Fréttablaðið - 19.09.2015, Síða 102

Fréttablaðið - 19.09.2015, Síða 102
Til sölu úr landnámsjörðinni Skeggjastöðum í Mosfellsdal, við Leirvogsána undir Esjurótum, tvær íbúðir í mikið endurnýjuðu steinsteyptu húsi. Annars vegar 231 fm 5 herbergja hæð með bílskúr og hins vegar 73 fm tveggja herbergja íbúð með sér inngangi. Að auki fylgja tvær skemmur 588 fm hvor og sökkull undir þá þriðju. Draumastaðsetning hvort sem er sem einkaheimili eða undir rekstur ferða- eða frístundaþjón ustu. Verð 94,3 milljónir og er eignin laus til afnota við samning. Húsið stendur á 3ja hektara landi sem skiptist til helminga milli tveggja eigenda en að auki er möguleiki á að kaupa 50 hektara aðliggjandi landsvæði. Nánari upplýsingar veittar í síma 841 6622 eða á netfanginu Skeggi@simnet.is Facebook síða: Skeggjastaðir ehf. Nátturuparadís steinsnar frá hjartslætti borgarinnar N ína Tryggvadóttir fæddist á Seyðis-firði árið 1913 en fjölskyldan flutti til Reykjavíkur árið 1920 og bjó skammt frá Ásgrími Jónssyni listmálara, sem hefur að öllum lík- indum verið fyrstur til þess að segja Nínu til við listsköpun sína en í gær var opnuð í Listasafni Íslands yfir- litssýning á verkum Nínu. Una Dóra Copley, einkadóttir Nínu og eiginmanns hennar, Alfreds L. Copley, er stödd á landinu og verður með áður óbirt verk eftir móður sína á sýningunni. Una Dóra segir að það sé mikið gleðiefni fyrir hana hversu viðamikil og glæsileg sýningin í Listasafninu sé. „Þetta er stærsta og glæsilegasta yfirlitssýning á verkum hennar í fjörutíu ár og svo ég er alveg óskaplega glöð. Það hefur líka sérstaklega mikla merkingu fyrir mig að þessi sýning skuli vera hér. Ég elska Ísland. Hér var ég fædd og við mamma eyddum alltaf sumrunum saman hérna heima allt þar til hún lést árið 1968 og ég gifti mig þarna um svipað leyti. Eftir það hætti ég því miður að koma jafn mikið en ég lít samt alltaf svo á að þetta sé líka mitt heimili og að ég sé bæði íslensk og bandarísk. Mamma gerði líka alltaf sitt til þess að ég upplifði mig sem Íslending og það hef ég líka alltaf gert.“ Nína nam myndlist í Kaupmanna- höfn og New York og bjó auk þess í París, Lundúnum og Reykjavík. Aðallega vann hún málverk með olíu á striga en hún er einnig þekkt fyrir barnabækur sínar, pappírsverk og verk úr steindu gleri og mósaík. Hún var meðal frjóustu og fram- sæknustu myndlistarmanna sinnar kynslóðar, þátttakandi í form- byltingunni í íslenskri myndlist á 5. og 6. áratugnum. Hún sýndi verk sín á fjölda sýninga um heim allan, þar á meðal í ICA; Institute of Con- temporary Arts, London, Palais des Beaux-Arts í Brussel og New Art Circle Gallery í New York. Hún er einn fjögurra íslenskra listamanna sem eiga verk í eigu MoMA; Museum of Modern Art í New York, auk þess sem verk hennar eru í eigu fjölda annarra listasafna og einstaklinga um heim allan. Una Dóra segir að það hafi nú ekki komið sér á óvart að sjá í hversu miklum metum verk Nínu eru í íslenskum listheimi. „Mamma fann alltaf að hún var í miklum metum hérna ekki síður en í öðrum heims- Alltaf í miðri hringiðunni Nína Tryggvadóttir listmálari var á meðal frjóustu og framsæknustu listamanna sinnar samtíðar. Una Dóra Copley ung að árum ásamt foreldrum sínum á vinnustofu móður sinnar. Una Dóra Copley er einkadóttir Nínu Tryggvadóttur myndlistarkonu en í gær var opnuð glæsileg yfirlitssýning á verkum Nínu í Listasafni Íslands. Una Dóra var alin upp í hringiðu lista og menningar. ForeLDrar mÍNir LiFðU Í þessari hriNgiðU LisTaNNa hvar sem við bjUggUm. hlutum. Fyrst og fremst er ég bara svo stolt af henni. Hún var stórkost- legur listamaður og yndisleg móðir. Málið er að ég skil í sjálfu sér ekki á milli listakonunnar og móðurinnar og hef aldrei gert. Mamma og pabbi tóku mig alltaf með hvert sem þau fóru enda var ég afskaplega þægt barn. Ég var tekin með í opnanir og veislur og þær voru nú aldeilis frá- bærar, opnunarveislurnar, í þá tíð. Hljómsveitir og heillandi samræður og mikið líf. Alveg gríðarlega mikið líf. Það var svo mikið að gerast í list- inni á þessum tíma og listamenn- irnir hluti af mikilli samræðu í gegnum verk sín. Það var afskaplega mikil samræða í gangi í listheim- inum öllum, skipst á hugmyndum, möguleikar kannaðir, og tekist á um strauma og stefnur af mikilli ástríðu. Þetta var sérstakur og skemmtilegur tími í listinni. Foreldrar mínir lifðu í þessari hringiðu listanna hvar sem við bjuggum. Þar voru heimspeking- ar, rithöfundar, málarar, dansarar og svo mætti lengi telja og það merki- lega er að alltaf var að minnsta kosti einn Íslendingur í miðri hringið- unni og sú manneskja var mamma. Mamma var alltaf í þessari hringiðu miðri og það var hún allt til hinsta dags. Mér finnst synd hvað þetta hefur dottið upp fyrir í seinni tíð og hver og einn listamaður er meira að reyna að ná í gegn einn og sér. En fyrst og fremst er ég glöð yfir því hvað sýningin sem var verið að opna hérna á Listasafninu er glæsileg.“ magnus@frettabladid.is 1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r58 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.