Fréttablaðið - 19.09.2015, Qupperneq 8
Tækifæri
í september
Sao Paolo -
Hangandi ljós
H x b x d: 20 x 20 x 20 sm.
Tækifærisverð:
11.900 kr.
(Fullt verð: 16.900 kr.)
SIEMENS -
Expressó-kaffivél
TE 501205RW
Býr til ýmsa kaffidrykki. Einföld
í notkun. Þrýstingur: 15 bör.
1600 W. Hágæða kaffikvörn úr
keramík. Einstaklega hljóðlát.
Tækifærisverð:
103.900 kr.
(Fullt verð: 129.900 kr.)Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
70
95
5
Heimsferðir bjóða margar af helstu borgarperlum
Evrópu í beinu leiguflugi. Allar borgirnar eiga
það sameiginlegt að vera áhugaverðar, bjóða
góða veitingastaði og úrvals verslunarmöguleika.
Það getur verið einstæð upplifun að ganga um
götur borganna og bera fallegar byggingarnar
augum, þræða mjó strætin sem liggja að fallegum
torgum þar sem hægt er að setjast niður og fá sér
eins og einn kaldan. Njóttu lífsins og drekktu í þig
árþúsundamenningu, meistaraverk á torgum úti
og einstakt andrúmsloft sem þessar borgir bjóða.
Skelltu þér í helgarferð!
Frá kr.
68.900
borgarferð
Skelltu þér í
Prag - 8. okt. í 4 nætur
Frábært verð
Frá kr. 68.900
Ibis Mala Strana
Netverð á mann frá
kr. 68.900 m.v. 2 í
herbergi.
Valencia - 8. okt. í 4 nætur
Frábært verð
Frá kr. 69.900
Holiday Inn
Netverð á mann frá
kr. 69.900 m.v. 2 í
herbergi.
Róm - 19. okt. í 4 nætur
Sevilla - 6. nóv. í 3 nætur
Frábært verð
Frá kr. 122.900
Hotel Riscioli
Netverð á mann frá
kr. 122.900 m.v. 2 í
herbergi.
Frábært verð
Frá kr. 89.900
Ribera de Triana
Netverð á mann frá
kr. 89.900 m.v. 2 í
herbergi.
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
Búrkína Fasó Afríkuráðið hefur vísað
Búrkína Fasó úr ráðinu eftir að hópur
hershöfðingja úr röðum lífvarðasveit-
ar forsetans tók völdin í Búrkína Fasó á
miðvikudaginn, handtók forsetann og
forsætisráðherrann og kom á herfor-
ingjastjórn sem fer með völd í landinu.
Gilbert Diendere hershöfðingi er
leiðtogi herforingjastjórnarinnar en
hann er bandamaður fyrrverandi for-
seta landsins, Blaise Compaore, sem
hrökklaðist úr embætti í fyrra eftir
miklar óeirðir í landinu.
Forsetakosningar voru áætlaðar
11. október en talið er að hershöfð-
ingjarnir hafi tekið völdin vegna
umdeildra kosningalaga sem banna
einstaklingum sem tengdir eru
Compaore að bjóða sig fram.
Fjöldi íbúa Búrkína Fasó hefur mót-
mælt valdaráninu og óeirðir brutust út
í höfuðborginni Ouagadougou. Mót-
mælendur kveiktu í dekkjum og rusli
á götum úti en liðsmenn úr lífvarða-
sveit forsetans brugðust við með því
að skjóta upp í loftið til að dreifa mót-
mælendum. Þrír hafa látist í átökum á
milli mótmælenda og lífvarðasveitar-
innar og fjöldi fólks hefur verið hand-
tekinn.
Margir mótmælendur hafa kallað
eftir því að herinn skerist í leikinn en
lífvarðasveit forsetans er sérdeild sem
er óháð hernum og í eru um 1.300
liðsmenn. Frakkland, Bandaríkin
og Afríkubandalagið hafa fordæmt
valdaránið auk Ban Ki-moon, aðalrit-
ara Sameinuðu þjóðanna, sem hvetur
herinn til að tryggja öryggi og réttindi
þegna landsins.
Forseti Senegal, Macky Sall, og for-
seti Benín, Thomas Boni Yayi, komu til
Búrkína Fasó í gær til að freista þess að
semja um frið á milli deiluaðila. Eftir
komu þeirra til landsins var sitjandi
forseta landsins, Michel Kafando,
sleppt úr haldi og herforingjastjórnin
hefur lýst því yfir að hún sé opin fyrir
viðræðum sem bendir til þess að farið
sé að þiðna á milli deiluaðila.
stefanrafn@frettabladid.is
Afríkuráðið hefur vísað
Búrkína Fasó á brott
Herforingjar frömdu valdarán í Búrkína Fasó á miðvikudaginn síðastliðinn.
Herforingjastjórnin segist vera tilbúin til viðræðna til að sætta deiluaðila.
Maður úr hópi mótmælenda gefst upp fyrir liðsmönnum lífvarðasveitarinnar.
NordicPhotos/AFP
• Búrkína Fasó er eitt fátækasta ríki
heims.
• 17,3 milljónir manna búa í landinu.
• Meginútflutningsvara Búrkína Fasó
er bómull.
• Landið var frönsk nýlenda þar til
það fékk sjálfstæði árið 1960 sem
Efri-Volta.
• Landið var nefnt Búrkína Fasó eftir
að Thomas Sankara tók völdin árið
1983 og kom á vinstri stjórn. Hann var
gjarnan kallaður Che Guevara Afríku.
• Compaore rændi völdum árið 1987
og stjórnaði Búrkína Fasó til ársins
2014 þegar hann hrökklaðist frá
völdum.
Afríka
Búrkina Fasó
Búrkína Fasó stofnað af Che Guevara Afríku
1 9 . s e p t e m B e r 2 0 1 5 L a U G a r D a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð