Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 58
sport
Fótbolti Leicester City situr í topp-
sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar
16 umferðum er lokið. Fótbolta-
áhugamenn og spekingar úti um
allan heim bíða eftir því að Refirnir
taki hina víðfrægu dýfu niður á við
en hún virðist ekkert á leiðinni.
Leic ester er heldur ekkert bara að
spila vel á þessu tímabili heldur
hófst uppgangurinn í apríl þegar
liðið bjargaði sér frá falli á síðustu
leiktíð.
Leicester átti að falla í fyrra og var
ekki spáð góðu gengi þegar farand-
verkamaðurinn Claudio Ranieri var
ráðinn til starfa fyrir Nigel Pearson í
sumar. Ítalinn hefur byggt á góðum
grunni og með viljann að vopni og
tvo heitustu framherja Evrópu í
miklu stuði virðast Leicester-liðinu
allir vegir færir.
2,28 stig í leik
Leicester var á botni ensku úrvals-
deildarinnar þegar nýtt ár gekk í
garð. Það eitt á að þýða fall í fræðum
ensku úrvalsdeildarinnar. Nýtt ár
byrjaði heldur ekki vel. Leicester
vann aðeins einn leik af fyrstu tíu á
árinu 2015 og tapaði sex. Liðið var
enn í botnsætinu 4. apríl þegar upp-
sveiflan hófst.
Refirnir fóru á mikinn skrið. Þeir
unnu sjö af síðustu níu leikjum
tímabilsins og töpuðu aðeins
einum. Árangur Leicester-liðsins
nær nefnilega aftur til fjórða apríl
en síðan þá er liðið búið að vinna
17 leiki af síðustu 25 og tapa aðeins
tveimur.
Leicester er búið að safna 57 stig-
um í síðustu 25 leikjum ef síðustu
níu á síðasta tímabili eru teknir
með. Það gerir 2,28 stig í leik sem
eru meistaratölur. Leicester er að
safna 2,18 stigum að meðaltali á
þessu tímabili en oftast er talað um
að meistaralið þurfi að fá að meðal-
tali tvö stig í leik. Þetta er Leicester
búið að gera í 25 leikjum og enn er
beðið eftir dýfunni.
Byggt á sama grunni
Árangur Leicester á tímabilinu er
einnig merkilegur fyrir þær sakir
að liðið fann enga fjársjóði í sumar.
Sjö leikmenn sem byrjuðu síðasta
leikinn á síðustu leiktíð voru í byrj-
unarliðinu þegar liðið vann Chelsea
á mánudagskvöldið. Í heildina eru
sjö leikmenn sem voru hjá liðinu
á síðasta tímabili búnir að spila að
minnsta kosti 14 af 16 leikjum Leic-
ester.
Claudio Ranieri fékk ekki góðar
viðtökur þegar hann var ráðinn
enda búinn að hoppa á milli starfa
síðan hann var rekinn frá Chelsea
fyrir rúmum áratug. Síðast var hann
landsliðsþjálfari Grikklands og tap-
aði fyrir Færeyjum. Er nema von að
Gary Lineker, Leicester-goðsögn og
fjölmiðlamaður á Englandi, skrifaði
á Twitter-síðu sína þegar Ítalinn var
ráðinn: „Ranieri? Í alvöru?“
Ranieri er mikill vinnuþjarkur
og er úti á æfingasvæði Leicester
á hverjum degi og tekur virkan
þátt í æfingum liðsins. Hann er
mikill herramaður og vinsæll á
meðal blaðamanna á Englandi
fyrir fádæma kurteisi, en hann
gerir til dæmis í því að heilsa öllum
blaðamönnum með handabandi á
hverjum einasta blaðamannafundi.
Herramaður en herforingi.
Einföld en góð leið
Ranieri bætti ekki miklu við liðið en
hefur þess í stað betrumbætt öfluga
spilamennsku Leicester sem liðið
var að sýna undir lok síðasta tíma-
bils. Ítalinn er mikill taktíker og
fótboltaheili en passar þó að gera
hlutina mátulega einfalda með Leic-
ester-liðið og það virkar.
Hvað með leikstílinn? Leicester
vill ekkert endilega gera hlutina
með boltann og það er allt í lagi.
Jürgen Klopp vann tvo Þýskalands-
meistaratitla og komst í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar með pressu-
taktík. Oft er talað um að það að
halda boltanum sé lykillinn að
árangri en á meðan til dæmis lið
eins og Manchester United gerir
varla neitt annað en að halda bolt-
anum er Leicester mun beinskeytt-
ara lið.
Aðeins Sunderland og West Brom
halda boltanum verr en Leicester
og þá eru refirnir mjög neðarlega á
töflunni yfir heppnaðar sendingar.
Ranieri vill ekkert dúlla með bolt-
ann heldur sækja beint fram en ekki
gefa boltann til hliðar. Pressan sem
liðið beitir svínvirkar með dugnað-
arforka í liðinu eins og Jamie Vardy
og Riyad Mahrez sem eru í fremstu
víglínu.
Leicester er búið að vinna flesta
bolta allra liða í ensku úrvalsdeild-
inni og bara Tottenham og Liver-
pool hafa unnið fleiri tæklingar.
Leic ester vinnur boltann framarlega
á vellinum og sækir á markið. Ein-
föld uppskrift sem virkar.
Batman og Robin
Ef þú ætlar að vera á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar þarftu töfra-
menn sem geta galdrað fram mörk
og stoðsendingar að staðaldri. Stóru
liðin leita uppi töframenn í Las
Vegas leikmannamarkaðarins en
Leicester þarf að leita að mönnum
sem stunda spilagaldra á götuhorni.
Og stundum eru þeir menn sem ein-
faldlega biðu eftir tækifærinu.
Þá komum við að Batman og
Robin Leicester-liðsins: Jamie Vardy
og Riyad Mahrez. Englendingurinn
sem var í utandeild Englands fyrir
þremur árum og Alsíringurinn sem
kom úr frönsku 2. deildinni fyrir
tveimur árum. Þessir strákar kost-
uðu Leicester samtals 1.350.000
punda sem er nálægt mánaðar-
launum Wayne Rooney.
Vardy er markahæstur í deildinni,
búinn að skora 15 mörk í 16 leikj-
um. Þessi 28 ára gamli Englendingur
er búinn að skora í 13 af 16 leikjum
deildarinnar og leggja upp í hinum
þremur. Leicester hefur ekki spilað
leik án þess að Vardy skori eða leggi
upp. Mahrez er engu síðri. Hann
er búinn að skora ellefu mörk í
fimmtán leikjum og gefa sex stoð-
sendingar. Aðeins fjórum sinnum á
tímabilinu hefur hann ekki skorað
eða lagt upp mark.
Vardy fann Leicester hjá Fleet-
wood Town, neðri- og utandeildar-
markaskorari sem beið eftir tæki-
færinu á stóra sviðinu. Mahrez er
fæddur í Sarcelles, ofbeldisfullu
úthverfi Parísar þar sem hann átti
erfiða æsku og missti föður sinn
þegar hann var fimmtán ára. Alsír-
ingurinn hét því að láta það ekki
buga sig heldur hvetja sig til frekari
dáða. Hann er í dag einn besti leik-
maður sterkustu deildar heims.
Af hverju dýfa?
Leicester nýtur engrar virðingar
sem topplið, ekkert frekar en
önnur spútniklið í gegnum tíðina.
Ensku blöðin miða allt út frá hversu
langt það er frá liðinu í fjórða sæti
og gefa því þannig möguleika á
Meistaradeildarsæti. Meira er það
ekki. Enska úrvalsdeildin er auð-
vitað langhlaup en ekki spretthlaup.
Leic ester gafst þó frekar augljóslega
ekki upp eftir 800 metra heldur
kom það fyrst í mark eftir 3.000
metrana. Hvort það haldi út er svo
spurningin.
„Leicester mun taka dýfu,“ er
algengasta setningin þegar talað er
um enska boltann í dag. Það veðja
allir á móti lærisveinum Ranieris
þrátt fyrir að þeir séu búnir að spila
og safna stigum eins og meistaralið
í síðustu 25 leikjum. Auðvitað þarf
liðið að vera áfram heppið með
meiðsli og helst að bæta við sig
einum eða tveimur sterkum leik-
mönnum í janúar.
Jólatörnin er vanalega prófsteinn
góðra liða. Hvergi í Evrópu reynir
jafn mikið á lið í nokkurri deild.
Leicester gaf samt skít í jólin í fyrra.
Það var á botninum eftir jólatörnina
í fyrra og átti að falla. Nú er liðið í
baráttu um Englandsmeistara-
titilinn þegar hátíðarnar ganga í
garð. Við sjáum hvar refirnir verða
í byrjun árs en þangað til er líklega
rétt að tala um Leicester af aðeins
meiri virðingu.
Safna stigum eins og meistaralið
Leicester City er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar 16 umferðum er lokið. Refirnir unnu Englandsmeistarana til að koma sér
aftur á toppinn. Með tvo af heitustu framherjum Evrópu í stuði safnar liðið stigum í sarpinn eins og meistaralið gera.
Riyad Mahrez og Jamie Vardy eru lykilmennirnir á bak við ótrúlegt gengi Leicester í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. FRéttABLAðið/GEtty
sjö leikmenn sem
byrjuðu síðasta leik Leicester
á síðustu leiktíð voru í
byrjunarliðinu í sigrinum
gegn Chelsea á mánudaginn.
88%
Vardy og Mahrez hafa saman
skorað eða lagt upp 30 af 34
mörkum Leicester í vetur.
Riyad Mahrez
24 ára vængmaður
Jamie Vardy
28 ára framherji
leicester síðan 4. apríl 2015
04.04 West Ham (h) Sigur
11.04 WBA (út) Sigur
18.04 Swansea (h) Sigur
25.04 Burnley (út) Sigur
29.04 Chelsea (h) tap
02.05 Newcastle (h) Sigur
09.05 Southampton (h) Sigur
16.05 Sunderland (ú) Jafntefli
24.05 QPR (h) Sigur
08.08 Sunderland (h) Sigur
15.08 West Ham (ú) Sigur
22.08 Tottenham (h) Jafntefli
29.08 Bournemouth (ú) Jafntefli
13.09 Aston Villa (h) Sigur
19.09 Stoke (ú) Jafntefli
26.09 Arsenal (h) tap
03.10 Norwich (ú) Sigur
17.10 Southampton (ú) Jafntefli
24.10 C. Palace (h) Sigur
31.10 WBA (ú) Sigur
07.11 Watford (h) Sigur
21.11 Newcastle (ú) Sigur
28.11 Man. Utd (h) Jafntefli
05.12 Swansea (ú) Sigur
14.12 Chelsea (h) Sigur
17 sigrar, 6 jafntefli, 2 töp
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@frettabladid.is
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F i m m t U d A G U r42