Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 40
Fólk| helgin
Frank Sinatra fæddist 12. des-ember 1915. Þess er minnst víða um heim að hann hefði
orðið 100 ára þann dag. Sinatra
lést árið 1998. Bjarni segir að hug-
myndin hafi komið frá Sigurði
Flosasyni og félögum í Stórsveit
Reykjavíkur. Helstu söngvarar
landsins koma fram á tónleikunum
og flytja þekktustu lög Sinatra,
fyrir utan Bjarna eru það Björgvin
Halldórsson, Egill Ólafsson, Helgi
Björnsson, Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Pálmi Gunnarsson, Ragnar
Bjarnason, Valdimar Guðmunds-
son, Pálmi Gunnarsson, Jógvan
Hansen, Friðrik Ómar Hjörleifsson
og Þór Breiðfjörð.
Mikið stuð á Milla-balli
Meðal frægustu laga Sinatra eru
My Way, New York, New York
og I've Got You Under My Skin
en þar að auki söng hann mörg
mjög fræg jólalög. Bjarni segir
að á tónleikunum verði flutt öll
helstu og frægustu lög Sinatra,
þó ekki jólalög. Bjarni er kannski
betur þekktur fyrir Elvis-lög en
hann segist ekkert síður hafa
gaman af Sinatra. „Ég hef sungið
heilmikið af Sinatra-lögum í gegn-
um tíðina. Ég er kannski þekktari
fyrir Elvis-lögin en á löngum ferli
er ekki hægt að komast hjá því
að syngja Sinatra. Við erum til
dæmis með Sinatra-lög þegar ég
syng með Milljónamæringunum,“
segir Bjarni. Milljónamæringarnir
voru einmitt með ball um síðustu
helgi í Gamla bíói sem Bjarni seg-
ir að hafi verið einstaklega vel
heppnað. „Það var alveg ótrúlega
mikið stuð og mjög gaman,“ segir
hann. „Milla-böllin eru alltaf ein-
stök,“ bætir hann við. „Fólk sem
er ekki mikið á djamminu kemur
á Milla-böll til að dansa. Við
vorum að koma saman eftir þó
nokkurt hlé og ég á von á að það
verði fleiri svona böll á næst-
unni,“ segir Bjarni. „Það er hugur
í sveitinni og ég reikna með að
við verðum á árshátíðum í vetur
og ýmsum öðrum uppákomum.“
Það er alltaf nóg að gera hjá
Bjarna, hann syngur við alls
kyns athafnir; útfarir, brúðkaup
og afmæli, fyrir utan tónleika.
„Ég mun syngja á jólahlaðborði
Grand hótels fyrir jólin þannig að
það eru ýmis verkefni sem koma
upp í hendurnar á manni,“ segir
söngvarinn, sem er einnig með
útvarpsþátt eftir hádegi á sunnu-
dögum á Bylgjunni. „Þessi helgi
er óvenju róleg hjá mér, ekkert
bókað í kvöld þannig að ég ætla
að njóta þess að vera með fjöl-
skyldunni.“
langur Ferill
Bjarni segir að Stórsveitin hafi
verið að æfa á fullu fyrir Sinatra-
tónleikana og söngvarar búnir
að vinna sína heimavinnu. „Það
verða æfingar með söngvurum á
næstu dögum. Það er mjög góð
stemning fyrir tónleikunum og ég
hlakka mikið til,“ segir hann.
Bjarni er 44 ára en hann hefur
verið á sviði frá fjórtán ára aldri
þannig að ferillinn er langur þótt
hann sé enn ungur maður. „Ég
hef alltaf haft áhuga á tónlist fyrri
tíma og hún hefur svolítið fylgt
mér,“ segir hann. „Elvis kom alltaf
sterkur inn hjá mér, enda var ég
ólíkur jafnöldrum mínum í skóla
að því leyti. Krakkarnir voru að
hlusta á popp áttunda áratugar-
ins þegar ég var í gömlu meistur-
unum með vatnsgreitt hár,“ segir
Bjarni, sem byrjaði í tónlistar-
skóla níu ára og var tæpra sextán
ára þegar hann var kosinn látúns-
barki árið 1987. Þar með var
hann orðinn poppstjarna Íslands.
„Það er til upptaka af mér í sjón-
varpinu að syngja þegar ég var 14
ára svo maður er búinn að koma
víða við.“
harpa einstök
Bjarni hefur tvívegis tekið þátt í
undankeppni Eurovision og árið
1992 munaði litlu að hann færi
alla leið með lagið Karen Karen,
sem enn lifir góðu lífi. „Ég gæti
vel hugsað mér að taka þátt aftur
ef það byðist,“ segir Bjarni og
bætir því við að mörg spenn-
andi verkefni séu á döfinni. „En
núna hugsa ég bara um Sinatra-
tónleikana. Mér finnst einstakt
að stíga á svið í Eldborg. Harpa
er svo stórfenglegt hús og svo
verður maður með frábærum
fagmönnum á sviðinu.“
n elin@365.is
gaMlir Meistarar
alltaF Fylgt Mér
áhugaVert Bjarni Arason söngvari verður með góðum hópi tónlistarmanna
á sviðinu í Eldborg á miðvikudag þegar 100 ára afmæli Franks Sinatra verður
fagnað. Flutt verða þekktustu lög söngvarans og farið verður yfir sögu hans.
sinatra á MiðVikudaginn
Bjarni segist alla tíð hafa verið
veikur fyrir gömlum meisturum
á borð við Elvis og Sinatra.
mynd/StEFán
Vörurnar frá Sólgæti eru hollar og
góðar fyrir sælkera á öllum aldri sem
vilja gera vel við sig. Líttu í kringum
þig í næstu verslun. Þú kemur eaust
auga á eitthvað ljómandi gott.
H E I L N Æ M T O G
N Á T T Ú R U L E G T
LJÓMANDI
GOTT
solgaeti.isheilsa.is