Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 10
Mannréttindi „Ég vona að ofbeldi
fari að minnka alls staðar í heim
inum. Það er kominn tími til,“
segir Daldís Perla Magnúsdóttir.
Daldís er í hópi átján ungmenna
hvaðanæva úr heiminum sem skrifa
undir opið bréf til ráðamanna
heimsins og skora á þá að binda
enda á ofbeldi gegn börnum. Sjálf
varð Daldís fyrir ofbeldi sem barn.
„Bréfið er sent til að minna á að
á fimm mínútna fresti deyr barn
vegna ofbeldis sem hægt hefði verið
að koma í veg fyrir. Börnin biðla til
ráðamanna að grípa til aðgerða
til að koma í veg fyrir hvers kyns
ofbeldi gegn börnum og að koma
í veg fyrir að fleiri börn láti lífið
vegna ofbeldis um allan heim,“
segir Bergsteinn Jónsson, fram
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
en bréfið er á vegum samtakanna.
„Þetta er náttúrulega hræðilegt
og það snertir mig alltaf rosalega
mikið að lesa um að þetta sé enn
að gerast árið 2015,“ segir Daldís,
sem vonast til þess að bréfið verði
til þess að leiðtogar ríkja heimsins
leggi meiri áherslu á að koma í veg
fyrir ofbeldi.
„Þið verðið að grípa til aðgerða
núna strax til að binda enda á
ofbeldi gegn börnum. Ekki bíða í
fimm mínútur í viðbót, líf okkar eru
að veði,“ segir í niðurlagi bréfsins.
– þea
Samfélagsstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja er til og með mánu-
deginum 12. október 2015. Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar
á landsbankinn.is.
Landsbankinn veitir 20 milljónum króna í samfélagsstyrki
árið 2015 sem úthlutað er í tvennu lagi og koma 10 milljónir
til úthlutunar nú í haust. Umsóknarfrestur er til og með
12. október næstkomandi.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til
verðugra verkefna. Meðal styrkveitinga úr sjóðnum eru námsstyrkir,
samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir.
Verkefni sem einkum koma
til greina:
Verkefni mannúðarsamtaka
og góðgerðarfélaga
Verkefni á sviði menningar
og lista
Menntamál, rannsóknir
og vísindi
Forvarna- og æskulýðsstarf
Sértæk útgáfustarfsemi
Á hvoru úthlutunartímabili
verða veittir eftirtaldir styrkir:
Fimm styrkir að upphæð
1.000.000 krónur hver
Fimm styrkir að upphæð
500.000 krónur hver
Tíu styrkir að upphæð
250.000 krónur hver
Daldís Perla skrifaði undir opið bréf til
ráðamanna heimsins. Fréttablaðið/Anton
Sendi valdamönnum
heimsins áskorun í bréfi
Hofsós er sagður eiga undir högg að sækja. Fréttablaðið/Pjetur
sveitarstjórnir „Umrædd afgreiðsla
Byggðastofnunar er enn eitt dæmið
um það hversu Norðurland vestra
er sniðgengið í fjárveitingum hins
opinbera,“ segir sveitarstjórn Skaga
fjarðar sem lýsir yfir vonbrigðum
með „naumt skammtaðar“ fjárveit
ingar til verkefnisins „Brothættar
byggðir“. Sveitarstjórnin vill að
stjórn Byggðastofnunar beiti sér með
sveitarfélaginu svo unnt verði að taka
Hofsós og fleiri byggðarlög þar inn í
verkefnið.
„Stjórnvöldum og stofnuninni
ber að leita allra úrræða til að vinna
með heimamönnum að því að
styrkja byggð á Hofsósi og í öðrum
byggðarlögum sem hafa átt undir
högg að sækja á undanförnum
árum,“ segir sveitarstjórnin. - gar
Sniðganga á Norðurlandi
Matur Erlendir ferðamenn keyptu
skyndibita fyrir 649 milljónir, með
greiðslukortum, í ágúst síðastliðnum.
Það var fjórðungur þeirrar upphæðar
sem þeir eyddu í veitingar, svo sem
mat á fínum veitingastöðum og bjór á
börum.
Þetta kemur fram í tölum frá Rann
sóknarsetri verslunarinnar. Þar kemur
jafnframt fram að úttektir á reiðufé hafi
numið rúmlega tveimur milljörðum
króna. Því má gera ráð fyrir að umtals
vert hærri fjárhæð hafi í raun verið varið
í kaup á skyndibita í mánuðinum.
Fjóla Sigurðardóttir, eigandi og mat
ráður matarvagnsins Lobster hut, segir
að um áttatíu prósent viðskiptavina
hennar séu ferðamenn. „Fyrsta sumarið
mitt var í fyrra. Hreinskilnislega sagt
þá velti ég rosalega. Ég var með tugi
milljóna samtals,“ segir hún. Fjóla
bendir á að með milljónunum hafi
hún þurft að borga laun og svo sé hún
með dýrasta hráefnið í skyndibita
flórunni, humar.
Tölurnar frá Rannsóknarsetri
verslunarinnar sýna aukningu um
718 milljónir á milli ára í veitinga
þjónustu í heild. Þrátt fyrir það
finnur Fjóla frekar fyrir samdrætti
sem hún kennir nýrri staðsetningu
matarvagnsins um. „En ég var
heppin og fékk nætursöluleyfi líka
þannig að í sumar er ég búin að vera
á Lækjartorgi öll kvöld vikunnar. Í
nótt opnum við níu og erum með
opið til sex í fyrramálið.“
Aðspurð hvort humarsamlokur og
humarsúpur séu rétti maturinn til að
fæða ölvað fólk á leið heim af skemmti
stöðunum segir hún: „Já, fólk er ofsa
lega ánægt. En svo vilja sumir annað. Á
torgið eru komnir eftirréttir, fiskur og
franskar og fleira. Þetta er orðin nokkuð
góð flóra. Það er ekki bara hamborgari,
pylsur og pitsa.“
Geir Gunnar Markússon, næringar
fræðingur hjá Heilsustofnun Nátt
úrulækningafélags Íslands, segir að
skyndibiti sé ekki rétti maturinn til að
undirbúa ferðamenn undir langa daga
í náttúru Íslands. „Ég vildi frekar að
þetta væri alvöru íslenskur matur en við
erum ótrúlega skyndibitavædd. Það eru
skyndibitastaðir úti um allt.“
Hann segir ástæðu fyrir því vera að
skyndibiti sé ódýrari en hollari kostur.
„Þetta er ekki góð næring og ekki fyrir
grey ferðamennina okkar heldur. “
Hann segir hollari skyndibitann ekki
vera í boði á þjóðvegum landsins. „Próf
aðu að keyra hringinn í kringum landið.
Níutíu prósent af mat í vegasjoppum
eru skyndibitamatur.“
Geir Gunnar segir vel hægt að ráðast
í rekstur á hollum og ódýrum skyndi
bitastöðum. Það þurfi aðeins viljann til
verksins. „Ekki fylla á sjálfan þig eins og
þú fyllir á bílinn þinn, það er mjög góð
næringarregla.“ snaeros@frettabladid.is
Skyndibitavædd á þjóðvegum landsins
Skyndibitamarkaðurinn veltir gríðarlega háum fjárhæðum. Næringarfræðingur segir fólk fylla sig eins og það sé að fylla á bílinn.
Fjóla Sigurðardóttir, mat-
ráður í Lobster hut, veltir
milljónum á viðskiptum
við ferðamenn.
Fréttablaðið/Anton Brink
Ekki fylla á sjálfan
þig eins
og þú fyllir á
bílinn þinn.
Geir Gunnar
Markússon
næringarfræðingur
Bréfið er sent til að
minna á að á fimm
mínútna fresti deyr barn
vegna ofbeldis sem hægt
hefði verið að koma í veg
fyrir.
Daldís Perla Magnúsdóttir
1 9 . s e p t e M b e r 2 0 1 5 L a u G a r d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
Hvað færðu fyrir 650 milljónir?
730.337
ostborgarar
á Hamborgarabúllu
Tómasar
1.625.000
pylsur
á Bæjarins beztu
pylsur