Fréttablaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 12
MenntaMál Frá og með vorinu 2016
skal gefa nemendum sem ljúka
grunnskóla vitnisburð í samræmi
við matsviðmið í aðalnámskrá grunn-
skóla og nota bókstafina A, B+, B, C+,
C og D. En hvað þýða þessir lykil-
þættir í námsskránni: hæfniviðmið,
matsviðmið, hæfnieinkunnir og lykil-
hæfni?
Við gerð hæfnieinkunna er stuðst
við einfaldar lýsingar á hæfni nem-
enda. Í aðalnámskrá standa lýsingar
að baki bókstöfunum A, B og C í
hverju fagi, svo kölluð matsviðmið.
Þessi viðmið eru gerð fyrir hverja
og eina námsgrein og eru byggð á
hæfnisviðmiðum í aðalnámskrá.
Bætt hefur verið við kvarðann B+
og C+ að ósk kennara sem sögðu of
litla hvatningu til framfara felast í
einkunnagjöfinni.
Að baki bókstöfunum liggja tölu-
leg gildi sem hafa ekki verið gerð
opinber. Tölugildin eru frá fjórum
og niður í einn og eru ekki fyrir ein-
kunnagjöf heldur hugsuð sem tæki
fyrir kennara við einkunnagjöf í
bókstöfum.
Hætt við lokaeinkunn í lykilhæfni
Hætt var við að gefa lokaeinkunn
í lykilhæfni. Lykilhæfnin er mæld
í þáttum svo sem þrautseigju, frum-
kvæði, námsvitund og ábyrgð. Deilt
var um hversu huglæg hæfnin var.
„Það þurfti bara að endurhugsa það,“
segir Illugi Gunnarsson, menningar-
og menntamálaráðherra, sem segir
hugtakið þó skipta öllu máli í nýrri
námsskrá. „Við vitum ekki hvaða
veruleika ungt fólk sem er að ljúka
námi verður í. Mörg þeirra starfa sem
við sinnum í dag, þau verða horfin.
þess vegna skiptir miklu máli að
byggja upp lykilhæfnina, svo þau geti
orðið virkir þátttakendur í samfélagi
framtíðar.“
Deilt um hæfnispróf
Ekki hefur verið endanlega ákveðið
hvernig fyrirkomulag hæfnisprófa
verður en þau verða unnin og þeim
U
m
hverfis– og skipulagssvið R
eykjavíkurborgar —
B
orgartún 12–14
, 10
5 R
eykjavík —
4 11 11 11
Hvernig vilt þú hafa þitt hverfi?
Hlíðar – Holt – Norðurmýri
Hverfisskipulag Reykjavíkurborgar www.hverfisskipulag.is
B
ra
n
d
en
b
u
rg
Hverfisskipulag er ný áætlun fyrir öll hverfi
Reykjavíkur, sem sýnir hvar styrkleikar þeirra
liggja. Því er ætlað að auðvelda skipu lag,
áætlanagerð og hvetja fólk til að hafa aukin
áhrif á hverfið sitt.
Á næstu dögum verður kynningarbæklingi
dreift í hús í Háteigshverfi, Hlíðahverfi og
Öskjuhlíðarhverfi þar sem ferlið fram undan
er kynnt. Þá verður haldinn opinn íbúafundur
með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Undirbúningur að hverfisskipulagi í Háteigs
hverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi
Íbúafundur borgarstjóra:
22. september kl. 20.00 á Kjarvalsstöðum
Meðal efnis á fundinum verða framkvæmdir,
nýtt hverfisskipulag og þjónustukönnun fyrir Hlíðar.
Ekki missa af líflegri umræðu um hverfið þitt.
Viðvera verkefnastjóra hverfisskipulags:
23. september kl. 15.00–17.00 á Kjarvalsstöðum
24. apríl kl. 15.00–17.00 á Kjarvalsstöðum
Taktu þátt í að móta framtíð Reykjavíkur með okkur.
Afar erfitt að fá A í nýju einkunnakerfi
Gert er ráð fyrir því í námsskrá að þorri nemenda fái einkunnina B. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir skólastjóra þeirra
framhaldsskóla sem geta valið og hafnað úr hópi nemenda vilja hæfnispróf. Einkunnaverðbólga er rannsökuð af Menntamálastofnun.
Menntamálastofn-
un er að leggja mat
á það hvort einkunnaverð-
bólga hafi átt sér stað.
Skólameistarar í
ákveðnum skólum
telja að einkunnir
úr grunnskóla
veiti þeim ekki
nægjanlegar
upplýsingar
til að velja úr
nemendum.
Illugi Gunnarsson
menningar og
menntamála-
ráðherra
Illugi segir hæfnisprófin og fram-
kvæmd á þeim enn á umræðustigi
þótt stefnt sé að þeim. Það þurfi að
breyta reglugerðum til þess að halda
þau.
„Menntamálastofnun er að leggja
mat á það hvort einkunnaverðbólga
hafi átt sér stað. Skólameistarar í
ákveðnum skólum telja að einkunnir
úr grunnskóla veiti þeim ekki nægjan-
legar upplýsingar til að velja úr nem-
endum. Þeim fannst erfitt að meta
raunverulega stöðu nemenda,“ segir
Illugi og bætir við að til skoðunar sé
að einstökum skólum verði heimilt að
taka upp einhvers konar hæfnispróf.
„Það er ekki verið að leggja upp
með það að taka upp slík próf í öllum
framhaldsskólum. Enda hentar það
ekki öllum, það væri íþyngjandi.
Suma skóla vantar til dæmis nem-
endur. Við viljum að skólarnir hafi
sín sérkenni og hafi ólíkar nálganir
um nemendahóp. Hvers vegna ættum
við ekki að heimila skólum að leyfa
slík próf?“
Rafrænt prófskírteini
Skírteinið samræmir framsetningu
einkunna úr skólum landsins og
verður fyrst notað vorið 2016 þegar
allir grunnskólar taka upp nýtt ein-
kunnakerfi. Skírteininu er ætlað að
veita fyllri upplýsingar um náms-
stöðu nemenda. Jafnframt geta
framhaldsskólar nýtt skírteinið við
innritun.
stýrt af hálfu Mennta-
málastofnunar. For-
maður Skólastjórafé-
lags Íslands, Svanlaug
María Ólafsdóttir,
segir undarlegt að
treysta ekki náms-
mati grunnskóla og
að nokkrir skólar
geti farið þá leið að
velja nemendur til
sín.
1 9 . s e p t e M b e r 2 0 1 5 l a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
A
Framúrskarandi hæfni. Nemandi getur leyst
verkefni og prófhluta sem kölluðu á flóknari
hæfni en hin. Kennarar hafa lýst þessari einkunn
sem einkunninni 11 og útskýrt fyrir nemendum
að það muni reynast erfitt að ná þessari ein-
kunn. Tölulegt gildi á bak við einkunn: 4,00
Nýtt einkunnakerfi í bókstöfum | Tölugildin 1-4 liggja að baki bókstöfunum og nýtast sem tæki kennara við einkunnagjöf
B+
Sá sem hefur náð
meginþorra B matsvið-
miða og náð einstökum
þáttum í A getur fengið
B+. Tölulegt gildi á bak
við einkunn: 3,75
B
Því er lýst í aðalnámskrá að
þorri nemenda eigi að geta
fengið einkunnina B sé miðað
við markmið með aðalnám-
skrá. Tölulegt gildi á bak við
einkunn: 3,0
C+
Sá sem hefur náð
meginþorra C mats-
viðmiða og einstökum
þáttum í B getur fengið
C+. Tölulegt gildi á bak
við einkunn: 2,75
C
Þeir fá C sem ekki
standast fyllilega þær
kröfur sem gerðar eru
í B viðmiðum. Tölu-
legt gildi á bak við
einkunn: 2,0
D
Engin viðmið eru til fyrir einkunnina D.
Sá vitnisburður er notaður þegar nem-
andi uppfyllir ekki kröfur sem gerðar
eru í C viðmiðum. Skóli gerir þá sérstaka
grein fyrir hæfni viðkomandi nemanda.
Tölulegt gildi á bak við einkunn: 1,0