Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 22

Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 22
vinnum við ekki leiki. Það virðast allir geta unnið alla,“ sagði Unnur sem ítrekar að Grótta verði að halda einbeitingu og megi hvergi slá af í vetur. „Við erum svo miklir kettlingar í vörninni, við þurfum að vera svolítið árásargjarnari eins og Anna Úrsúla (Guðmundsdóttir) er alltaf að tuða um. Það hefur vantað smá í byrjun móts og í æfingaleikjum, við erum smá hræddar við að vera harðar,“ sagði Unnur sem þurfti að fylgjast úr fjarlægð með fyrrverandi liðsfélögum sínum vinna stóru titlana þrjá í fyrra. „Ég var með í anda seinast,“ sagði hún. „Ég gat lítið fylgst með og sá eiginlega bara úrslitaleikina. Það var svolítið skrítið að fylgjast með úr fjarlægð. Þetta var eiginlega sama lið og ég var í áður og ég var svolítið afbrýðissöm.“ Unnur segir gott að vera komin heim en að dvölin í Noregi hafi að mörgu leyti verið erfið: „Þetta er yndislegt og ég er mjög ánægð að vera komin heim. Það var svolítið skrítið að vera úti og mér leið ekkert rosalega vel í byrjun, kunni ekki málið og handboltinn var allt öðru­ vísi. En maður þekkir allt hérna og mér líður strax rosalega vel. Þetta var miklu erfiðara í fyrra,“ sagði Unnur en Skrim endaði í 7. sæti efstu deildar á síðasta tímabili. Unnur og kærasti hennar, handboltamaðurinn Einar Rafn Eiðsson, fóru saman út í fyrra en þau bjuggu í Nøtterøy, þar sem liðið hans var staðsett. Skrim er hins vegar í bænum Kongsberg sem er í eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá Nøtter­ øy. Unnur segir að þessi sífellda og langa keyrsla milli staða hafi verið lýjandi til lengdar: „Maður þurfti að keyra í einn og hálfan tíma til að fara á æfingu, bara aðra leið. Maður var ekkert að nenna að hanga með stelp­ unum eftir æfingu, kom mjög seint heim og þetta var hálffurðulegt.“ Unnur segir að það sé erfitt að vera handboltapar erlendis þar sem það reynist þrautinni þyngri að finna lið fyrir báða aðila á svipuðum stað. „Þetta er allt öðruvísi úti. Í svona góðum liðum er bara kvennalið og öfugt. Það var ekkert karlalið í kring­ um mitt lið fyrir Einar. Við skoðuðum fullt, fórum til Þýskalands, en það var ekkert í boði,“ bætti hún við. Unnur segir að þótt deildin í Noregi sé sterkari en hér heima sé ekkert verra að vera hér á landi og spila nánast hverja einustu mínútu í staðinn fyrir að sitja á bekknum úti. Að því leyti segir hún að heimkoman sé ekki skref niður á við. „Í raun ekki. Mér fannst ég ekkert græða á að sitja á rassgatinu helm­ inginn af leikjunum úti. Ég held að ég græði miklu meira á að spila hér á fullu og deildin hérna er orðin miklu sterkari en hún var,“ sagði Unnur Ómarsdóttir. ingvithor@365.is Það er svo mikil seigla í þessari þjóð, Litháen. Það snýst allt um körfubolta þar. Sumir tilbiðja Guð en Litháar tilbiðja körfubolta. Friðrik Ingi Rúnarsson @FridrikIngi Litháen í úrsLitaLeikinn Litháen, sú mikla körfuboltaþjóð, komst í úrslitaleikinn á Evrópumóti karla í Lille í Frakklandi í gærkvöldi þegar liðið lagði Serbíu, 67­64, í mögnuðum undanúrslitaleik sem var æsispennandi og skemmtilegur. Þetta er í sjötta sinn í sögu Litháen sem liðið kemst í úrslitaleikinn, en það lék síðast til úrslita fyrir tveimur árum og tapaði þá gegn Tony Parker og félögum frá Frakklandi. Litháen vann síðast mótið fyrir tólf árum, í Svíþjóð 2003, en mætir nú Spáni í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Serbía mætir Frakklandi í leiknum um bronsið. Í DAG KL. 14:00 365.is Sími 1817 BIKAR Á LOFT! Víkingur Ólafsvík fær Fjarðabyggð í heimsókn í fyrstu deildinni í knattspyrnu á laugardag. Víkingur Ó. hefur þegar tryggt sér sæti í deild þeirra bestu á næsta ári og mun taka við bikarnum í leikslok. Stóra systir hafði betur í fyrsta systraslag vetrarins á Ásvöllum Velkomin heim! helena sverrisdóttir spilaði sinn fyrsta mótsleik á íslandi í mörg ár í gærkvöldi og hafði betur gegn systur sinni Guðbjörgu þegar hauk- ar unnu Val á ásvöllum, 73-52, í Fyrirtækjabikarnum. helena var langbest á vellinum og skoraði 24 stig og tók 18 fráköst. Fréttablaðið/Anton Brink Um helgina Olís-deild karla, sunnudagur 16.00 Afturelding - Akureyri N1 höllin Olís-deild kvenna, laugardagur 13.30 Grótta - Stjarnan Hertz höllin 13.30 Valur - ÍR Vodafonehöllin 13.30 ÍBV - Afturelding Vestmannaeyjar 13.30 HK - Fram Digranes 15.00 Selfoss - KA/Þór Selfoss 16.00 Fylkir - FH Fylkishöllin Olís-deild karla, sunnudagur 16.00 Haukar - ÍBV Schenkerhöllin Olís-deild kvenna, sunnudagur 18.15 Haukar - Fjölnir Schenkerhöllin Pepsi-deild karla, sunnudagur 16.00 Fjölnir - Víkingur Fjölnisvöllur 16.00 Fylkir - Leiknir Fylkisvöllur 16.00 KR - Stjarnan Alvogenvöllurinn 16.00 Keflavík - ÍA Nettóvöllurinn 16.00 ÍBV - Valur Hásteinsvöllur 16.30 Breiðablik - FH Kópavogsvöllur Það helsta á Sportrásunum, laugardagur 11.35 Chelsea - Arsenal Sport 2 13.50 Swansea - Everton Sport 2 13.55 Real Madrid - Granada Sport 14.00 Víkingur Ó. - Fjarðabyggð Bravó 16.20 Man. City - West Ham Sport 2 17.15 BMW Championship Golfstöðin Það helsta á Sportrásunum, sunnudagur 12.20 Tottenham - Crystal Palace Sport 2 14.50 Liverpool - Norwich Sport 2 14.50 Southampton - Man. Utd. Sport 3 16.15 BMW Championship Golfstöðin 16.30 Breiðablik - FH Sport 18.25 Barcelona - Levante Sport 3 18.40 AC Milan - Palermo Sport 4 20.00 Eagles - Cowboys Sport 21.00 Pepsi-mörkin Sport/Sport 2 Nýjast CeCh-ar CheLsea siG úr titiL- baráttunni? Sjötta umferð ensku úrvals­ deildarinnar byrjar með látum í dag því hádegisleikurinn er viðureign Lundúnarisanna Chelsea og Arsenal. Chelsea fer skelfilega af stað þetta tímabilið og er í 17. sæti eftir fimm leiki með fjögur stig og búið að fá á sig tólf mörk. Arsenal er aftur á móti í fínum málum með tíu stig eftir fimm leiki. Vanalega myndi José Mourinho ekki hafa neinar áhyggjur af þessum leik þar sem hann var ekki vanur að tapa fyrir Arsene Wenger. Það breyttist þó þegar liðin mættust í Samfélagsskild­ inum rétt fyrir mót. Arsenal er auðvitað komið með Petr Cech í markið sem þekkir það að vinna stórleiki og titla og spurningin er hvort gamla hetjan á Brúnni af­ greiði Chelsea alveg úr titilbarátt­ unni þótt aðeins sex umferðir verði búnar. HANdBoLTI Önnur umferð Olís­ deildar kvenna í handbolta hefst í dag með sex leikjum. Þar ber hæst leik Gróttu og Stjörnunnar en þessi lið áttust við í lokaúrslitunum í fyrra þar sem Seltirningar höfðu betur í fjórum leikjum. Grótta teflir fram mjög svipuðu liði og í fyrra. Karólína Bæhrenz Láru­ dóttir fór til Svíþjóðar en landsliðs­ konan Þórey Anna Ásgeirsdóttir kom í hennar stað í hægra hornið. Önnur landsliðskona, Unnur Ómarsdóttir, er svo komin í vinstra hornið en hún sneri aftur á Nesið í sumar eftir árs dvöl í Noregi þar sem hún lék með Skrim. „Við erum ógeðslega spenntar og það er fínt að fá heimaleik gegn þeim,“ sagði Unnur um leikinn gegn Stjörnunni sem hefst klukkan 13.30. „Við spiluðum æfingaleik við þær fyrir mót og þær mættu dýrvitlausar til leiks og unnu hann. Við þurfum að mæta jafn ákveðnar til leiks og gefa allt í þetta til að vinna leikinn.“ Gróttu var spáð sigri í Olís­deild­ inni í árlegri spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna og Unnur segir markmið Seltirninga ósköp ein­ falt: Að vinna alla titla sem í boði eru. „Við erum allavega með lið í það og við getum náð markmiðum okkar ef við erum nógu einbeittar. Við erum búnar að taka nokkra æfingaleiki og þegar við erum ekki 100 prósent Ég var svolítið afbrýðissöm Landsliðskonan Unnur Ómarsdóttir er komin aftur í Olís-deildina eftir eitt ár í atvinnumennsku með Skrim í Noregi. Dvölin þar var enginn dans á rósum en Unnur stefnir á að vinna titla með Gróttu í vetur. Unnur þurfti að fylgjast með úr fjar- lægð þegar Grótta vann stóru titlana í fyrra. Fréttablaðið/ valli 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 5 L A U G A R d A G U R22 S P o R T ∙ F R É T T A B L A ð I ðSPORT
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.