Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 102
Til sölu úr landnámsjörðinni Skeggjastöðum í Mosfellsdal,
við Leirvogsána undir Esjurótum, tvær íbúðir í mikið
endurnýjuðu steinsteyptu húsi.
Annars vegar 231 fm 5 herbergja hæð með bílskúr og hins vegar 73 fm
tveggja herbergja íbúð með sér inngangi. Að auki fylgja tvær skemmur
588 fm hvor og sökkull undir þá þriðju. Draumastaðsetning hvort sem er
sem einkaheimili eða undir rekstur ferða- eða frístundaþjón ustu.
Verð 94,3 milljónir og er eignin laus til afnota við samning.
Húsið stendur á 3ja hektara landi sem skiptist til helminga milli tveggja
eigenda en að auki er möguleiki á að kaupa 50 hektara aðliggjandi
landsvæði.
Nánari upplýsingar veittar í síma 841 6622 eða á netfanginu
Skeggi@simnet.is Facebook síða: Skeggjastaðir ehf.
Nátturuparadís steinsnar frá
hjartslætti borgarinnar
N ína Tryggvadóttir fæddist á Seyðis-firði árið 1913 en fjölskyldan flutti til Reykjavíkur árið 1920
og bjó skammt frá Ásgrími Jónssyni
listmálara, sem hefur að öllum lík-
indum verið fyrstur til þess að segja
Nínu til við listsköpun sína en í gær
var opnuð í Listasafni Íslands yfir-
litssýning á verkum Nínu.
Una Dóra Copley, einkadóttir
Nínu og eiginmanns hennar, Alfreds
L. Copley, er stödd á landinu og
verður með áður óbirt verk eftir
móður sína á sýningunni. Una Dóra
segir að það sé mikið gleðiefni fyrir
hana hversu viðamikil og glæsileg
sýningin í Listasafninu sé. „Þetta er
stærsta og glæsilegasta yfirlitssýning
á verkum hennar í fjörutíu ár og svo
ég er alveg óskaplega glöð.
Það hefur líka sérstaklega mikla
merkingu fyrir mig að þessi sýning
skuli vera hér. Ég elska Ísland. Hér
var ég fædd og við mamma eyddum
alltaf sumrunum saman hérna
heima allt þar til hún lést árið 1968
og ég gifti mig þarna um svipað
leyti. Eftir það hætti ég því miður að
koma jafn mikið en ég lít samt alltaf
svo á að þetta sé líka mitt heimili og
að ég sé bæði íslensk og bandarísk.
Mamma gerði líka alltaf sitt til þess
að ég upplifði mig sem Íslending og
það hef ég líka alltaf gert.“
Nína nam myndlist í Kaupmanna-
höfn og New York og bjó auk þess
í París, Lundúnum og Reykjavík.
Aðallega vann hún málverk með
olíu á striga en hún er einnig þekkt
fyrir barnabækur sínar, pappírsverk
og verk úr steindu gleri og mósaík.
Hún var meðal frjóustu og fram-
sæknustu myndlistarmanna sinnar
kynslóðar, þátttakandi í form-
byltingunni í íslenskri myndlist á
5. og 6. áratugnum. Hún sýndi verk
sín á fjölda sýninga um heim allan,
þar á meðal í ICA; Institute of Con-
temporary Arts, London, Palais des
Beaux-Arts í Brussel og New Art
Circle Gallery í New York. Hún er
einn fjögurra íslenskra listamanna
sem eiga verk í eigu MoMA; Museum
of Modern Art í New York, auk þess
sem verk hennar eru í eigu fjölda
annarra listasafna og einstaklinga
um heim allan.
Una Dóra segir að það hafi nú
ekki komið sér á óvart að sjá í hversu
miklum metum verk Nínu eru í
íslenskum listheimi. „Mamma fann
alltaf að hún var í miklum metum
hérna ekki síður en í öðrum heims-
Alltaf í miðri hringiðunni
Nína Tryggvadóttir listmálari var á meðal frjóustu og framsæknustu listamanna sinnar samtíðar.
Una Dóra Copley ung að árum ásamt foreldrum sínum á vinnustofu móður sinnar.
Una Dóra Copley er einkadóttir Nínu Tryggvadóttur myndlistarkonu
en í gær var opnuð glæsileg yfirlitssýning á verkum Nínu í Listasafni
Íslands. Una Dóra var alin upp í hringiðu lista og menningar.
ForeLDrar
mÍNir LiFðU
Í þessari
hriNgiðU
LisTaNNa
hvar
sem við
bjUggUm.
hlutum. Fyrst og fremst er ég bara
svo stolt af henni. Hún var stórkost-
legur listamaður og yndisleg móðir.
Málið er að ég skil í sjálfu sér ekki á
milli listakonunnar og móðurinnar
og hef aldrei gert. Mamma og pabbi
tóku mig alltaf með hvert sem þau
fóru enda var ég afskaplega þægt
barn. Ég var tekin með í opnanir og
veislur og þær voru nú aldeilis frá-
bærar, opnunarveislurnar, í þá tíð.
Hljómsveitir og heillandi samræður
og mikið líf. Alveg gríðarlega mikið
líf.
Það var svo mikið að gerast í list-
inni á þessum tíma og listamenn-
irnir hluti af mikilli samræðu í
gegnum verk sín. Það var afskaplega
mikil samræða í gangi í listheim-
inum öllum, skipst á hugmyndum,
möguleikar kannaðir, og tekist á um
strauma og stefnur af mikilli ástríðu.
Þetta var sérstakur og skemmtilegur
tími í listinni. Foreldrar mínir lifðu
í þessari hringiðu listanna hvar sem
við bjuggum. Þar voru heimspeking-
ar, rithöfundar, málarar, dansarar og
svo mætti lengi telja og það merki-
lega er að alltaf var að minnsta kosti
einn Íslendingur í miðri hringið-
unni og sú manneskja var mamma.
Mamma var alltaf í þessari hringiðu
miðri og það var hún allt til hinsta
dags.
Mér finnst synd hvað þetta hefur
dottið upp fyrir í seinni tíð og hver
og einn listamaður er meira að
reyna að ná í gegn einn og sér. En
fyrst og fremst er ég glöð yfir því
hvað sýningin sem var verið að opna
hérna á Listasafninu er glæsileg.“
magnus@frettabladid.is
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r58 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð