Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 6
Grikk eða GOTT? 599 kr.stk. Grasker Halloween Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Á tækinu var að finna miða með grínútgáfu af fána hryðjuverkasam- takanna ISIS. Á fánanum er að finna útlínur þriggja kvenna og frasann „Get er done“ sem eru eins konar einkennisorð grínistans Larry the Cable Guy. Grínfréttasíðan World News Bureau bjó myndina til og hefur henni síðan verið deilt á spjall- borðum hins hægrisins (e. Alt-right). ABC News birti fyrst myndina af þessu tæki en það var sent á fréttastofu CNN í New York og einnig stílað á John Brennan, fyrrverandi yfirmann leyniþjónustunnar CIA. Að sögn heimildarmanns CNN ber tækið þess ekki merki að reyndur sprengjugerðarmaður hafi búið það til. Annar sagði að sprengjumaður- inn hefði ekki einu sinni reynt að fela tækið almennilega og það væri vísbending um að því hefði verið ætlað að finnast. Sprengjan hefði þó vissulega verið „í nothæfu ástandi“. ✿ Rýnt í sprengjuna sem barst CNN Stafræn klukka var á tækinu og finna má slíka klukku á Amazon fyrir nokkra hundraðkalla. Sam- kvæmt frásögn The New York Times er klukkan vísbending um að tækið sé í raun ekki gert til að springa. Alvöru sprengja hefði ekki klukku með niðurtalningu fyrir fórnar- lambið heldur tíðkist það bara í kvikmyndum. 00:01 BANDARÍKIN Umfangsmikil leit að sprengjuvargi stendur nú yfir í Bandaríkjunum eftir að fjöldi áhrifamanna innan bandaríska Demókrataflokksins fékk sendar sprengjur í pósti. Í gær kom í ljós að tvær sprengjur hefðu verið sendar Joe Biden, fyrrverandi varaforseta, og ein leikaranum Robert De Niro. Áður hafði verið greint frá sprengjusendingum til Baracks Obama, Clinton-hjóna, George Soros, CNN og fyrrverandi leyni- þjónustustjórans Johns Brennan, þingkonunnar Maxine Waters og fyrrverandi dómsmálaráðherrans Erics Holder. Síðastnefndi pakk- inn var þó endursendur til Debbie Wasserman Schultz, fyrrverandi formanns miðstjórnar Demókrata- flokksins, en heimilisfang hennar var að sögn heimildarmanna bandarískra fjölmiðla að finna á fleiri pökkum. Sprengjurnar sem ætlaðar voru Biden og De Niro, en komust aldr- ei í hendur þeirra, voru áþekkar sprengjunum sem áður hafði verið fjallað um og þær því taldar hluti af þessu sama máli. Um rörasprengjur er að ræða. Sprengjupúður og gler- brot sett inn í plaströr sem var svo þakið svörtu límbandi. Á sprengj- unni sem send var Brennan og CNN mátti einnig finna stafræna klukku og ef til vill á öðrum sprengjum líka. Sprengjan sem ætluð var De Niro var send á Tribeca Grill, veitingastað í hans eigu í New York-borg. Fram- leiðslufyrirtæki hans, TriBeCa Films, er í sama húsi. Samkvæmt fréttastofu NBC var enginn inni á staðnum þegar sprengjan uppgötvaðist. Öryggisvörður á staðnum hafði verið heima hjá sér að fylgjast með fréttum af þessu máli þegar hann mundi eftir því að hafa séð álíka pakka í pósther- bergi byggingarinnar. Hann hringdi svo í lögreglu sem fór á staðinn og fjarlægði pakkann. Sprengjurnar sem ætlaðar voru Joe Biden fundust hins vegar sín á hvorri póstflokkunarstöðinni í heimaríki hans, Delaware. Önnur í Wilmington og hin í New Castle. Ekki er enn vitað hvort sprengj- Leita logandi ljósi að sökudólgi FBI stýrir rannsókn á sprengjusendingum til áhrifamanna innan bandaríska vinstrisins. Ekki víst að sprengjunum hafi verið ætlað að springa. Forsetinn kennir fjölmiðlum um hatursfulla orðræðu en eitt fórnarlamba skýtur til baka á forsetann og segir æsimennsku hans og hótanir til háborinnar skammar. urnar hefðu í raun og veru getað sprungið og ber sérfræðingum og heimildarmönnum bandarískra fjöl- miðla ekki saman um það. Viðmæl- endur The New York Times drógu það til að mynda í efa á meðan við- mælendur CNN sögðu sprengjurnar „illa gerðar en nothæfar“. Öll skotmörkin hafa gagnrýnt Donald Trump, forseta Banda- ríkjanna, harðlega í fortíðinni og Trump skotið afar fast til baka. Til að mynda kallað Hillary Clinton spillta og Maxine Waters greindar- skerta. Forsetanum hefur í gær og fyrradag verið kennt um að skapa sundrað og hatursfullt pólitískt andrúmsloft í Bandaríkjunum og því haldið fram að það hafi leitt til þessa voðaverks. Trump sagði í gær að stór hluti þeirrar reiði sem greina mætti í bandarísku samfélaginu væri til- kominn vegna „falskrar og rangrar“ umfjöllunar meginstraumsfjöl- miðla. „Þetta er orðið svo slæmt og hatursfullt að það er varla hægt að lýsa því lengur. Meginstraumsfjöl- miðlar þurfa að taka sig saman í andlitinu Í SNATRI,“ tísti forseti. Brennan, eitt skotmarkanna, svar- aði um hæl á sama miðli: „Hættu að kenna öðrum um og líttu í spegil. Æsimennska þín, móðganir, lygar og hvatningar til líkamlegs ofbeldis eru til háborinnar skammar. Takt þú þig saman í andlitinu. Reyndu að haga þér eins og forseti.“ Samkvæmt CNN rannsaka yfir- völd málið sem innanríkishryðju- verk og liggja alþjóðleg hryðju- verkasamtök ekki undir grun. Verið er að reyna að rekja sendingarnar til baka til sendanda og stýrir hryðju- verkadeild alríkislögreglunnar FBI rannsókninni. thorgnyr@frettabladid.is Þetta er orðið svo slæmt og hatursfullt að það er varla hægt að lýsa því lengur. Meginstraums- fjölmiðlar þurfa að taka sig saman í andlitinu Í SNATRI. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna Hættu að kenna öðrum um og líttu í spegil. Æsimennska þín, móðganir, lygar og hvatn- ingar til líkamlegs ofbeldis eru til háborinnar skammar. Takt þú þig saman í and- litinu. John Brennan, fyrrverandi yfirmaður CIA Alls hefur verið greint frá því að tíu sprengjur hafi verið sendar á áhrifamenn í Bandaríkjunum. BANDARÍKIN Gina Haspel, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, mun funda með Donald Trump for- seta um ferð sína til Tyrklands fyrr í vikunni. Þar fékk hún að hlusta á hljóðupptöku sem yfirvöld í Tyrk- landi fullyrða að sé frá því þegar sádiarabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var aflimaður, pyntaður og myrtur á ræðisskrifstofu Sádi- Araba í tyrknesku borginni Istan- búl. Ríkissaksóknaraembætti Sádi- Arabíu sagði í yfirlýsingu í gær að útlit væri fyrir að morðið á Khash- oggi hefði verið þaulskipulagt. Þetta stangast á við fyrri yfirlýsingar um að Khashoggi hafi látist í slagsmál- um þegar leyniþjónustumenn yfir- heyrðu hann í óþökk stjórnvalda. Þá greindi ríkisfréttastöð Sádi- Arabíu frá því í gær að Mohammed bin Salman, krónprins og þjóðar- leiðtogi, hefði stýrt fyrsta fundi nýrrar nefndar um umbætur á störfum leyniþjónustunnar í gær. Nefndin var skipuð í kjölfar morðs- ins á Khashoggi. Auk þess að skipa nefndina hafa tveir ráðgjafar verið reknir og átján einstaklingar hand- teknir vegna málsins. – þea Haspel hlýddi á upptökuna Gina Haspel, yfirmaður leyniþjón- ustunnar (CIA). NORDICPHOTOS/AFP Yfirmaður CIA hlýddi á upptöku sem Tyrkir segja að sé frá því þegar Jamal Khash- oggi var aflimaður, pyntaður og myrtur. 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.