Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 9
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
VÍNBÚÐIN DALVEGI
LOKUÐ 29. OG 30. OKTÓBER
Vínbúðin Dalvegi verður
lokuð vegna framkvæmda
mánudaginn 29. október
og þriðjudaginn 30. október.
Við bendum viðskiptavinum á að næstu Vínbúðir
eru í Smáralind og Kauptúni Garðabæ.
Vínbúðir með lengri opnunartíma eru í Skeifunni
og Skútuvogi: mán-fös 10-20, lau 11-18.
Við þökkum þolinmæðina og hlökkum til
að taka á móti ykkur í enn betri Vínbúð.
Þingmenn Pírata lögðu fram í vikunni áhugaverða tillögu á Alþingi. Samkvæmt henni
verða í hverjum mánuði dregin af
handahófi nöfn tíu kjósenda og
þeim gert að ávarpa Alþingi í tvær
mínútur. Eins og svo oft áður eru
Píratar skemmtilegir, frjóir í hugsun
og óhræddir við að fara ótroðnar
slóðir. Þetta eru eiginleikar sem
almennt hefur lítt verið hampað
í íslenskum stjórnmálum hingað
til þar sem leiðindi, íhaldssemi,
varkárni og blind höfðingjaholl-
usta hafa jafnan talist mikilvægustu
dyggðir þeirra sem vilja ná frama í
starfi fjórflokksins.
Tillögunni er ætlað að tryggja
að þingið verði í forystu við að efla
lýðræði og þátttöku almennings í
stjórnmálum, segir í greinargerð.
Framkvæmdin
En hvernig kæmi svona til með að
virka? Maður gæti séð fyrir sér að
þeir kjósendur sem eru svo heppnir
að vera „dregnir upp úr lukkupott-
inum“ fái bréf (eða tölvupóst eða
IM) frá þinginu um að þeir eigi að
mæta á Austurvöll á tilteknum tíma
til þess að tala í tvær mínútur við
háttvirtan þingheim. Þessu hljóta
kjósendur flestir að taka sem kær-
komnu tækifæri og þeir undirbúa
sig af kostgæfni, láta pressa bestu
fötin og æfa ræðuna fyrir framan
spegilinn.
Ég sé svo fyrir mér að tíu manna
hópur kjósenda, hvaðanæva af land-
inu, mæti klukkan 13 á fimmtudegi í
þinghúsið. Þetta væri vitaskuld þver-
skurður þjóðarinnar, fólk af báðum
kynjum og á öllum aldri. Þarna væri
kannski grunnskólakennari, pípari,
sveitaprestur, ljóðskáld, hasshaus,
verðbréfamiðlari, mannauðsstjóri,
ræstitæknir, vörubílstjóri og einn
handrukkari á bótum.
Það væri mikið látið með þennan
viðburð. Forseti þingsins og starfs-
fólk myndu taka á móti hópnum,
og teknar væru bæði ljósmyndir
og hreyfimyndir með fullkominni
lýsingu. Það væru haldnar ræður um
mikilvægi þess að ekki myndist gjá
milli þings og þjóðar, og að lifandi
lýðræði væri undirstaða réttláts
samfélags.
Svo myndu ræðumennirnir tíu
koma inn í þingsal. Þar væru auð-
vitað allir þingmennirnir mættir og
sætu sperrtir, með skilningsríkan
og alþýðlegan svip. Þeir myndu allir
tala um hversu þakklátir þeir væru
að fá að heyra venjulegt fólk koma í
þinghúsið og segja að afar þeirra og
ömmur hefðu líka bara verið ósköp
venjulegt fólk eins og þetta lið sem
vann í lýðræðislottóinu og það væri
bara oft mikið að marka venjulegt
fólk, eins og afa þeirra og ömmur.
Mikið til í þessu
Ég sé fyrir mér að hinir lánsömu
þinggestir tali almennt af kurt-
eisi en þó muni einhverjir lesa
hressilega yfir hausamótunum á
þingmönnum og skamma þá fyrir
að vera alltaf að rífast og alltaf í fríi,
og þá munu þingmennirnir verða
mjög ábúðarfullir á svip, kinka
ákveðið kolli, taka fúslega á sig
sökina, horfa svo hver til annars
og kinka enn ákveðnar kolli, bíta
aðeins í neðri vörina og hvísla svo
sín á milli: „Það er mikið til í þessu
hjá henni …“
Svo væri tíumenningunum boðið
í te eða kaffi og kökur eða vöfflur og
fengju að taka myndir af sér í þing-
flokksherbergjum, og sumir færu
Almenningur dreginn á þing
í viðtal við fréttamann og segðu
frá reynslu sinni. Þingmennirnir
myndu djóka með almenningi og
taka sjálfur og setja á instasnappið.
Gestirnir myndu segja að þessir
þingmenn séu nú bara alveg ágætir
og engir stjörnustælar í þeim. Og
einhverjir myndu segja að þeir
gætu alveg eins hugsað sér að gerast
hreinlega bara sjálfir þingmenn. Og
þingmennirnir myndu hlæja að því
og finnast það ósköp krúttlegt.
Og kannski mun einhver hinna
heppnu flytja ræðu sem slær í gegn
og enda sjálfur á þingi þar sem
hann situr mánaðarlega og hlustar
á aðra óbreytta kjósendur koma og
skamma þingmenn. Og þá horfir
hann skilningsríkur á ræðumann-
inn og hvíslar svo til hinna þing-
mannanna: „Þetta er alveg rétt hjá
henni …“.
Önnur leið
Reyndar er fræðilegur möguleiki á
því að einhverjir sem af handahófi
eru valdir til þess að halda tveggja
mínútna ræðu yfir þingheimi kæri
sig engan veginn um það. Ég veit
um fólk sem myndi miklu frekar
vilja vinna það í happdrætti að
láta draga úr sér tönn án deyfingar
heldur en að þurfa að tala í tvær
mínútur í þingsal.
En kannski þarf Múhameð ekki
að koma til fjallsins. Kannski kemur
fjallið til Múhameðs. Væri ekki
einmitt miklu meiri lærdómur
fólginn í því ef einn dag í mánuði
þyrfti Bjarni Ben að mæta á kassa
í Krónunni í Borgarnesi, Katrín
Jakobsdóttir á færibandið í Granda,
Björn Leví á bensínstöð í Breiðholti,
Áslaug Arna á humarveiðar frá
Höfn, Sigmundur Davíð í mötuneyti
í Austurbæjarskóla og Willum Þór
Þórsson í Laugardalinn að þjálfa
knattspyrnulandsliðið (bíðið … væri
það kannski eitthvað).
En þetta er eflaust alltof róttæk
hugmynd, meira að segja fyrir
Pírata.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8