Fréttablaðið - 21.03.2016, Síða 21
Fyrirtækjaþjónusta
21. mars 2016
Kynningarblað Síminn | IKEA | Faktoría
Fimmtán hundruð fyrirtæki eru
í stýringu hjá fyrirtækjaþjónustu
Símans eftir að þjónustunni var
umbylt á síðasta ári. Fyrirtækj-
unum fjölgaði um fjögur hundr-
uð milli ára og stefnir Síminn á að
fjölga þeim sem fá sinn eigin þjón-
ustufulltrúa enn frekar, að sögn
Þórðar Guðjónssonar, forstöðu-
manns Viðskiptastýringar og sölu
hjá Símanum. Hann er stoltur af
niðurstöðunni og segir breyting-
una hafa mælst afar vel fyrir hjá
viðskiptavinum.
„Samhliða aukinni sjálfvirkni
í þjónustu okkar fórum við líka
í þveröfuga átt, persónugerðum
þjónustuna og tókum fleiri fyrir-
tæki inn í stýringu. Við sáum að
markaðurinn kallaði eftir slíkum
breytingum og tókum með mark-
vissum hætti á tímasóun í ferlum
með þeim árangri að tíminn nýtt-
ist til hins betra fyrir viðskipta-
vini okkar. Fjarskiptamarkaðurinn
breytist hratt og þá er lykilatriði að
halda viðskiptavinum ánægðum og
veita þeim eins góðar vörur og þjón-
ustu og hægt er. Þjónusta Símans
á fyrirtækjamarkaði er eins og við
viljum hafa hana; framúrskarandi.“
Mikil ánægja
Viðskiptavinir Símans á fyrir-
tækjamarkaði hafa tekið breyting-
um afar vel að sögn Þórðar. „Það
er óhætt að segja að fyrirtæk-
in hafi tekið þessum breytingum
fagnandi. Við finnum fyrir mikilli
ánægju. Viðskiptavinum finnst stór
plús að hafa nú persónulegan tengi-
lið innan Símans sem gætir hags-
muna þeirra og sparar þeim um
leið tíma.“
Þórður segir að fyrir smærri
fyrirtæki sé breytingin sérstak-
lega þægileg enda hafi þau færri
starfsmenn innanborðs til að sinna
fjarskiptamálum. „Þá er gott að vita
af tengilið sínum hjá Símanum sem
þekkir þarfir fyrirtækisins og sér
til þess að viðkomandi fyrirtæki sé
í eins góðum málum og hægt er á
hverjum tíma.“
Hann segir sérgrein Símans
að bjóða góða þjónustu. „Þjónusta
getur ráðið úrslitum þegar kemur
að því að velja við hvaða fjarskipta-
fyrirtæki er skipt. Því bjóðum við
fyrirtækjum sem eru í viðskiptum
við okkur eina yfirferð á kjörum og
áskriftum að lágmarki einu sinni á
ári. Viðskiptavinir eru því á bestu
kjörum sem við bjóðum á hverjum
tíma.“
Samkeppnin til fyrirmyndar
Samkeppnin á fjarskiptamark-
aði hérlendis er mjög mikil að
sögn Þórðar og raunar mun meiri
en marga grunar. „Sú samkeppni
mætti vera öðrum til fyrirmynd-
ar. Tæknin breytist hratt og nýjar
vörur og þjónustuþættir spretta
stöðugt fram. Síminn þarf því að
vera mjög vakandi fyrir öllum
þessum breytingum. Við vinnum
statt og stöðugt að því að standa
undir því nafni að vera traust og
áreiðanleg. Þá er einn helsti kost-
ur Símans að þar starfar reynslu-
ríkt fólk. Það þekkir fyrirtækin
og markaðinn vel þegar sérsníða á
fjarskiptalausnir fyrir fyrirtæki.“
Það ríkir því góð stemning innan
fyrirtækjaþjónustunnar að sögn
Þórðar. „Við erum meðvituð um
samkeppnina, erum keppnisfólk og
til í slaginn. Breytt fyrirkomulag
fyrirtækjaþjónustu Símans hefur
skapað meiri yfirsýn viðskipta-
vina og okkar. Nú nálgumst við
viðskiptavinina ekki síður en þeir
okkur enda dýrmætt að geta boðið
góða þjónustu og eiga í góðu gagn-
virku sambandi við viðskiptavini.“
allar nánari upplýsingar um fyrir-
tækjaþjónustu Símans má finna á
www.siminn.is.
Fyrirtækjaþjónustunni umbylt
Síminn breytti þjónustunni við fyrirtæki á síðasta ári og lofar þeim sem eru í viðskiptum einni yfirferð á kjörum og áskriftum að lágmarki á
ári. Fimmtán hundruð fyrirtæki eru í stýringu, sem er mikil fjölgun milli ára, og stefnt er á að fjölga þeim enn frekar á næstunni.
„Þjónusta Símans á fyrirtækjamarkaði er eins og við viljum hafa hana; framúrskarandi,“ segir Þórður guðjónsson, forstöðumaður Viðskiptastýringar og sölu hjá Símanum. MynD/Ernir
ÞjónuStuvefur
Á þjónustuvef fyrirtækja hjá
Símanum þá þau yfirsýn yfir
kostnað og notkun. Hægt að
velja bæði einfalda eða ítar-
lega kostnaðargreiningu. Mynd-
ræn framsetning er á skiptingu
kostnaðar og geta viðskiptavinir
sniðið framsetninguna að sínum
þörfum.
Á þjónustuvefnum má panta
búnað, breyta áskriftarleiðum,
virkja aukaþjónustu og Ferða-
pakkann og færa þjónustu á milli
reikninga.