Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 65
LAUGARDAGUR 19. september 2015
Spennandi störf í
ferðaþjónustu
Sterna Travel er vaxandi fyrirtæki í
ferðaþjónustu sem býður upp á
dagsferðir með leiðsögn allan ársins
hring. Á sumrin bjóðum við upp á
nýjung í ferðaþjónustu sem er
hringpassi í kringum landið. Yfir
vetrartímann bíður félagið auk þess
upp á norðurljósaferðir frá Reykjavík,
norður- og austurlandi.
Sterna Travel er með söluskrifstofu og
aðstöðu í Hörpu tónlistarhúsi.
Vegna aukinna umsvifa leitum við að
jákvæðum og samviskusömum
samstarfsmönnum með góða
þjónustulund í eftirfarandi störf:
Markaðsstjóri
Leitum eftir öflugum og góðum aðila til að sjá um alhliða markaðsmál,
heimasíðu og kynningarefni. Sjálfstæð vinnubrögð, þekking og reynsla á
ferðaþjónustumarkaði hérlendis og erlendis eru kostir. Allar umsóknir
meðhöndlaðar með 100% trúnaði.
Sölu- og þjónustufulltrúi
Almenn afgreiðsla, tilboðsgerð og þjónusta.
Jafnframt óskum við eftir starfsfólki í norðurljósateymið okkar. Starfið felst í
undirbúning og aðstoð í norðurljósaferðum. Vinnutími er óreglulegur.
Bifreiðastjóri
Leitum eftir traustum og áreiðanlegum bifreiðastjórum með rútupróf í fullt
starf. Getum einnig bætt við okkur bílstjórum í tilfallandi akstur í kvöld- og
helgarferðir.
Bifvélavirki
Leitum eftir að ráða faglærðann starfskraft á verkstæði fyrirtækisins. Vinnan
felst í viðhaldi og viðgerðum á bifreiðum fyrirtækisins.
Áhugasamir sendið umsóknir og ferilskrá á kjartan@sternatravel.com
Umsóknarfrestur er til 1. Október.
Kennarastöður við Ölduselsskóla.
Vegna forfalla vantar nú umsjónarkennara í
2. og 6. bekk Ölduselsskóla. Um tímabundna
ráðningu á skólaárinu er að ræða.
Hæfniskröfur:
• Réttindi til að sinna kennslu í grunnskóla
• Færni í samskiptum
• Faglegur metnaður • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Reynsla og áhugi á að starfa með
börnum
Nánari upplýsingar gefur Börkur Vígþórsson skólastjóri,
borkur.vigthorsson@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. september og skal umsóknum skilað á vef http://reykjavik.is/laus-storf
Ölduselsskóli er heildstæður grunnskóli og eru nemendur skólans um 460
talsins Einkunnarorð Ölduselsskóla eru færni, virðing og metnaður, þar sem
lagt er upp með að starfsmenn og nemendur sýni metnað í námi og starfi,
leitist við að bæta færni sína og beri virðingu fyrir sér, öðrum og umhverf-
inu. Skólinn státar af öflugri kennslu í bóklegum og verklegum greinum.
Mikil áhersla er lögð á samvinnu kennara með það að markmiði að halda
úti öflugu skólastarfi án aðgreiningar. Skólinn starfar eftir eineltisáætlun
Olweusar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut
kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Aðstoðarskólastjóri Dalskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laust er til umsóknar starf aðstoðarskólastjóra í Dalskóla með áherslu á grunnskólahluta skólans.
Dalskóli er samrekinn leik- og grunnskóli auk frístundaheimilis. Í skólanum eru 230 börn frá 2ja ára aldri. Nemendur á grunn-
skólaaldri eru um 150 talsins. Dalskóli er staðsettur í ört vaxandi hverfi í Úlfarsárdal og fullbyggður verður skólinn 600-700
barna skóli. Fyrsti áfangi nýrrar skólabyggingar verður tekinn í notkun næsta haust. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir
einstaklingnum. Í Dalskóla er sungið hvern dag og þar er samkennsla í samfélags- og náttúrugreinum í þemabundnu námi.
Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt, metnaðarfullt og skapandi skólastarf.
Í stjórnunarteymi skólans eru skólastjóri, tveir aðstoðarskólastjórar og forstöðumaður frístundaheimilis. Annar aðstoðar-
skólastjórinn leggur rækt við leikskólahluta skólans en hinn við grunnskólahluta hans. Allir stjórnendur vinna saman með hag
heildarinnar að leiðarljósi.
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf til að
nota starfsheitið grunnskólakennari.
Umsóknarfrestur er til 4. október 2015. Starfið er laust frá miðjum október eða samkvæmt samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Jóhannesdóttir skólastjóri í síma 411-7860 eða í tölvupósti á netfanginu
hildur.johannesdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að vera í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu
skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar.
• Að bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfssemi skólans
í samstarfi við teymi stjórnenda, með starfsmönnum og
foreldrum.
• Utanumhald fjárhagsáætlana og launamála í samvinnu við
skólastjóra.
• Utanumhald starfsmanna- og ráðningamála í samvinnu við
skólastjóra.
• Að vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins.
Hæfniskröfur
• Kennaramenntun og kennslureynsla í grunnskóla.
• Meistarapróf í stjórnun mennta- eða menningarstofnana
eða annað sambærilegt meistarapróf sem nýtist í starfinu
æskilegt.
• Stjórnunarhæfileikar og stjórnunarreynsla.
• Reynsla af faglegri forystu í skólaþróunarverkefnum og
fjölbreyttum kennsluaðferðum.
• Hæfni og geta til að vinna í teymi.
• Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun.
• Lipurð og færni í samskiptum.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is