Fréttablaðið - 19.09.2015, Page 20
SEPTEMBER-
TILBOÐ
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Brauð og salat
að eigin vali...
kr. 990.-
Dalbraut 1
P
R
EN
TU
N
.IS
Eins og kunnugt er ákvað borgar-
stjórn Reykjavíkur núna í vikunni að
sniðganga vörur frá Ísrael.
Allar vörur. Alls staðar frá Ísrael.
Ég hef nokkrar spurningar varð-
andi þetta.
Nær viðskiptabannið til vara sem
arabíski minnihlutinn í Ísrael fram-
leiðir, en hann er 20% af heildaríbúa-
fjölda?
Nær viðskiptabannið til 14 þing-
manna Araba sem sitja með mér á
ísraelska þinginu?
Nær viðskiptabannið til ísraelskra
verksmiðja þar sem tugir þúsunda
Palestínumanna starfa? Fyrir þá er
þetta eina leiðin til að brauðfæða
börnin sín.
Nær viðskiptabannið til sjúkra-
húsa í Ísrael sem sinna tugum þús-
unda Palestínumanna á ári hverju?
Nær viðskiptabannið til vara sem
71% Ísraelsmanna framleiðir en nýj-
ustu kannanir sýna að sá fjöldi styður
tveggja ríkja lausnina og stofnun ríkis
Palestínumanna við hlið Ísraels?
Bíddu, ekki fara strax, ég hef fleiri
spurningar.
Verður lyfið Copaxone sem ætlað
er MS-sjúklingum einnig sniðgengið?
Nær viðskiptabannið til vínsins
Tulip sem þroskaheftir og einhverfir
framleiða?
Og hvað með bækur ísraelska Nób-
elsverðlaunahafans Shai Agnon?
Nær viðskiptabannið til Microsoft
Office, farsímamyndavéla, Google –
sem innihalda hluti sem eru fundnir
upp eða framleiddir í Ísrael?
Ef svarið við öllum þessum spurn-
ingum er „já“, þá skal ég láta kyrrt
liggja og óska ykkur ánægjulegs lífs
þar til kemur að hinu óumflýjanlega
hjartaáfalli (sem er leitt en gangráð-
urinn var líka fundinn upp í Ísrael).
Hinn möguleikinn er að einhver í
borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki
hugsað þetta mál til enda.
Ef svo hefði verið, af hverju að ein-
skorða sig við Ísrael? Eitt best varð-
veitta leyndarmálið um deilur Ísraels
og Palestínu er að þetta er ein minnsta
deila Miðausturlanda. Í raun er engin
samsvörun milli stærðar deilunnar og
fjölmiðlaumfjöllunar um hana.
Frá lokum sjálfstæðisstríðs Ísraels
fyrir 67 árum hafa um 12 þúsund
Palestínumenn látið lífið í þessum
átökum. Stór hluti þeirra var hryðju-
verkamenn, sjálfsvígssprengjumenn
og gangagerðarmenn í ýmsum Jihad-
samtökum.
Við getum heldur ekki hunsað þá
staðreynd að á þessum árum létu
nokkur þúsund saklausra lífið. Mér
finnst það hræðilegt. Það heldur fyrir
mér vöku og svo er um flesta Ísraels-
menn. Að auki má benda á þá stað-
reynd – sem auðvelt er að sannreyna
– að á 67 árum voru færri saklausir
Palestínumenn drepnir en á einum
mánuði (!) í Sýrlandi. Á þessu sama
tímabili létu um 12 milljónir manna
lífið í Arabaheiminum. Einfaldur
útreikningur sýnir að deila Ísraels og
Palestínu olli dauða 0,01% af þeim
sem féllu í átökum í heimi múslíma.
Hver er þá afstaða borgarstjórn-
ar Reykjavíkur gagnvart heimi
múslíma? Hyggst borgarstjórnin
sniðganga hann líka? Í heild?
En að sjálfsögðu snýst þetta ekki
um tölur, heldur siðferði. Ísrael er
líflegt lýðræðisríki sem berst fyrir
tilveru sinni við erfiðar aðstæður.
Aðalsynd okkar að mati heims-
byggðarinnar og borgarstjórnar
Reykjavíkur er sú að við höfum betur
í þessu stríði.
Já, í þessari deilu falla fleiri Palest-
ínumenn en Ísraelsmenn. Af hverju?
Af því að við höfum betri her og Iron
Dome-kerfið sem ver borgir okkar
fyrir skotflaugum. Ef her okkar myndi
leggja niður vopn og við myndum
aftengja Iron Dome, yrðum við
myrtir innan sólarhrings.
Ísraelsmenn munu halda áfram að
verja sig og kappkosta að óbreyttir
borgarar falli ekki. Samhliða því
höldum við áfram leit okkar að friði
við Palestínumenn. Tvisvar, árið 2000
og árið 2008, buðu Ísraelsmenn þeim
rúmlega 90% landsins svo þeir gætu
reist ríki sitt. Í bæði skiptin höfnuðu
þeir boðinu.
Viðskiptabannsiðnaðurinn er ekki
nýr af nálinni. Þetta er víðtæk starf-
semi fjölmiðla og almannatengla
sem íslamskir hópar skipuleggja
með fjárstuðningi frá Katar og Íran.
Tilgangurinn er ekki stofnun Pal-
estínuríkis við hlið Ísraels, heldur
Palestínuríkis á brunarústum Ísra-
els. Þeir vita að frjálslynd Evrópu-
ríki samþykkja aldrei þann boðskap.
Þess vegna ákváðu þeir – eins og
margoft hefur verið sýnt fram á –
að selja hrekklausum Evrópubúum
mannréttindagildi á borð við frelsi
og samstöðu, sem þeir trúa sjálfir
ekki á og hafa aldrei gert. Hamas
hefur ekki í hyggju að stofna lýðræði
Palestínumanna, heldur fjandsamlegt
klerkaveldi þar sem samkynhneigðir
eru hengdir á símastaurum, konum
meinað að fara út fyrir heimilið og
kristnir menn og gyðingar eru myrtir
fyrir það eitt að vera kristnir og gyð-
ingar. Telur borgarstjórn Reykjavíkur
þetta ásættanleg gildi? Ef svo er, sætir
það furðu, því borgarstjórnin greiddi
atkvæði með þeim.
Hræsni viðskiptabanns
Við Íslendingar erum eftir á! Við
erum takmörkuð og takmörkum
hvert annað, þannig er Ísland í dag.
Við veifum höndum og fótum og
höldum því fram að Ísland sé best í
heimi og ég trúði því í 40 ár, eða þar
til ég þurfti skyndilega að fara að
nota hjólastól. Aðgengi takmarkar
mig á hverjum degi og það sem áður
var svo sjálfsagt er í dag stór hindrun.
Heimsóknir til vina og ættingja í
lyftulausum blokkum er liðin tíð,
búðaráp á Laugavegi er úr myndinni
og ég get alls ekki keypt mér litla ris-
íbúð eða snotra kjallaraíbúð o.s.frv.
Ég er heft af þjóðfélagi sem hefur
ekki enn stigið inn í nútímann, þjóð-
félagi sem virðir ekki mannréttindi
mín né annars fatlaðs fólks nema í
orði. Við fatlaða fólkið erum heft
af ráðamönnum sem fullgilda ekki
samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks, þótt þeir
segi að við eigum að hafa sama
rétt og aðrir. Það er merkilegt hvað
Íslendingar og íslensk stjórnvöld
eru komin skammt á veg í aðgengis-
málum og hve erfitt það reynist
okkur fötluðu fólki að fá ófatlað fólk
til að hugsa út frá algildri hönnun,
þegar haft er í huga að árið 1969
steig maður á tunglið í fyrsta skipti
en enn þá árið 2015 flækist það fyrir
íslensku samfélagi að koma okkur,
fólki í hjólastólum, frá fyrstu hæð
upp á aðra. Hvernig stendur á þessu?
Nú tala ég út frá hreyfihömluðu fólki
en í okkar hópi er líka heyrnarskert,
sjónskert, fótbrotið, ólétt og hjart-
veikt fólk ásamt fólki sem verður
tímabundið hreyfihamlað, sem sagt
alls konar fólk. Hvað er að í okkar
samfélagi? Er það aumingjavæðingin
margumrædda, er auðveldara að
hlaupa til og styðja aumingjann? Er
ekki eðlilegra að gera fólki kleift að
bjarga sér sjálft?
Nú stendur Öryrkjabandalag
Íslands (ÖBÍ) fyrir undirskrifta-
söfnun þar sem allir 18 ára og eldri
eru hvattir til að skora á stjórnvöld
að fullgilda samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
á haustþingi 2015. 156 lönd hafa
fullgilt samninginn en fimm lönd í
Evrópu hafa ekki enn gert það og er
Ísland þar á meðal.
Farðu inn á obi.is eða visir.is
og horfðu á myndbönd sem lýsa
aðstæðum fatlaðs fólks á Íslandi.
Það er dapurlegt að sjá misréttið
sem fólk er kerfisbundið beitt, með-
vitað og ómeðvitað. Við þurfum við-
horfsbreytingu og við þurfum hana
strax, stjórnvöld verða að hysja upp
um sig og fullgilda samninginn, til
að við öll sem þetta land byggjum
séum jöfn og jafngild, því fatlað fólk
er með væntingar til lífsins alveg eins
og aðrir.
Erum við eftir á og með
allt niður um okkur?
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir
formaður Sjálfsbjörg
Skagafjörður
Hvað er að í okkar sam-
félagi? Er það aumingja-
væðingin margumrædda, er
auðveldara að hlaupa til og
styðja aumingjann? Er ekki
eðlilegra að gera fólki kleift
að bjarga sér sjálft?
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Yair Lapid
leiðtogi Yesh Atid og
fyrrverandi fjármála-
ráðherra Ísraels
Nær viðskiptabannið til
sjúkrahúsa í Ísrael sem sinna
tugum þúsunda Palestínu-
manna á ári hverju?
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð