Fréttablaðið - 19.09.2015, Qupperneq 92
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Þórelfur Jónsdóttir
leikskólakennari,
lést miðvikudaginn 16. september á
hjúkrunardeild Hrafnistu í
Hafnarfirði. Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju 25. september kl. 11.00.
Reynir Jóhannsson, Bragi Jóhannsson,
Brynjar Jóhannsson, Hjörtur Jóhannsson,
Lára Björk Magnúsdóttir, Árný S. Steindórsdóttir,
Ragnhildur Gunnarsdóttir og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elskulegrar
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Rafnhildar Katrínar
Árnadóttur
áður til heimilis að
Sunnubraut 17, Akranesi.
Sérstakar þakkir fá starfsmenn Dvalarheimilisins Höfða
fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Helga Guðmundsdóttir Ingi Steinar Gunnlaugsson
Kristinn Guðmundsson Petrea Ingibjörg Jónsdóttir
Guðjón Guðmundsson Elín Jóhannsdóttir
Jónína Guðmundsdóttir Ásgeir Kristjánsson
Þórir Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug
og kærleika við andlát og útför
okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Páls Magnússonar
vélfræðings.
Jóhanna Rögnvaldsdóttir
Magni Þór Pálsson Elísabet Arna Helgadóttir
Ingvi Már Pálsson Sigríður Kristín Birnudóttir
Tómas, Helga, Gauti og Gunnur Magnabörn
Emilía, Karítas og Lovísa Ingvadætur
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Inga Guðrún
Gunnlaugsdóttir
sjúkraliði,
Víðihlíð 10,
andaðist á dvalarheimilinu Grund
14. september sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 22. september kl. 13.00.
Sigurjón Hreiðar Gestsson
Sigríður Sigurjónsdóttir Eiríkur Steingrímsson
Gunnlaugur Sigurjónsson Þórdís Arnardóttir
Rúnar Sigurjónsson Kristín Loftsdóttir
Arney Eva, Inga Guðrún, Halla, Jón Hreiðar
og Ragna Steinunn
Innilegar þakkir fyrir einstakan
kærleikshug og samúð vegna andláts
og útfarar okkar ástkæra
Þorgríms Einarssonar
Togga
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Kolfinna Líf Pálsdóttir, Breki Þór Þorgrímsson
Viljar Máni Þorgrímsson, Einar Þorgrímsson
Bryndís Eysteinsdóttir
Einar Þorgrímsson Sigurlína Sveinsdóttir
Eysteinn Ó. Einarsson Kristrún Úlfarsdóttir
Vífill Valdimarsson
Okkar ástkæri,
Stefán Gunnar Vilhjálmsson
Starrahólum 7, Reykjavík
lést á Landspítalanum við Hringbraut
12. september. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn
24. september kl. 15.
Sigríður Ásmundsdóttir Gunnar Óskarsson
Ásdís Gunnarsdóttir
Ármann Gunnarsson
Arnþór Fannar Guðmundsson
Berglind Björg Guðmundsdóttir
og fjölskyldur
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
„Þessir tónleikar eru mjög stórt skref
fyrir mig,“ segir söngkonan Heiðrún
Kristín Guðvarðsdóttir sem heldur tón
leika í dag undir yfirskriftinni Með bros
á vör. Tilefni tónleikanna er tvíþætt,
annars vegar til að halda upp fimm
tugsafmæli Heiðrúnar en einnig til þess
að fagna því að hún komst heil á húfi
úr erfiðri krabbameinsmeðferð. „Ég er
enn að byggja upp orkuna eftir með
ferðina,“ útskýrir Heiðrún og bætir við:
„Ég fékk mjög sjaldgæfa tegund af krabba
meini. Fyrir tíu árum voru ekki til lyf við
tegundinni sem ég fékk. Ég þurfti að fara
í allan pakkann; lyfjagjöf, geislameð
ferð, aðgerð og svo aftur í lyfjagjöf. Þetta
var sextán mánaða barátta og var alveg
svakalega erfitt. En nú fagna ég, meðal
annars með því að nota lagið Smile, sem
ég hafði sérstakt dálæti á í veikindunum.“
Heiðrún varð fimmtug í júlí og hélt upp
á afmælið með því að fara til útlanda.
„Ég fór til Düsseldorf ásamt manninum
mínum. Ég fékk meira að segja ókeypis í
ferju þarna í Þýskalandi á sjálfan afmælis
daginn,“ segir hún og skellir upp úr.
Tónleikar Heiðrúnar hefjast klukkan
16 í dag og fara fram í Fella og Hóla
kirkju. Með henni syngja þau Davíð
Ólafsson, Kristín R. Sigurðardóttir,
Helga Magnúsdóttir og sönghópurinn
Boudoir. Meðleikarar eru Julian M.
Hewlett á píanó, Símon H. Ívarsson
á gítar og Guðni Franzson á klarin
ett. Heiðrún ætlar að flytja sitt lítið
af hverju. „Ég mun syngja bandarísk
dægurlög og létta klassíska tónlist, svo
eitthvað sé nefnt.“ Heiðrún mun einnig
flytja íslensk lög á borð við Hrísluna og
lækinn, eftir Inga T. Lárusson, og Hugur
flýgur, eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
„Síðan tek ég auðvitað lagið hans Charlie
Chaplins, Smile. Ég nýt aðstoðar kvenna
sönghópsins Boudoir í því lagi.“
Heiðrún hefur tvisvar áður haldið ein
söngstónleika, fyrst árið 2011 og síðan
2013, í bæði skiptin í Fella og Hóla
kirkju. kjartanatli@frettabladid.is
Tónleikar í tilefni af
fimmtugsafmæli
Heiðrún Kristín Guðvarsdóttir söngkona heldur tónleika í dag undir yfirskriftinni Með
bros á vör. Heiðrún fagnar því að hafa komist heil á húfi úr erfiðri krabbameinsmeðferð.
Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir hefur tvisvar áður haldið einsöngstónleika, fyrst árið 2011 og síðan 2013. Mynd/Aðsend
Merkisatburðir
1802 Andvana síamstvíburar fæddust í Rangárvallasýslu.
1874 Blaðið Ísafold hóf göngu sína.
1915 Jóhann Hafstein, fyrrverandi forsætisráðherra, fæddist.
1939 Þýski kafbáturinn U30 kom til Reykjavíkur með þrjá slasaða
menn. Þeir höfðu slasast við árás kafbátsins á breskt
flutningaskip.
1974 Jimmy Fallon, bandarískur grínisti og þáttastjórnandi,
fæddist.
1977 Jón L. Árnason varð heimsmeistari sveina í skák,
16 ára gamall.
1981 Tungufoss sökk á Ermarsundi.
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r48 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð