Fréttablaðið - 19.09.2015, Page 2

Fréttablaðið - 19.09.2015, Page 2
Leikskólanum Sjónarhóli verður lokað í vetur vegna fækkunar leikskólabarna í Grafarvogi. Fréttablaðið/GVA Vesturbakkinn varinn Suðaustan 13 til 18 metrar á sekúndu og rigning með köflum. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi, þurrt að mestu og þar verður jafnframt hlýjast, eða allt að 17 stiga hiti. Sjá Síðu 50 Veður Kúba Beint flug með Icelandair 23.–30. nóv. Verð frá *á mann í tvíbýli með öllu inniföldu á Melia Varadero hótelinu. Verð án Vildarpunkta 279.900 kr. 269.900 kr.* Örfá sæti laus! og 12.500 Vildarpunktar Flogið með Icelandair Gæsum bægt burt Fyrr í sumar var sett upp girðing í vestanverðri Reykjavíkurtjörn til að verjast ágangi gæsa í viðleitni til að rækta upp vatnagróður og aðrar plöntur við bakkann sem vonast er til að nýtist öndum og ungum þeirra. Fyrir tveimur vikum bættist við grindverk upp á landi til að hlífa bakk- anum við ágangi þeim megin frá. Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri segir of snemmt að meta árangurinn. Fréttablaðið/Pjetur E F na h ag S m ál Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta hefur náð samkomulagi við seðlabanka Hollands og breska innstæðutrygg- ingarsjóðinn. Samkomulagið felur í sér að sátt hefur náðst á milli opinberra aðila í þessum þremur löndum vegna Ice- save-innlánsreikninga Landsbanka Íslands, sem nú heitir LBI. Seðlabanki Hollands endurheimti útlagða fjármuni að fullu í ágúst 2014. Í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands segir að fullnaðargreiðsla til breska innistæðutryggingasjóðsins sé áætluð annaðhvort samhliða nauða- samningi LBI á grundvelli stöðug- leikaskilyrða eða eftir greiðslu LBI á stöðugleikaskatti. Nú þegar hefur breski innstæðu- tryggingasjóðurinn fengið 84,2 pró- sent af kröfu sinni greidd frá þrotabúi LBI. - jhh Samið um lokagreiðslur Icesave DagviSt Leikskólanum Sjónarhóli í Grafarvogi verður lokað í vetur. Þar með fækkar leikskólum í hverfinu úr 11 í 10. Ástæðan er sú að leikskóla- börnum í hverfinu hefur fækkað svo mikið á undanförnum árum að ekki þótti forsvaranlegt að halda leikskólanum opnum. Í dag eru 920 börn á leikskólaaldri í Grafarvogi, en fyrir tíu árum voru þau 1.164. Fækk- unin nemur 21 prósenti. „Maður er auðvitað ekkert sáttur. Maður vill hafa góða leikskólann sinn áfram,“ segir Ásta Kristín Svavars dóttir leikskólastjóri í samtali við Fréttablaðið. Hún segir ekki alla starfsmenn leikskólans vera komna með störf annars staðar. „En það er allt í farvegi og verið að aðstoða okkur við að finna það,“ segir hún. Hún segir ekki endanlega vera búið að ákveða hvaða dag leikskólanum verði lokað. Það sé þó ljóst að það verði gert fyrir áramót. Foreldraráð Sjónarhóls gagnrýnir að skóla- og frístundasvið skyldi ekki hafa meira samráð við foreldra í aðdraganda að breytingunum og gagnrýnir að leikskólanum sé lokað. Í bréfi sem þær Auður Aðalbjarna- dóttir og Anna Björk Bjarnadóttir, fyrir hönd foreldraráðs Sjónarhóls, sendu sviðsstjóra skóla- og frístunda- sviðs segir að fara hefði mátt aðrar leiðir en að loka leikskólanum. Þar segir meðal annars að sameining Sjónarhóls og leikskólans Brekku- borgar hafi ekki verið rædd til fulls. Sameining leikskólanna yrði mun mildari aðgerð. Slík sameining gæfi börnunum möguleika á að að vera áfram saman á leikskóla og vinna áfram með því starfsfólki sem það þekkir og treystir. Vill foreldraráðið að gerð verði úttekt á starfi leikskól- anna og hverjir samlegðarþættir við sameiningu þeirra gætu orðið. Þá segir í umsögn foreldraráðs að mikill aukakostnaður og umstang muni leggjast á foreldra, verði þessi tillaga samþykkt óbreytt. Aðlögun barna í leikskólum krefjist þess að foreldrar séu viðstaddir í leik- skólanum í að minnsta kosti þrjá vinnudaga með barni sínu á leik- skóla. Skipulagning sumarfrísdaga foreldra sé löngu lokið og fáir hafi kost á öðru en að taka sér launa- laust leyfi. „Þurfi foreldrar að taka sér launalaust leyfi þessa þrjá daga er launatap sem fellur á for- eldra um 14% af mánaðartekjum.“ jonhakon@frettabladid.is Leikskólabörnum fækkað um 20 prósent Leikskólum í Grafarvogi verður fækkað um einn á næstu dögum. Ástæðan er sú að leikskólabörnum í hverfinu hefur fækkað verulega á undanförnum árum. Foreldrum finnst skorta á samráð hjá Reykjavíkurborg við ákvörðunartökuna. Maður er auðvitað ekkert sáttur. Maður vill hafa góða leikskólann sinn áfram. Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri Sjónarhóls FlóttamEnn „Hann á yfir höfði sér fangelsisdóm og trúarlegar ofsóknir ef hann fer heim aftur,“ segir á síð- unni Ekki fleiri brottvísanir, um Mehdi Pedarsani. Hann er íranskur ríkisborgari sem kom hingað til lands fyrir ári sem hælisleitandi. Í gær fékk Mehdi synjun frá kæru- nefnd útlendingamála um að mál hans yrði tekið til efnislegrar með- ferðar hér á landi. Synjunin er veitt á grundvelli Dyflinnarreglugerðar- innar og verður til þess að innan tíðar verður Mehdi sendur til Nor- egs. Þaðan verður hann svo líklega sendur til heimalands síns. Rauði kross Íslands hefur hingað til séð um mál Mehdis. Nú þegar honum hefur verið synjað um efnis- lega meðferð stendur honum til boða að áfrýja málinu til dómstóla. Rauði krossinn hefur staðfest að við slíkar aðstæður sé hælisleitanda beint til lögfræðinga sem geta tekið málið að sér. Á síðunni Ekki fleiri brottvísanir stendur að Mehdi hafi tekið ákvörð- un um áfrýjun máls síns. Þá hafi honum verið greint frá því að þrátt fyrir áfrýjunina megi hann eiga von á því að vera sendur úr landi hvenær sem er. Íran er íslamskt ríki með klerka- stjórn. Staða mannréttinda hefur verið gagnrýnd í landinu og íranska ríkisstjórnin sökuð um pyntingar. - snæ Hælisleitanda synjað um áheyrn í gær Mehdi Pedarsani er kristinn bifvéla- virki. Hann tók þátt í verkalýðsbaráttu sem er bönnuð í Íran. 1 9 . S E P t E m b E r 2 0 1 5 l a u g a r D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.