ins og óþarfi að tíunda það hér. RÚV er einn af hornsteinum samfélags okkar, hefur ákveðna sérstöðu (og lagalegar skyldur) þegar kemur að menningu, listum, sögu – öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur sem ekki hefur þegar verið ofurselt innantómri markaðshyggju. Ríkisút- varpinu ber að miðla okkur fróðleik, efna til umræðu, varðveita og dreifa til okkar á nýjan leik því efni sem þar hefur safnast saman á 85 ára sögu þess. RÚV er akkeri okkar í ólgusjó. Ef ekki væri fyrir dagskrána þar væri til dæmis fátt sem benti til þess í íslenskri ljósvakamiðlun að Ísland er eitt Norðurlandanna, að við erum þjóð í Evrópu en ekki smábær í Texas, að saga okkar nær lengra aftur en til dagsins í gær, að hér er iðkuð margs konar menning, ritaðar margs konar bækur, spiluð og sungin og samin margs konar tónlist. Að hér býr margs konar fólk. Hin nýja sýn Nú berast ill tíðindi af málefnum RÚV. Útvarpsstjóri hefur lýst því yfir að verði útvarpsgjaldið lækkað, eins og boðað hafði verið, þurfi enn eina ferðina að ráðast í blóðugan niðurskurð. Um er að ræða heilar 1.400 krónur á ári, eða þrjár krónur og 83 aura á dag. Menntamálaráð- herra hefur lýst sig fylgjandi því að útvarpsgjald haldist óbreytt, en hefur takmarkaðan stuðning enda telur flokkur hans sjálfs sig hafa fundið hina einu sönnu lausn á málum Ríkis útvarpsins: Samkvæmt ályktun á landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú í haust ber að leggja stofnunina niður. Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hver sé orsök þess að við Íslend- ingar þurfum ár hvert að horfa upp á atlögu að þjóðarfjölmiðli lands- ins á meðan sambærilegir miðlar í nágrannalöndum okkar fá frið til þess að sinna störfum sínum og skyldum. Er hér kannski komin útrásarhugmynd fyrir postula einka- framtaksins? Væri ekki tilvalið að formenn ríkis- stjórnarflokkanna kölluðu á sinn fund sendiherra Bretlands, Norður- landanna, Frakklands og Þýskalands (svo aðeins nokkur lönd séu nefnd) og skýrðu fyrir þeim þann sparnað sem fælist í því að leggja niður á einu bretti BBC, DR, NRK, YLE, Radio France og þar fram eftir götunum? Heldur einhver að slíkum mála- tilbúningi yrði mætt með öðru en hlátrasköllum? Og hver er þá ástæða þess að við, örþjóð á hjara veraldar sem hefur meiri þörf en aðrar stærri fyrir þá gróðrarstöð andans sem þjóðarfjölmiðill er, þurfum að láta okkur þetta lynda, ár eftir ár? Hin árlega atlaga Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hver sé orsök þess að við Íslendingar þurfum ár hvert að horfa upp á atlögu að þjóðarfjölmiðli landsins á meðan sambærilegir miðlar í nágrannalöndum okkar fá frið til þess að sinna störfum sínum og skyldum. Árni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands Raforkustefna Íslendinga hefur hingað til miðast við að lágmarka neikvæð áhrif af stíflum og öðrum raforkumann- virkjum. Kappkostað hefur verið að virkja eins ofarlega í ánum og mögulegt er, helst í jökulám á borð við Þjórsá, Blöndu og Jökulsá á Dal, og takmarka þannig áhrif á gönguleiðir fiska. Eigi áfram að framleiða græna og endurnýjan- lega orku á Íslandi þarf að fara var- lega og ganga ekki of nærri óspilltri náttúru, sem er okkar verðmætasta auðlind. Á loftslagsráðstefnunni í París komu fram nýjar upplýsingar um þann skaða sem vatnsaflsstíflur valda á lífríkinu. Þar bar hæst tjón á fiskstofnum vegna búsvæða- missis, rennslisbreytinga og set- efnisflutninga. Sagt var frá því að rennslisbreytingar af manna völdum hafi haft mun alvarlegri áhrif en áður var talið. Í París var því lögð höfuðáhersla á að lífríkið yrði undantekningalaust kannað í þaula og umhverfisáhrif metin áður en verkfræðingar fengju að hlutast til um mannvirkjagerð í straumvötnum. Þótt okkur finnist að bærilega hafi til tekist í raforkumálum Íslendinga til þessa er vafasamt að hreykja sér um of af árangr- inum og leggja til að slakað verði á umhverfiskröfum á næstu árum og áratugum. Mikilvægara er að huga betur að þeim vísbendingum sem komið hafa fram að undanförnu um að hin varkára stefna fyrri ára- tuga gagnvart lífríkinu hafi jafnvel ekki dugað til að koma í veg fyrir alvarleg umhverfisspjöll. Mögu- lega hefur stíflun jökulfljóta til dæmis spillt lífríki sjávar og þar með hrygningarstöðvum nytja- fiska sem njóta góðs af framburði fljótanna – sem nú safnast fyrir í uppistöðulónum. Þau rök eru léttvæg að við mengum aðeins minna en mestu umhverfissóðar heimsins, sem verma botnsætin þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda. Okkur ber engin siðferðisleg skylda til að setjast sjálf í botn- sætið til þess eins að losa aðra við að sitja þar. Höfuðmarkmið okkar í umhverfismálum á Íslandi á að vera að vernda náttúruna. Þar vegur þyngst að ganga ekki á sjálfbæra fiskstofna, stilla orku- framleiðslu í hóf eftir þörfum þjóðarinnar og hugsa í því til- liti til komandi kynslóða með því að standa vörð um græna og umhverfis væna ímynd landsins. Aðeins þannig getum við orðið öðrum góð fyrirmynd um þá ábyrgu afstöðu í loftslagsmálum sem heimsbyggðin kallar nú eftir. Varasamt að hreykja sér Hjörtur Magni Jóhannsson guðfræðingur og prestur/for- stöðumaður Fríkirkjunnar við Tjörnina Á loftslagsráðstefnunni í París komu fram nýjar upplýsingar um þann skaða sem vatnsaflsstíflur valda á lífríkinu. Þar bar hæst tjón á fiskstofnum vegna búsvæða­ missis, rennslisbreytinga og setefnisflutninga. Orri Vigfússon form. NASF, verndarstofnunar villtra laxastofna Trúarbrögðunum er ekki einum um að kenna. En þau þurfa að kannast við sína ábyrgð. Hvernig þau hafa vissulega verið notuð til að reisa aðskilnaðarmúra í stað þess að byggja friðarbrýr. 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r32 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.