Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 120
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna
á tölublað, 12–80 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
64,1%
26%
FB
L
M
BL
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Bergs Ebba
Bakþankar
Úrslitin á Opna bandaríska meistara-
mótinu í Tennis fóru fram um síðustu
helgi. Það var gríðarleg spenna fyrir
viðureignina í karlaflokki því þar
mættust þeir allra stærstu: Novak
Djokovic og Roger Federer. Það jók
einnig á spennuna að úrslitaleikurinn
frestaðist um 3,5 klst. vegna rign-
ingar. Sky Sport hélt uppi útsendingu
gegnum alla biðina. Þar á bæ voru
menn hreinlega að ærast úr spennu
þó að þeir hefðu ekki úr miklu að
moða.
Myndbrot af Federer að mæta á
æfingasvæðið var endursýnt í sífellu.
Federer var ekki með reimarnar á
skóm sínum hnýttar og það fór óra-
langur tími í að ræða það „atvik“ og
hvaða áhrif það gæti haft á leikinn.
Umræðan varð ítarleg og langdregin.
Sumir gerðu því skóna að Federer
væri með óreimaða skó því hann
væri stökkbólginn og meiddur. Aðrir
mótmæltu og sögðu hann virka
meiddan vegna þess að hann væri
með óreimaða skó og því væri göngu-
lagið kjagandi. Þessi umræða var
stórkostlega heimskuleg. Á meðan
menn ræddu skóreimarnar og meint
meiðsli í þaula sást Federer hlaupa
um völlinn í upphituninni. En eitt-
hvað verða menn að segja til að fylla
upp í 3,5 klst. af bið. Þessi umræða fór
fram frammi fyrir alþjóð, líklega voru
milljónir að fylgjast með. Það sem
er enn athyglisverðara er að þátttak-
endur umræðunnar eru ekki heimskt
fólk. Þetta er líklega mestanpart
fólk með háskólagráður og mikinn
metnað fyrir starfi sínu. Það var
spennan, biðin og aðstaðan sem skóp
heimskuna.
Ég er stundum gáttaður á meintri
heimsku fólks hér og þar og pæli
mikið í „vondum skoðunum“ og
rugli sem sett er fram. En kannski
ætti ég frekar að beina athyglinni
að aðstæðunum sem við sköpum
okkur. Á meðan ekkert er í gangi eru
skoðanirnar heitastar, oftúlkanirnar
brenglaðastar o.s.frv. Einmitt þegar
ekkert skiptir máli þá fellur mesta
froðan. Kannski erum við bara eins
og Sky Sport-fólkið, endalaust að
rýna í tilgangslaus „atvik“, bíðandi í
rigningunni eftir að leikurinn hefjist
með nógan tíma fyrir höndum.
Að drepa
tímann