Fréttablaðið - 19.09.2015, Síða 4
MADONNA ÍTALÍU VIKULEGA 16. JAN. – 27. FEB.
Eitt vinsælasta skíðasvæði
Íslendinga er aftur komið í
sölu. Flogið vikulega frá 16.
jan - 27 feb. með Icelandair.
Farastjóri, Níels Hafsteinsson 119.200 KR.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
VERÐ FRÁ
HÓPAR? SENDU FYRIRSPURN Á HOPAR@UU.IS
Tölur vikunnar 1.2.2015 - 7.2.2015
2,7%
atvinnuleysi er
spáð á næsta ári
samkvæmt vinnu-
markaðsrannsókn
Vinnumálastofnunar.
277 dýr
drápust í dýragarðinum í Tíblisi fyrir
þremur mánuðum. Dýragarðurinn hefur
nú verið opnaður á ný.
572 milljónir
voru tekjur Gló veitingastaðanna á síðasta ári.
Tapið á rekstrinum nam 12 milljónum króna.
5 ár
er meðalstarfsaldur íþróttakennara á
Íslandi. Þeir hætta störfum vegna álags
og slæmra aðstæðna.
8,3 stig
var jarðskjálftinn
sem reið yfir Síle á
miðvikudagskvöld.
Átta létust í
skjálftanum.
1
Tillaga af
25 249 kíló
tillögum frá lands-
hlutanefnd fyrir
Norðurland vestra
skilaði sér í fjárlög
fyrir næsta ár.
af útrým-
ingarefnum
voru seld til
leyfislausra
einstaklinga
árið 2014.
Sakamál Enn er óupplýst fíkniefna
smygl í Skógafossi í júní síðastliðnum
þegar tæp þrjú kíló af kókaíni fundust
í bakpoka í einum gámi skipsins.
Málið hefur dregist nokkuð í rann
sókn og gengur afar hægt að sögn
lögreglu. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var verklagsreglum
tollstjóraembættisins ekki framfylgt
þegar efnin fundust.
Þegar fíkniefni finnast við kom
una til Íslands er það verklag við
haft að tryggja að rannsóknarhags
munir spillist ekki, tryggja nánasta
umhverfi og gera lögreglu viðvart.
Fíkniefnin fundust í gámi, þar sem
bátsmenn Skógafoss geyma verkfæri
sín, klukkan rúmlega tvö um nóttina.
Einn heimildarmanna Frétta
blaðsins sagði að öllum bátsmönnum
á staðnum hefði verið sagt að fíkni
efni hefðu fundist um borð án þess
að nokkur lögregla kæmi á vettvang.
„Við förum reglulega yfir allt verk
lag og hvernig við vinnum okkar
vinnu þegar fíkniefni finnast á okkar
svæði,“ segir Kári Gunnlaugsson yfir
tollvörður.
„Við gerðum það einnig sérstak
lega eftir þessa leit. Fíkniefnin finnast
þarna um nóttina og rannsóknarlög
reglan er ekki tiltæk strax þarna um
nóttina.“
Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður
deildar lögreglunnar sem rannsakar
skipulagða glæpastarfsemi og fíkni
efnamál, segir þetta mál hafa dregist
nokkuð í rannsókn og að það gangi
of hægt.
Aldís vill þó ekki meina að rann
sókn málsins sé komin í eitthvert
öngstræti.
„Við höfum sent rannsóknargögn
utan til greiningar og bíðum eftir
niður stöðum úr þeim. Rannsókn
málsins gengur hægt. Ef það er satt
að starfsmenn tollstjóraembættis
ins hafi ekki unnið eftir fyrir fram
ákveðnum verklagsreglum er það
ekki til þess að hjálpa til við rann
sókn málsins,“ segir Aldís.
Allir bátsmenn hafa verið teknir í
skýrslutöku vegna málsins. Enn hefur
enginn verið handtekinn eða færður í
gæsluvarðhald né fengið réttarstöðu
grunaðs manns i málinu. - sa
Smyglmál í Skógafossi enn óupplýst
Ef það er satt að
starfsmenn toll-
stjóraembættisins hafi
ekki unnið eftir fyrir fram
ákveðnum verklagsreglum
er það ekki til
þess að hjálpa
til við rann-
sókn málsins.
Aldís Hilmarsdóttir,
yfirlögregluþjónn
Fíkniefnin finnast
þarna um nóttina og
rannsóknarlög-
reglan er ekki
tiltæk strax
þarna um
nóttina.
Kári Gunnlaugsson
yfirtollvörður
neyTendamál Samningur íslenska
stjórnvalda og Evrópusambandsins
opnar fyrir tollfrjálsan innflutning á
alls kyns villibráð. Innflutt hreindýra
kjöt, dádýrskjöt, rjúpur, dúfur, fasanar
og önnur villibráð verður því tollfrjáls
varningur með öllu.
Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri í
atvinnuvegaráðuneytinu, segir þenn
an samning hafa bæði jákvæð áhrif
á neytendur á Íslandi sem og útflytj
endur íslenskra landbúnaðarafurða.
„Það sem við fáum út úr þessum
samningum er að þeir eru algjörlega
gagnkvæmir. Allt sem við megum
flytja inn tollfrjálst getum við flutt út
einnig án tolla. Því opnast mikil tæki
færi fyrir íslenska framleiðendur á alls
kyns matvælum, svo sem svínakjöti,
sælgæti og öðru. Einnig felur þessi
samningur í sér að við stækkum toll
kvóta á kjöti og ostum gríðarlega,“
segir Ólafur.
Tollur á franskar kartöflur lækkar
um 40 prósent og ís lækkar úr 30
prósentum niður í átján. Einnig
lækkar svokallaður magntollur,
sem er greiddur á hvert kíló af ís,
úr 110 krónum í 66. Mesta lækkun
á vörum mun vera á mikið unn
inni matvöru, svo sem kexi, pitsum,
pasta, súkkulaði og þess lags vörum.
Einnig hafa tollkvótar verið rýmk
aðir nokkuð á landbúnaðarafurðir
og verða þeir rýmkaðir í þrepum allt
til ársins 2020. Gert er ráð fyrir að
rýmka kvóta á innflutt nautakjöt um
nærri 700 prósent frá því sem nú er og
svínakjötstolla um 250 prósent. Inn
flutningstollar á alifugla fimmfaldast
á næstu fimm árum.
Ólafur Stephensen, framkvæmda
stjóri Félags atvinnurekenda, fagnar
afnámi tolla á ýmsar vörutegundir.
„Almennt talað eru beinar tollalækk
anir eða afnám tolla hagstæðari fyrir
neytendur en skömmtunarkerfi á
borð við tollfrjálsa innflutningskvóta.
Þegar almennir tollar eru lækkaðir
eða afnumdir geta neytendur gengið
að því vísu að það kemur fram í vöru
verðinu. Það ber því að fagna því að
afnumdir eru tollar á unnum vörum
eins og pitsum, bökum, pasta og bök
unarvörum, villibráð og fleiru slíku,“
segir Ólafur en bendir á að kvóta
umhverfið standi enn heilbrigðri sam
keppni aðila fyrir þrifum. „Þótt toll
kvótarnir stækki myndarlega til ársins
2020 eru þeir samt áfram tiltölulega
lágt hlutfall innanlandsneyslu eins
og hún var á árunum 20112013. Árið
2020 verða þessi hlutföll væntanlega
lægri af því að innanlandsneyslan fer
hraðvaxandi, meðal annars vegna
fjölgunar ferðamanna. Þetta er gríðar
lega jákvætt skref, en hvað kjötið og
ostana varðar er íslenskur landbúnað
ur samt bara að fá mjög takmarkaða
samkeppni.“
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
fagnar þessum samningum stjórn
valda. „Þetta eru almennt frábærar
fréttir fyrir neytendur og þessu fram
taki stjórnvalda ber að fagna. Það er
ekki spurning. Við hefðum þó viljað
sjá stærri skref tekin en þetta skref er
þó í rétta átt og sem fyrsta skref getum
við ekki annað en verið sáttir. Þetta er
ein mesta kjarabót fyrir landsmenn
sem við finnum því af þessu hlýst tvö
faldur ávinningur. Bæði mun nauð
synjavara lækka í verði sem og að
margar af þessum vörum eru inni í
vísitölu neysluverðs og lækkun þar
mun hafa áhrif á lán landsmanna.“
sveinn@frettabladid.is
Fagna samningi við ESB
sem fyrsta skrefi af mörgum
Innflutningur á mikið unnum matvörum verður tollfrjáls sem og innflutningur á alls kyns villibráð. Forstjóri
Haga og framkvæmdastjóri FA telja samninginn fagnaðarefni en vilja sjá frekari skref stigin á næstu árum.
þrír í fréttum
Everest, kveðju-
tillaga og tollar
Everest og
Ísraelstillagan
Baltasar
Kormákur
frumsýndi
á Íslandi
á fimmtu
dagskvöld
kvikmynd sína
Everest. Margt var
um manninn og meðal annars voru
forsetahjónin, Dorrit og Ólafur,
mætt. Í samtali við Ísland í dag lýsti
Baltasar því hversu gaman væri að
koma heim og frumsýna. Enn meira
spennandi eftir að vel hefur gengið
úti.
Björk Vilhelms-
dóttir hætti
störfum
sem
borgar
fulltrúi
Reykja
víkurborgar
á þriðjudag
inn. Borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkti á fundi
þann dag síðustu tillöguna sem
hún lagði fram, um viðskiptabann á
Ísrael. Tillagan felur í sér að Reykja
víkurborg kaupi ekki vörur frá
Ísraelsríki á meðan hernám ríkisins
á landsvæði Palestínu varir. Hún
hefur hlotið nokkra gagnrýni.
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
sjávarút
vegs og
landbún
aðarráð
herra, var
kampakátur
eftir að Ísland
og Evrópusam
bandið undirrituðu samning á
fimmtudag sem mun fela í sér að
báðir aðilar felli niður tolla í all
mörgum tollflokkum. Báðir aðilar
munu auka verulega tollfrjálsan
innflutningskvóta á ýmsar tegundir
af kjöti og ostum.
Tollkvótar verða áfram við lýði en Samkeppniseftirlitið hefur lagt til að það kerfi
verði aflagt þar sem það gefi ekki nægilega góða raun fyrir neytendur.
Þetta er ein mesta
kjarabót fyrir lands-
menn sem við finnum því af
þessu hlýst tvöfaldur ávinn-
ingur.
Finnur Árnason, forstjóri Haga
1 9 . S e p T e m b e r 2 0 1 5 l a u g a r d a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
Núverandi Umsóknir Umsóknir Nýr kvóti
Tegund kvóti í tonnum 2014 2015 árið 2020
Naut 100 334 462 696
Svín 200 615 798 700
Alifuglar 200 820 1043 1056
Þurrkað og reykt kjöt 50 45 57 100
Ostur (vöruliður 406) 80 170 254 380
Ostur (svæðisbundnir) 20 37 52 230
Pylsur 50 66 123 250
Elduð kjötvara 50 200 222 400
✿ kvóti á kjöt og osta