Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 55
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson bregða ekki út af vananum og halda sína árlegu sam- eiginlegu jólatónleika í ár – og gefa út lag af því tilefni. Sigurður segir að eins og vanalega sé ekki um eigin- legt jólalag að ræða heldur sé þetta frekar haust- og vetrarlag og kemur það skýrt fram í titli lagsins en það nefnist Vindar að hausti. Þau bregða sér alla leið til Brasilíu eftir laginu sem er róleg bossa nova ballaða. „Það veitti ekki af eftir þetta mikla svikasumar sem við fengum að spýta í smá sumarfíling svona rétt fyrir jólin. Við höfum alltaf reynt að leyfa lögunum að vera þannig að þau nýtist aðeins umfram jólin. Við erum að vinna með að henda þeim í spilun áður en desember gengur í garð. Jólalög fá enga spilun nema í desember þannig að það er gott að vera með vetrarvæn lög,“ segir Sigurður. Lagið nefnist á portúgölsku Águas de Março og um textann sá Birkir Blær Ingólfsson. „Þetta er upphaflega brasilískt lag. Í Brasilíu, og á suðurhveli jarðar, eru hreinsandi rigningar á allt öðrum tíma en hér. Það er talað um á frum- málinu Águas de Março – það eru mars-rigningarnar sem skola burtu öllu sem á undan er gengið. Okkar íslenski samnefnari er þá væntan- lega haustlægðirnar – þær feykja sumrinu út á haf. Þetta er svona haust/vetrarlag með sumarlegu ívafi.“ Mörg íslensk jólalög eru uppruna- lega ítalskir poppsmellir og segir Sigurður að þetta sé svipað nema að þau hafi bara beygt í hina áttina. Jólatónleikar Siggu og Sigga verða í Eldborg þann 17. desember og svo eftir það á Græna hattinum á Akur- eyri. GÓSS, sem eru þau tvö auk Guðmundar Óskars, verða í Iðnó 31. október og Skyrgerðinni Hvera- gerði 16. nóvember. Fyrir utan það er Siggi í Ellý í Borgarleikhúsinu auk þess sem Hjálmar snúa aftur á skemmtistaðinn Húrra í kvöld. Já, og Baggalútur fær Sigurð svo til liðs við sig um jólin. Þetta eru flóknir tímar í lífi tónlistarmannsins „Þetta er svolítið eins og að skella sér á vertíð eða á sjó. Maður er lítið heima, mikið að vinna en lyktar mögulega aðeins betur en úti á sjó,“ segir Sigurður hlæjandi. stefanthor@frettabladid.is Skola burt sumrinu með vetrarsmelli Marsrigningarnar í Brasilíu skola burtu því sem á undan kemur, líkt og íslensku haustlægðirnar. Hér lenda nokkrir íbúar Sao Paulo illa í því. Sigurður og Sigríður senda frá sér sjóðheitt vetrarlag sem ætti að ylja í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR OKKAR ÍSLENSKI SAMNEFNARI ER ÞÁ VÆNTANLEGA HAUSTLÆGÐ- IRNAR – ÞÆR FEYKJA SUMRINU ÚT Á HAF. ÞETTA ER SVONA HAUST/VETRARLAG MEÐ SUMARLEGU ÍVAFI. Sigurður Guð- mundsson og Sig- ríður Thorlacius hita upp fyrir jóla- tónleikana sína í desember með glæ- nýju suðrænu vetrar- lagi sem nefnist Vindar að hausti. Um er að ræða brasilískt bossa nova sem ætti að ylja Íslendingum nú í haust og vetur. VELDU GÆÐI! PREN TU N .IS ................................................ mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS 3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM TÓNLIST MARIU SCHNEIDER Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.